Karvel Pálmason :
Virðulegur forseti. Það er kannski ekki ástæða til að blanda sér í þessa umræðu af því að mér finnst þetta mál liggja nokkuð ljóst fyrir. Þetta er nánast réttlætismál númer eitt gagnvart þeim ungmennum sem hér eiga hlut að máli. Ég lít ekki svo á að hér sé verið að opna gáttir vínmenningar að þessu leyti. Við vitum það, hvort sem menn þora að segja það eða ekki, að unglingar undir lögaldri eru inni á skemmtistöðum þar sem þeir mega ekki vera samkvæmt lögum. Þar skiptist fólk eftir aldri, eftir því hvenær á árinu það er fætt og það er auðvitað verið að skekkja þann grundvöll í samfélagi þessa fólks með því að meina helmingnum af bekknum, sem er fæddur síðari hluta ársins, að vera þarna en leyfa hinum það. Þetta er auðvitað grundvallarspurningin um það hvort við viljum sameina þá aðila sem hér eiga hlut að máli. Þeta er ekki spurning um áfengislögin að mínu viti. Ég skil þetta svo að hér séu menn að stíga skrefið gagnvart lagasetningunni sem hefur verið framfylgt, án laga að mínu viti, í verulegum mæli, en hér vilja menn að lögin taki af skarið um það að þessu fólki sé heimilt að vera þarna. Að vísu veit ég að hv. 4. þm. Vesturl. er Strandamaður og í öllum tilvikum þrjóskur og þrár og hafi menn þar tekið eitthvað upp í sig öfugt, þá kyngja menn því nú ekki fyrr en seint og um síðir. ( HBl: Ég hélt að mönnum þætti landi góður fyrir vestan, ef verið er að tala um að svo sé enn.) Ja, ekki skal ég dæma um það. Það getur hv. þm. Halldór Blöndal trúlega betur dæmt um en ég. Ekki ætla ég að gerast dómari þar í. En ég hygg að þegar hv. þm. Skúli Alexandersson hugsar þetta mál betur komist hann að raun um að menn eru að stíga spor í réttlætisátt gagnvart þeim aðilum sem hér eiga hlut að máli. Hér er ekki um boð eða bönn að ræða gagnvart áfengi. Hér eru menn að leiða saman þá einstaklinga sem vilja vera saman, eru á svipuðu reki og vilja vera sameiginlega á þessum stöðum.