Áfengislög
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Flm. (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Hæstv. forseti. Það er örstutt. Alveg nákvæmlega þessi ákvæði voru samþykkt á Alþingi árið 1983. Þá hét þetta ,,Frumvarp til breytinga á lögum um vernd barna og ungmenna.`` Ég er sannfærð um það að ef þetta frv. héti það sama í dag þá hefði hv. 4. þm. Vesturl. ekki látið þessi orð falla. Bara af því að þetta er breyting á áfengislöggjöfinni, þá fór þetta svona öfugt ofan í hv. þm. En ég veit að hann mun skoða málið í nefnd og ég stend enn í þeirri trú að hann muni skipta um skoðun.