Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Á þskj. 583 hef ég leyft mér að bera fram svohljóðandi fyrirspurn til hæstv. sjútvrh.:
,,Hafa Síldarverksmiðjur ríkisins fjárfest í öðrum fyrirtækjum á undanförnum árum? Sé svo: Í hvaða fyrirtækjum? Hver er ástæða fjárfestingarinnar?``
Í Morgunblaðinu í dag eru á bls. 16 viðtöl annars vegar við hæstv. sjútvrh. og hins vegar við framkvæmdastjóra Síldarverksmiðja ríkisins. Í viðtalinu við þann síðarnefnda kemur í ljós að hann telur að fækka þurfi verksmiðjum þannig að hægt sé að reka þessi fyrirtæki án styrkja. Hann segir jafnframt að til hafi staðið að gera SR að hlutafélagi en ekki hafi tekist að koma því í gegnum Alþingi og hann sjái ekki að það gerist á þessu þingi. Hann segir enn fremur í viðtalinu að verksmiðjurnar þurfi að selja afurðirnar sem fyrst vegna þess að þær eru orðnar peningalausar. Loks kemur fram hve margir vinna við fyrirtækið og að breytingarnar á verksmiðju SR á Reyðarfirði hafi kostað rúmar 500 millj. kr. og fyrirtækið hafi þurft að taka 340 millj. kr. lán hjá lánastofnun Export Finans í Noregi. Nú hefur það heyrst að þetta fyrirtæki hafi fjárfest í öðrum fyrirtækjum og þess vegna er spurt.
Mér er kunnugt um það, virðulegi forseti, að Sementsverksmiðjan og Járnblendiverksmiðjan höfnuðu því að taka þátt í atvinnurekstri á Akranesi með því að kaupa hlut í Þorgeiri og Ellert, sem er fyrirtæki í járniðnaði. Það er líka ljóst að yfirleitt hefur þróunin annars staðar en hér á landi gengið í þá átt að einkavæða opinber fyrirtæki. Þá hefur því heyrst fleygt að Síldarverksmiðjur ríkisins hafi keypt hlut í öðru fyrirtæki, þ.e. í fyrirtæki sem á í mikilli samkeppni við önnur fyrirtæki. Mér finnst ástæða til þess að það komi fram hér á hv. Alþingi hvort þetta er rétt og þá í hvaða fyrirtækjum og hver sé ástæða slíkrar fjárfestingar.
Ég er að tala hér, virðulegi forseti, um fjárfestingar en ekki um lánamál. En mér er jafnframt kunnugt um það að Síldarverksmiðjur ríkisins hafa ábyrgst lán, reyndar skrifað á víxil upp á einar 15 millj. kr., vegna skipakaupa erlendis í því skyni að tryggja sér hráefni síðar. Það er síðan efni í aðra sögu.