Endurgreiðsla á gjaldi af erlendum lánum
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Ég minnist þess alveg hvað ég sagði í maí, en reyndar var ég ekki að vitna í þá ræðu og ég held að hv. 2. þm. Norðurl. e. hafi heldur ekki verið að því áðan. En bara til þess að rétt sé rétt, ég geri mér að sjálfsögðu vonir um að þarna verði um miklu hærri upphæðir að ræða heldur en nemur þessu lántökugjaldi, þá bar ég ekki meira upp á hæstv. ríkisstjórn en það að hafa lofað að taka þátt í þessum fjármagnskostnaði.