Fundarsókn fjmrh.
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Mjög fer nú úr skorðum áætlun Aþingis. Ég hef þegar auglýst fundi síðdegis á föstudag norður á Akureyri, hafði ekki mál að flytja á fundi Sþ. á föstudag og mun fljúga norður eftir hádegi. En þarna sé ég að hæstv. ráðherra er kominn í salinn og klukkan er 18 mínútur yfir 3 svo þá er hægt að taka málið á dagskrá.