Fyrirspyrjandi (Árni Gunnarsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir hans svör. Það er lakara ef það fer eitthvað á milli mála undir hvaða ráðuneyti þessi málaflokkur heyrir, en ég heyrði það á hæstv. ráðherra að hann hefur fullan hug á því að skoða þessi mál og láta kanna þau.
Það liggur alveg ljóst fyrir að þeir menn sem telja á sér brotið varðandi vökulögin frá 1921 munu seint koma til með að kæra þessi mál. Ástæðan er ákaflega einföld. Hún er sú að tekjur um borð í frystitogurunum eru einhverjar þær hæstu sem þekkjast um borð í íslenskum fiskiskipum. Menn munu ekki taka þá áhættu að missa atvinnu sína vegna þess arna, enda hefur mönnum verið sagt um borð í frystitogurum sem hafa gagnrýnt vinnutímann að þeir gætu tekið poka sinn og gengið í land ef þeir svo óskuðu. Það hefur enginn gert enn þá svo að mér sé kunnugt. Ég held að þetta sé mál sem þurfi að skoða mjög vandlega vegna þess að frystitogarar eru að hluta til orðnir ríki í ríkinu í þeim rekstri sem þeir stunda. Um borð í þeim afkasta örfáir menn starfi sem 70 -- 100 manns afkasta í venjulegum frystihúsum.
En ég læt þessu lokið, þakka ráðherra hans svör.