Áfengisneysla
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Mín athugasemd skal vera stutt. Ég vil aðeins taka undir það með hv. þm. Skúla Alexanderssyni að það ber að huga betur að fræðslustarfi í skólum. Það var ef ég man rétt eitt af skilyrðum fyrir samþykkt bjórfrv. á sínum tíma. Ég man ekki hvort það var beint inni í frv. en það var skýrt tekið fram hér í þingsölum. Ef ég man rétt, þá ætlaði hæstv. menntmrh. að standa fyrir slíkri fræðslu og ég teldi það nú innlegg í málið að fá að heyra hans álit á því hvernig hefur verið staðið að þeim málaflokki.
    Mér þykir einnig athyglisvert að heyra stjórnarliða segja það að áfengisneysla fari greinilega minnkandi í beinu hlutfalli við aukna skattpíningu í landinu.