Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera hér að umræðuefni vanda Síldarverksmiðja ríkisins, en það er rétt hjá fyrirspyrjanda að ég hef haft fyrir því mikinn áhuga að breyta því fyrirtæki í hlutafélag. En gegn því hefur verið allmikil andstaða og ekki síst hjá stjórn fyrirtækisins sem er kosin hlutfallskosningu á Alþingi og sjútvrh. hefur í reynd engin áhrif á.
En að því er varðar fyrirspurnina, þá er það rétt að Síldarverksmiðjur ríkisins tóku þátt í hlutafjáraukningu í Landssmiðjunni hf. í febrúar 1990 ásamt þrem öðrum fiskimjölsverksmiðjum og nokkrum starfsmönnum Landssmiðjunnar hf. Aukning hlutafjárins nam 10 millj. kr. og lögðu SR fram 5,1 millj. kr., aðrar fiskimjölsverksmiðjur 0,9 millj. kr. og starfsmenn Landssmiðjunnar hf. 4 millj. kr. Hlutafé Landssmiðjunnar eftir aukninguna varð 15 millj. 960 þús. kr.
Áður en hlutafjáraukningin átti sér stað var rekstrarfjárstaða Landssmiðjunnar hf. mjög slæm og gjaldþrot blasti við. Þar sem fyrirtækið var með umboð og þjónustu fyrir Alfa Laval og fleiri fyrirtæki sem framleiða mikilvæg tæki í fiskimjölsverksmiðjur töldu SR og eigendur fleiri fiskimjölsverksmiðja nauðsynlegt að tryggja að sú sérhæfða þjónusta sem Landssmiðjan hefur veitt yrði áfram til staðar. Hagsmunir SR gagnvart Landssmiðjunni eru miklir þar sem skilvindueign SR hjá þessu fyrirtæki, Alfa Laval, er að núvirði um 400 millj. kr. Eftir hlutafjáraukningu Landssmiðjunnar hf. gerðu SR og Landssmiðjan með sér samning sem m.a. fól í sér að samnýta varahlutalager fyrirtækjanna og minnka þannig varahlutalager SR. Einnig var samið um nána samvinnu vélaverkstæðis SR á Siglufirði og Landssmiðjunnar hf. um ýmis verkefni.
SR eiga fulltrúa í stjórn verksmiðjunnar og samkvæmt upplýsingum hans hefur rekstur fyrirtækisins gengið vel og er nú ljóst að það muni sýna um 12 millj. kr. hagnað á rekstrarreikningi ársins 1990, sem er veruleg breyting frá árinu 1989, en þá var tap 14,5 millj. kr. Samkvæmt upplýsingum er reiknað með að greiddur verði 10% arður til hluthafa og gefin verði út jöfnunarhlutabréf, um 20%.
Síldarverksmiðjur ríkisins hafa ekki fjárfest í öðrum fyrirtækjum á síðustu 10 árum, en eiga nú hlutafé, stofnfé og séreignarsjóði í eftirfarandi fyrirtækjum, miðað við sl. áramót: Jökli hf. Raufarhöfn 800 þús., Jöklum hf. Reykjavík 16.220 kr., Umbúðamiðstöðinni hf. 336.469 kr., Séreignarsjóði Skreiðarsamlagsins 17.420 kr., Stofnsjóði Samvinnutrygginga 4.891 kr. og téðri Landssmiðju hf. 5.100.000. Samtals 6.275.000 kr.
Mér sýnist að þessi ákvörðun hafi verið tekin af stjórn Síldarverksmiðja ríkisins í ljósi þess að ef svo hefði ekki verið hefðu þær þurft að yfirtaka ýmis verkefni til að halda verksmiðjum sínum gangandi en virðast hafa metið það að sá rekstur væri betur kominn í höndum þeirra einkaaðila sem yfirtóku rekstur Landssmiðjunnar á sínum tíma af ríkinu, sem var nauðsynlegt og gott skref. Ef Síldarverksmiðjur ríkisins hefðu ekki gert það hefði þessi þjónusta ekki verið lengur í höndum þeirra sérhæfðu aðila sem þar
starfa. Sýnist mér að það réttlæti þessa ákvörðun þótt ég sé mjög sammála hv. fyrirspyrjanda um það að að sjálfsögðu á rekstur sem þessi ekki að vera í höndum ríkisins. Það er ekki markmið ríkisins að stunda atvinnurekstur.