Fræðsla fyrir útlendinga
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Því er til að svara fyrst að ekki hafa verið til almennar reglur um það hvernig staðið er að fræðslu útlendinga sem hingað koma eða kennslu, t.d. í íslensku. Ég hygg reyndar að yfirleitt vanti almennar reglur um það hvernig er tekið á móti útlendingum. Mér sýnist því að okkar löggjöf að því leytinu til sé að mörgu leyti götótt og þyrfti á því máli að taka sem heyrir eins og kunnugt er undir útlendingaeftirlitið og dómsmrn.
    Fyrsta spurning hv. þm. er: ,,Hvernig er staðið að kennslu í íslensku fyrir útlendinga og fræðslu um réttindi og skyldur þeirra útlendinga sem taka sér búsetu hér á landi, en 5. maí 1990 var tillögu þess efnis vísað til ríkisstjórnarinnar?``
    Því er til að svara að á sl. vetri, þ.e. 1989 -- 1990, hófst undirbúningur að þessum málum með þeim hætti að í fyrsta lagi er að fara af stað starfshópur sem hefur það hlutverk að móta stefnu varðandi almennan rétt útlendinga til íslenskukennslu. Þessi hópur er undir forustu Guðnýjar Helgadóttur deildarstjóra í fullorðinsfræðsludeild menntmrn.
    Í annan stað er verið að undirbúa námsefni fyrir byrjendakennslu sem sérstaklega er ætluð útlendingum frá ólíkum málsvæðum.
    Í þriðja lagi er á vegum nokkurra aðila í gangi íslenskukennsla fyrir útlendinga, þ.e. á vegum Námsflokka Reykjavíkur, Tómstundaskólans, Bréfaskólans, Málaskólans Mímis og nokkurra framhaldsskóla, ekki bara í Reykjavík heldur einnig út um landið.
    Í fjórða lagi er þess að geta að haustið 1990, þ.e. núna fyrir áramótin, voru 30 -- 40 nemendur í íslenskunámi í Námsflokkum Reykjavíkur á byrjendanámskeiðum. Þetta voru tvö námskeið, annað fyrir fólk frá Filippseyjum, hitt fyrir fólk frá Tælandi. Það lá ekki fyrir og liggur hvergi fyrir í íslenskri löggjöf hver átti að kosta þessi námskeið. Niðurstaðan varð þess vegna sú að menntmrn. greiddi skólagjöld fyrir þetta fólk á þessum námskeiðum þannig að þau voru fólkinu að kostnaðarlausu.
    Námsflokkar Reykjavíkur verða líka með þessi námskeið núna á vorönn og í Fjölbrautaskólanum á Suðurnesjum hefur verið óskað eftir sams konar námskeiði fyrir 25 manns frá Filippseyjum og Tælandi. Við höfum fallist á það fyrir okkar leyti og að greiða skólagjöld fyrir þetta fólk eins og gert hefur verið við Námsflokka Reykjavíkur. En ég endurtek að það er í raun og veru engin lagaskylda á neinum, því miður, í þessu efni, en við höfum auðvitað talið okkur skylt engu að síður að gera það sem hægt er til að tryggja að þetta fólk fái kennslu í íslensku.
    Í fimmta lagi varðandi fræðslu um réttindi og skyldur þá er komin út, eins og hv. þm. vita, bæklingur á vegum félmrn. sem unninn hefur verið á vegum nokkurra ráðuneyta. Hann er á ensku, en það er verið að þýða hann á kínversku og tælensku. Þessi bæklingur inniheldur upplýsingar um réttindi og skyldur fólks sem sest hér að. Hann verður afhentur öllum þeim sem flytja hingað til lands og Rauði kross Íslands mun halda námskeið víðs vegar um land um réttindi og skyldur innflytjenda og sögu landsins með hliðsjón af því sem þarna kemur fram. Fólki verður skrifað bréf, þ.e. þeim útlendingum sem hér eru eða hafa komið á allra síðustu árum, og því verður boðið upp á slík námskeið.
    Með þessu hef ég svarað, virðulegi forseti, fyrri fyrirspurninni en sú seinni er: ,,Með hvaða hætti er tryggt að útlendingar, sem hafa hér fasta búsetu, fái upplýsingar um þá fræðslu sem til boða stendur?``
    Svarið er þá að nokkru leyti komið, vænti ég, því að það eru í gangi og undirbúningi námskeið fyrir hópa frá tveimur þjóðum sérstaklega. Þau eru unnin í samvinnu við formenn viðkomandi félaga hér á landi. Þegar búið verður að móta heildarstefnu í þessum málum, samanber það sem ég sagði í upphafi um kennslu fyrir útlendinga hér á landi, verður ákveðið með hvaða hætti fólki verður kynnt málið frekar.
    Þess má geta að mikið er spurt um þessi mál í menntmrn. Það er greinilega mjög mikil þörf fyrir þessa starfsemi og því hefur verið unnið að þessum málum og af þeim krafti sem hægt er miðað við þann vanda sem ég held að löggjafinn ætti aðeins að velta fyrir sér, að það er í rauninni ekki til nein skýr heildarlöggjöf um þessi mál sem þyrfti að vera. Þannig hefur verið staðið að þessum málum á undanförnum árum að oft hefur verið tekin um það ákvörðun af ríkisstjórn að hingað skuli koma svo og svo stór hópur útlendinga frá Víetnam eða annars staðar frá, jafnvel tugir manna, án þess að í raun og veru væri neitt gert til þess að tryggja um leið að þetta fólk fengi viðunandi fræðslu um land og þjóð og tungu þjóðarinnar þegar það kemur til landsins. Þar af leiðandi er hægt að fullyrða að það hafi oft ekki verið staðið nægilega vel að þessum málum af hálfu íslenskra stjórnvalda. Að því er nú unnið eins og ég hef látið koma hér fram og ég þakka fyrirspyrjanda, hv. 6. þm. Vesturl., fyrir að taka málið fyrir.