Vandamál atvinnulífs á Seyðisfirði
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins staðfesta að það er rétt sem hv. 4. þm. Austurl. Egill Jónsson sagði hér áðan, að lausn þessa máls er tengd afgreiðslu í ríkisstjórninni og málið er lagt fyrir á þeim grundvelli í stjórn Byggðastofnunar eftir viðtal sem forráðamenn Seyðfirðinga áttu við forsrh.