Áfengislög
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Ég hef litlu við að bæta sem ég sagði hér í fyrri ræðu minni. Þó vil ég undirstrika að ég tel að mín afstaða sé ekki á neinum misskilningi byggð. Hér er verið að leggja til að í staðinn fyrir að það skuli miðað við fæðingardag þar til menn fylli heilt ár, þá skuli miða við það ár sem þessu aldurstakmarki er náð. Hér er verið að leggja til breytingu á áfengislögum og verið að leggja til eftirgjöf. Það er tónninn sem er í þessu frv. Og ég held að þannig eigi ekki að vinna í sambandi við breytingu á áfengislögum heldur eigi að taka þau mál fyrir í einni heild.
    Það er lengi hægt að rökstyðja það að þessu eða hinu skuli breytt með þeim rökum að það sé verið að hjálpa einhverjum ákveðnum aldursflokk eða þess háttar. Það er ekki verið að gera neitt slíkt hér, því er nú verr og miður. Það er aðeins verið að slaka á ákveðnum reglum í áfengislögum okkar Íslendinga. Það getur vel verið að þetta sé röng regla en það á ekki að fara að því á þann veg sem hér er verið að leggja til og síst af öllu að hafa uppi þau rök að það sé verið að leiðrétta aðstöðu ungmenna í landinu. Það finnst mér svo fráleitt að stilla því upp á þann veg vegna þess að það verður alltaf hægt að leita að einhverju ranglæti vegna aldurstakmarka eða vegna þess hvernig börn raðast í bekki. Það er endalaust hægt að leita að slíkum hlutum og segja: Við þurfum að leiðrétta og við þurfum að gefa eftir í þessu kerfi vegna þess að við þurfum að leiðrétta aðstöðu ungmenna.
    Ég er hér uppi í ræðustól fyrst og fremst til þess að hugsa um börnin og unga fólkið og reyna að standa að því að þeirra hlutur verði betri.