Áfengisneysla
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Virðulegi forseti. Hv. 4. þm. Vesturl. hefur borið fram fsp. á þskj. 555 sem hann hefur nú gert grein fyrir. Eins og lá í orðum hans hafa þessar upplýsingar vissulega komið fram opinberlega nú þegar. En ósk hans og vilji er að fá það sérstaklega tekið til umræðu á Alþingi og er það bæði sjálfsagt og eðlilegt.
    Fsp. er í þremur liðum og 1. tölul. er: ,,Hvaða breyting varð á almennri áfengisneyslu milli áranna 1988 og 1989?`` Breytingar á almennri áfengisneyslu milli áranna voru þannig að sala léttra vína minnkaði um 23,35%, úr 1.525 þús. lítrum í 1.169 þús. lítra. Sala sterkra vína minnkaði um 18,75%, úr 1.702 þús. lítrum í 1.383 þús. lítra. Á móti voru seldir tæplega 7 millj. lítra af sterkum bjór þannig að aukning neyslunnar milli áranna 1988 og 1989 var aðallega vegna tilkomu bjórsins, svo sem við mátti búast fyrstu mánuðina eftir breytingarnar sem gerðar voru á áfengislöggjöfinni og tóku gildi 1. mars 1989. Sé hins vegar litið á áframhaldið hefur komið í ljós að áfengisneysla hefur minnkað aftur nokkuð á sl. ári og er það í samræmi við það sem gert var ráð fyrir við tilkomu bjórsins.
    Í 2. tölul. er spurt: ,,Hvaða breyting varð á áfengisneyslu unglinga 13 -- 19 ára milli áranna 1988 og 1989 (sundurgreint eftir kynjum)?`` Það verður að segja að um þetta liggja ekki enn fyrir nákvæmar tölulegar upplýsingar sem ná yfir lengra tímabil. Geðdeild Landspítalans hefur þó reynt að meta þetta og af upplýsingum sem fyrir liggja úr þeim athugunum, þar sem reynt var að áætla áfengisneyslu ungs fólks á aldrinum 13 -- 19 ára á sex mánaða tímabili á þessum árum, 1988 -- 1989, virðist sem neysla bæði pilta og stúlkna á aldrinum 13 -- 19 ára á bjór hafi aukist verulega eða um allt að 160% hjá stúlkum og um 300% hjá piltum. Bjór var vart fáanlegur árið 1988 þannig að samanburðurinn er náttúrlega dálítið erfiður.
    Neysla léttra vína virðist hins vegar hafa minnkað hjá báðum kynjum um 50 -- 55%, neysla sterkra vína aukist nokkuð hjá piltum en minnkað hjá stúlkum. Hér er þó aðeins um sex mánaða tímabil að ræða og hefur ráðuneytið ekki enn aðra könnun eða athugun til samanburðar.
    Nefnd um átak í áfengisvörnum sem starfaði á vegum heilbrrn. lét gera ítarlega könnun á neysluvenjum Íslendinga á áfengi og afstöðu þeirra til nokkurra þátta áfengismála í upphafi ársins 1989, nánar tiltekið dagana 13. -- 17. jan. Það var Gallup á Íslandi sem framkvæmdi þessa könnun fyrir nefndina. Fyrirhugað er að endurtaka þessa könnun til þess að fá samanburð og upplýsingar um breytingar þegar nokkuð er liðið frá því að bjór var leyfður.
    3. tölul. fsp. var: ,,Hvernig skýra heilbrigðisyfirvöld þær breytingar sem um er spurt?`` Til að fá yfirlit yfir þróunina verður að skoða áfengisneyslu yfir nokkuð lengra tímabil en samanburð milli tveggja ára. Sé litið á neyslu landsmanna í áfengislítrum á árunum 1987 -- 1990 kemur í ljós að milli 1987 og 1988

minnkar neyslan aðeins eða um 1,12%, vex síðan aftur á árunum 1988 -- 1989 eins og fram hefur komið um 24,8%, en minnkar aftur á milli 1989 og 1990 um 4,13%. Almennt var gert ráð fyrir því að neysluvenjur Íslendinga mundu breytast hvað neyslu áfengis varðaði með tilkomu bjórsins og hefur reynslan orðið sú að neysla sterkra drykkja og léttra vína hefur minnkað verulega svo sem spáð var. Í staðinn hefur komið neysla á bjór. Líklegt er að þróunin haldi áfram í þessa átt og ætti því heildarneysla í áfengislítrum að minnka enn á þessu ári svo sem reynslan var á því seinasta miðað við þá verulegu aukningu sem varð á milli 1988 og 1989.
    Að lokum spurði svo hv. þm., sem ekki er reyndar tilgreint í fyrirspurninni sjálfri, hvaða aðgerðir ráðuneytið hefði haft í gangi fyrir utan það sem hefur komið lauslega fram í mínum svörum. Þar er til að nefna, að vísu væri ástæða til þess að gera þinginu sérstaka grein fyrir því, en í örstuttu máli get ég sagt að á árinu 1989 starfaði sérstök nefnd sem hafði það verkefni að gera átak í áfengisvörnum og hafði verulega fjármuni úr að spila. Hennar vinnubrögð voru fyrst og fremst í þá veru að leita samstarfs við aðra aðila úti í þjóðfélaginu sem hafa unnið á þessu sviði. Á árinu 1990 var þeirri stefnu fram haldið, með allverulegum fjármunum sem við fengum til ráðstöfunar í þessu skyni, og svipuð stefna er í gangi enn á þessu nýbyrjaða ári. Það mætti auðvitað, eins og ég segi, gera betri grein fyrir því með aðeins rýmri tíma.