Stjórnarskipunarlög
Miðvikudaginn 13. febrúar 1991


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Það mál sem hér er til umræðu er breyting á stjórnskipunarlögum. Við 1. umr. lýsti ég yfir ákveðnum efasemdum um ágæti þessa máls, sérstaklega hvað varðar þær breytingar að færa Alþingi í eina málstofu. Ég verð að segja eins og er að í rauninni er ég enn á báðum áttum. Eftir umfjöllun í nefnd, sem hefur verið góð og þar hefur verið vel unnið, og eftir að hafa hlustað á mæta menn eins og prófessorana Gunnar G. Schram og Sigurð Líndal hef ég ákveðið að leggjast ekki gegn málinu og stend því að því með öðrum nefndarmönnum ásamt þeim brtt. sem nefndin flytur. Ég ætla hins vegar ekki að fjalla neitt um þær, ég tel að hv. frsm. hafi gert það mjög skilmerkilega.
    Mínir fyrirvarar sneru fyrst og fremst að breytingunni yfir í eina málstofu og fyrir því að verja rétt minni hlutans. Það kom nokkuð til umræðu í nefndinni hvernig mætti verja rétt minni hlutans og komu þar upp ýmsar hugmyndir sem ber að taka til greina þegar frv. um þingsköp verður rætt í framhaldi af þeim breytingum sem kunna að verða hér og vil ég aðeins fá að tæpa á þeim.
    Einn var sá liður sem mér þótti nokkuð athyglisverður og vel þess virði að fylgja eftir. Hann var sá að minni hlutinn eða stjórnarandstaðan fengi formennsku í nefndum þingsins sem færi þá eftir þingstyrk flokkanna. Þetta tel ég vel athugandi og menn ættu að færa sig yfir á þessa braut og hætta því að vantreysta mönnum þó þeir séu ekki endilega í stjórnaraðstöðu í það og það skiptið.
    Megináhyggjur mínar varðandi það að fara í eina málstofu er það að málfrelsi verði skert. Ég er smeykur um að framtíðin muni bera það í skauti sér nema fast og ákveðið verði tekið á málum strax. Ég vil því að sett verði tímamörk á hvenær umræður megi fara fram eftir framlagningu mála til að þar megi hafa í huga einhvern ákveðinn dagafjölda, hvað sem hann yrði mikill, tveir, þrír eða fjórir dagar, en það verði að setja þarna ákveðna reglu um. Sama á við um nefndastörf, að mál fari til nefnda eftir hverja umræðu og að ákveðinn tími verði að líða á milli umræðna áður en næsta umræða geti farið fram. Þar má hugsa sér hið sama og í hinu dæminu að þar sé um einhvern ákveðinn dagafjölda að ræða. Einnig að hugsanlegt sé að fara þess vegna yfir í fjórar umræður ef með þarf.
    Hv. frsm. kom inn á aukinn meiri hluta fyrir því að veita afbrigði frá þingsköpum. Undir það tek ég og tel að hann ætti að vera verulega aukinn, ekki minni helst en 3 / 4 hlutar. Það má reyndar geta þess að prófessor Sigurður Líndal kom inn á það í heimsókn sinni til nefndarinnar að 30. gr. stjórnarskrárinnar er í rauninni úrelt. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta: ,,Forseti veitir, annaðhvort sjálfur eða með því að fela öðrum stjórnvöldum, undanþágur frá lögum samkvæmt reglum, sem farið hefur verið eftir hingað til.`` Prófessorinn benti á þessa grein sem úrelta grein og upplýsti nefndina um það að hér væri átt við reglur

sem giltu fram til ársins 1874. Þannig er sú grein algerlega úrelt og ætti í raun að falla út.
    Hæstv. forseti. Eins og ég hef sagt voru mínar áhyggjur fyrst og fremst þær að keyrt verði yfir minni hlutann, eins og við höfum upplifað undir þessari ríkisstjórn, að áfram verði lögð fram mál á síðustu stundu og þau keyrð í gegn með afbrigðum. Því hef ég sett þessa fyrirvara sem ég hef lauslega tæpt á.
    Ég sé það alveg fyrir mér að með því að fara í eina málstofu verði langar umræður, um frv. sérstaklega, og hægt muni sækjast. Því muni það leiða fljótlega til þess að krafist verður skerðingar á málfrelsi. Þegar ég er að tala um málfrelsi þá er ég að tala um ræðutíma, ekki það að menn hafi ekki tjáningarfrelsi heldur það að ræðutími megi ekki skerðast. Þetta tel ég afar mikilvægan punkt og að menn verði að sameinast um að halda vörð um þetta. Ég hef lýst þessu sem eina vopninu í hendi stjórnarandstöðu og það vopn má ekki slá úr hendi hennar.
    Það er reyndar með þessum fyrirvörum sem ég styð þetta mál. Ég vil aðeins í lokin segja það varðandi þá brtt. sem ég stend að með hv. þm. Friðjóni Þórðarsyni og hann hefur gert ágæta grein fyrir að hv. eða ekki hv., jú, kannski hv. lagaprófessor Sigurður Líndal, kallaði þetta afhelgun þjóðfélagsins.