Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
Herra forseti. Það er verið að vinna að umbeðinni skýrslu samhliða því að sú nefnd, sem til þess er bær að fjalla um þau mál sem hv. þm. gerði að umræðuefni, er að vinna nánast dag og nótt við að ljúka þessari úthlutun. Ég vænti þess að nefndin geti gert mér grein fyrir niðurstöðum öðru hvoru megin við þessa helgi. Það hefur því miður tekið lengri tíma en hægt var að sjá fyrir en ég vænti þess að það komi í mínar hendur frá nefndinni öðru hvoru megin við helgina. Þá mun eins fljótt og auðið er verða gerð grein fyrir málinu og Alþingi að sjálfsögðu gerð grein fyrir umbeðinni skýrslu. Ég vænti þess að sjútvrn. geti átt fund með sjútvn. beggja deilda til að gera grein fyrir þessu máli þegar það liggur fyrir. Ég get því miður ekki sagt fyrir um það nákvæmlega hvaða dag það getur orðið en það er fullur vilji til þess að það verði svo fljótt sem auðið er enda orðið brýnt að þeir aðilar sem þarna eiga hlut að máli fái sín gögn og veiðileyfi í hendur.