Gjaldþrotaskipti o.fl.
Þriðjudaginn 12. febrúar 1991


     Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. allshn. á þskj. 601 um frv. til laga um gjaldþrotaskipti. Það er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frv. Á fund nefndarinnar kom Markús Sigurbjörnsson prófessor og umsagnir um frv. bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Gjaldheimtunni í Reykjavík, Sýslumannafélagi Íslands, Dómarafélagi Íslands, Lögmannafélagi Íslands, G-samtökunum, Neytendasamtökunum og Verslunarráði Íslands.
    Frv. þetta er flutt vegna breytinga sem verða við aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds 1. júlí 1992. Jafnframt hefur átt sér stað endurskoðun á núverandi löggjöf. Í frv. er m.a. fjallað um nauðasamninga, auk greiðslustöðvunar og gjaldþrotaskipta, en með því eru öll ákvæði, sem varða gjaldþrotameðferð, á einum stað. Ákvæði um skuldaröð eru flutt úr skiptalögum og hlutverk skiptastjóra er aukið.
    Nefndin leggur til eina breytingu á frv. og varðar hún breytingu á lögum um ríkisábyrgð á launum. Með henni er félmrh. heimilt að greiða ríkisábyrgð á launum til einhvers sem er nákominn þrotamanni þótt krafa hafi ekki verið viðurkennd forgangskrafa sakir ákvæða 112. gr. frv. ef það er augljóslega sanngjarnt.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.``
    Undir þetta nefndarálit rita allir nefndarmenn og einnig standa allir nefndarmenn að brtt. allshn. sem er svohljóðandi:
    ,,Við 11. tölul. 182. gr. bætist ný málsgrein er verði 3. mgr., svohljóðandi:
    Við d-lið 5. gr. sömu laga bætist nýr málsliður svohljóðandi: Með sama hætti má ráðherra heimila greiðslu þótt krafa einhvers þess sem hér um ræðir verði ekki viðurkennd forgangskrafa við skipti vegna þess að hlutaðeigandi sé talinn nákominn þrotamanni.``
    Ég tel rétt að fara nokkrum orðum um þetta frv. umfram það sem ég hef þegar sagt og lesið upp úr nál. Að mínu mati er hér um mikla og stóra breytingu að ræða frá þeirri löggjöf sem nú er í gildi. Hér er verið að taka upp nokkuð nýja skipan á lögum um gjaldþrotaskipti og steypa saman þeim þremur meginþáttum sem mynda gjaldþrotaskiptameðferðina, þ.e. nauðungarsamninga, greiðslustöðvun og gjaldþrotaskipti, og setja saman í einn heilsteyptan lagabálk. Mjög ítarlegar reglur eru samdar um einstök atriði í þeirri meðferð. Ég held að ég geti ekki lýst því betur en með því að vitna til þeirra umsagna sem nefndinni bárust en þar eru allir aðilar sammála um að hér horfi til mikillar réttarbótar og saman komi á heilsteyptan hátt öll meginatriði gjaldþrotaskiptamála, og vitna ég þar sérstaklega til umsagnar Dómarafélags Íslands, Sýslumannafélags Íslands og Lögmannafélagsins, en þetta eru þeir aðilar sem mest fjalla um þessi mál og hafa með að gera.
    Það er þó eitt atriði sem ég vil minnast á og sem hefur orðið tilefni til mestra umræðna um þetta frv. en

það er sú fullyrðing að þetta frv. komi til með að fækka mjög verulega gjaldþrotaskiptum. Eitt og sér fækkar frv., verði það að lögum, ekki gjaldþrotaskiptum út af því að það eru sömu heimildir og eru í lögunum í dag fyrir gjaldþrotaskiptum. Það eitt út af fyrir sig fækkar þeim ekki. Hins vegar verður gert nokkuð erfiðara að biðja um gjaldþrotaskipti og er það aðallega vegna þess að nú þarf sá sem biður um gjaldþrotaskipti að bera allan þann kostnað sem af gjaldþrotaskiptunum leiðir. En samkvæmt upplýsingum sem nefndinni bárust kostar hvert gjaldþrot um 40 þús. kr. Hins vegar kemur það á móti að einnig var upplýst í nefndinni að upp undir 90% af öllum gjaldþrotaskiptum eru að kröfu opinberra aðila og fara þar fremstir í flokki innheimtumenn ríkissjóðs. Hér í Reykjavík er talið að yfir 60% af öllum gjaldþrotaskiptum séu að kröfu Gjaldheimtunnar og yfir 20% á vegum tollstjóra. Þar að auki eru upp undir 10% af gjaldþrotaskiptum að kröfu hálfopinberra stofnana eins og Landsbanka Íslands og Búnaðarbankans. Það eru því aðeins um 10% sem eru að kröfu lögmanna eða allra annarra landsmanna sem hugsanlega eiga kröfu á skuldara.
    Þessar upplýsingar tel ég mjög nauðsynlegt að komi fram í þessari umræðu þegar þessi mál eru rædd og reynt er að gera sér grein fyrir því hvort frv. komi til með að breyta fjölda gjaldþrotaskipta þar sem ég held að menn hafi yfirleitt ekki gert sér grein fyrir því hve hlutur ríkisins í gjaldþrotum er stór. Það ætti að gilda það sama fyrir ríkið hvort krafist er gjaldþrota því það er bara verið að taka úr einum vasanum og setja í hinn. Að vísu eru þetta spurning um tekjufærslur og gjaldafærslur hjá hinum og þessum ríkisfyrirtækjum en þegar upp er staðið, þó svo að þetta verði að lögum, þá ætti það ekki að breyta því að heimildirnar allar sem fyrir eru í dag verða áfram fyrir hendi.
    Það kemur mjög skýrt fram í umsögn Gjaldheimtunnar í Reykjavík að þar er talið að þó að frv. verði að lögum verði ekki tekin upp breytt stefna í meðferð gjaldþrotamála. Ég vil, með leyfi forseta, lesa aðeins upp það sem gjaldheimtustjórinn í Reykjavík, Guðmundur Vignir Jósefsson, segir. Hann segir m.a.:
    ,,Um annað atriði langar mig að fara nokkrum orðum að gefnu tilefni. Í athugasemdum með frv. er gefið í skyn að oft sé beðið um gjaldþrotaskipti án þess að í reynd sé ásetningur um að knýja á um skiptalok. Skiptaráðandinn í Reykjavík hefur opinberlega lýst því yfir að hann telji þá sem eru í fyrirsvari fyrir skattheimtu í Reykjavík vera framarlega í hópi þeirra sem misnota skiptaréttinn á þennan hátt. Hann hefur haldið því fram að skattheimtumenn teldu sig þurfa gjaldþrotaúrskurð til þess að fá fullnægjandi ástæðu til þess að afskrifa skuld. Þetta getur að vísu verið rétt en á þó engan veginn við sem meginregla. Þess eru mörg dæmi í Gjaldheimtunni í Reykjavík að skuldir einstaklinga eru afskrifaðar án þess að komi til gjaldþrotaskipta. Ákvörðun um afskrift byggist á almennu mati á því hvort líkur eru á að skuldin sé innheimtanleg. Oft er augljóst að svo er ekki, t.d. vegna þess

að fyrir liggur vitneskja um að gjaldandi er látinn og bú er eignalaust. E.t.v. finnst gjaldandi hvergi með skráð heimilisfang. Vitneskja kann að liggja fyrir um sjúkdóm og getuleysi til greiðslu af þeim sökum. Í mörgum tilvikum liggur fyrir árangurslaust lögtak en þó þarf það ekki að vera þar sem stundum hefur ekki tekist að ná neinu sambandi við gjaldanda. Að hinu leytinu er fjarri því að skuldir séu alltaf afskrifaðar þar sem gert hefur verið árangurslaust lögtak og raunar heldur ekki þó búskiptum sé lokið skv. 120. gr. gjaldþrotaskiptalaga. Skuldir geta innheimst eftir skiptalok, t.d. vegna möguleika á launaafdrætti eða skuldajöfnuði á móti framlagi ríkissjóðs í formi barnabóta, vaxtafrádráttar o.s.frv. Beiðnir um gjaldþrotaskipti á búum einstaklinga eru einkum sendar ef fyrir liggur að viðkomandi hefur haft með höndum rekstur af einhverju tagi þar sem eðlilegt er að fram fari eignakönnun í skiptarétti umfram það sem gerist í fógetarétti auk þess sem fjárhæð skulda skiptir máli.
    Hinu er svo ekki að neita og þarf að mínum dómi ekki að biðja afsökunar á, að í sumum tilvikum er beðið um gjaldþrotaskipti hjá einstaklingum sem ekki er sérstök ástæða til þess að ætla að eigi eignir til skipta. Þetta á t.d. við um alla þá sem skulda staðgreiðslu og gert hefur verið árangurslaust lögtak hjá. Enn fremur um einstaklinga sem láta aldrei í sér heyra, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir og tilkynningar m.a. um árangurslaus lögtök. Þeir hirða ekki um að telja fram og fá áætlaða skatta ár eftir ár og gera enga tilraun til þess að leita samkomulags um greiðslu né leiðbeininga um hvernig hægt er að fá skattálagningu breytt eftir eðlilegum boðleiðum. Þetta eru með öðrum orðum einstaklingar sem hafa tilhneigingu til þess að gefa ,,kerfinu`` langt nef. Vitaskuld væri hægt að afskrifa allar slíkar skuldir að afloknu árangurslausu lögtaki og forða þannig skiptaréttinum frá því álagi sem nú er svo mjög kvartað yfir. En til hvers halda menn að slík vinnuregla mundi leiða? Að sjálfsögðu til þess að með hverju ári bætist fleiri í þann hóp sem ekki teldi ómaksins vert að telja fram til skatts, því þeir mættu þá ganga að því vísu að álagning yrði fljótlega felld niður.
    Margir einstaklingar láta sér í léttu rúmi liggja þó hjá þeim sé gert árangurslaust lögtak. Hins vegar á það sama ekki við þegar beðið er um gjaldþrotaskipti. Í mörgum tilvikum er þá fyrst hægt að ná sambandi við gjaldandann og leiðir það oft til samkomulags um greiðslu. Hann tekur þá fyrst við sér og telur fram og er þá beiðni um skipti gjarnan afturkölluð. Það er því ekki fyrir það að synja
að þessi háttur hafi borið sterkan keim af því að verið væri að ,,ógna skuldara til efnda á skuldbindingum sínum``, eins og höfundur frv. orðar það í athugasemdum við 70. gr. frv. Hins vegar fæ ég ekki séð að hér sé um neina ,,óviðeigandi beitingu réttarfarsúrræða`` að ræða. Það má til að segja það alveg tæpitungulaust að skattar verða aldrei innheimtir nema með þvingunaraðgerðum. Ef ekki má nota þessa aðferð verður að finna eitthvað sem kemur í staðinn. Þess er að vísu skylt að geta að frv. gerir ekki ráð

fyrir neinni takmörkun á því að unnt sé að biðja um gjaldþrotaskipti, umfram það sem verið hefur, það á aðeins að leggja kostnaðinn á þann sem um skipti biður.
    Mér hefur þó þótt rétt að benda á framangreind atriði vegna þeirra athugasemda sem fram koma með frv. og í fjölmiðlaviðtali skiptaráðandans í Reykjavík nú núverið þar sem hann lét í ljós þá skoðun að til skiptaréttar væri leitað að óþörfu og hann jafnvel misnotaður og alveg sérstaklega af fyrirsvarsmönnum opinberra skatta og gjalda.``
    Eins og fram kemur í þessari tilvitnuðu umsögn virðist ekki vera neinn beygur í gjaldheimtustjóranum í Reykjavík. Þrátt fyrir að þetta nýja frv. komi til framkvæmda virðist hann ekki ætla að breyta þeirri stefnu sem fram kemur í þessum málum, að biðja um gjaldþrot þegar það á við og forsenda er fyrir hendi. Ég held því að það atriði, að þetta muni draga verulega úr gjaldþrotum, komi til með að standa á sér nema þá að sú stefna verði tekin upp í fjmrn. að fyrirskipa innheimtumönnum ríkissjóðs að hægja á sér eftir að árangurslaust fjárnám eða lögtak liggur fyrir. Það virðist a.m.k. ekki vera stefna hæstv. núv. fjmrh. að gefa skuldurum neitt eftir í þeim efnum.
    Þetta vildi ég að fram kæmi í þessari umræðu um þetta frv. um gjaldþrotaskipti og skýra það sem fram kom í nefndinni um frv. Á heildina litið, þrátt fyrir þessar ábendingar sem ég hef nú gert, þá er hér um mjög heilsteypt og gott frv. að ræða og ég mæli svo sannarlega með því að það verði samþykkt. En það sem ég minntist á hér áðan er kannski ekki atriði sem tengist frv. beint heldur er frekar um að ræða verklagsreglu hjá ríkinu hvernig það eigi að haga sér í tengslum við borgarana við innheimtu skatta.