Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
Virðulegur forseti. Hv. 7. þm. Norðurl. e. hefur borið hér fram nokkrar fyrirspurnir á þskj. 558. Reyndar fannst mér nú koma fram í framsögu fyrirspyrjanda fyrir spurningunum að mikil brögð væru að því að sjúklingar þyrftu að leita til læknis sem ekki hefði samninga við Tryggingastofnun og margir læknar hefðu kosið að starfa þannig. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið frá Tryggingastofnun getur það nú vart verið svo, a.m.k. ber þá eitthvað meira í milli heldur en það sem hér virðist koma fram.
1. tölul. fsp. hv. þm. er: ,,Hve margir læknar, sem reka eigin læknastofur, eru ekki á samningi við Tryggingastofnun ríkisins?`` Samkvæmt upplýsingum þaðan veit stofnunin aðeins um þrjá sérfræðinga sem reka eigin stofu og starfa utan samninga við Tryggingastofnunina. Það eru aðeins þrír einstaklingar sem hafa kosið þessa aðferð. Allir aðrir sérfræðingar, sem starfrækja sínar sjálfstætt starfandi stofur, eru með samning við Tryggingastofnun ríkisins.
2. tölul. er: ,,Hverjar eru sérgreinar þessara lækna og hve margir þeirra eru í hverri sérgrein?`` Samkvæmt upplýsingunum eru þessir þrír sérfræðingar allir sérfræðingar í bæklunarskurðlækningum. Það er aðeins um þessa grein að ræða sem er starfrækt án samninga við stofnunina.
3. tölul. tengist reyndar þessu líka og hljóðar svo: ,,Er einhver sérgrein innan læknisfræðinnar algerlega afskipt, þ.e. að ekki finnist læknir innan hennar sem er á samningi við Tryggingastofnun ríkisins?`` Að mati Tryggingastofnunarinnar og ráðuneytisins er það ekki svo. Það mun ekki vera nein sérgrein innan læknisfræðinnar sem teljast verður afskipt. Nú kann þetta að vera dálítið stór fullyrðing því að auðvitað eru alltaf að koma fram nýjar mjög sérgreindar sérgreinar, ef ég má orða það svo, og kann að vera, ef farið er ofan í mjög sérhæfða læknisfræði, að einhverjar slíkar sérgreinar séu fyrir hendi sem ekki er veitt læknishjálp í hér, en þá er það a.m.k. að mati stofnunarinnar ekki talið vera það sem máli skiptir gagnvart því að menn fái alla þá nauðsynlegu hjálp sem þeir eiga rétt á.
Varðandi þessa þrjá bæklunarlækna sem starfi utan samninga við stofnunina segir í upplýsingum frá henni að margir sérfræðingar í bæklunarskurðlækningum starfi skv. samningi við Tryggingastofnunina og þess vegna ekki ástæða til að ætla að ekki sé hægt að fá þessa þjónustu hjá þeim sérfræðingum sem eru þar með samninga.
Og 4. tölul.: ,,Hve langur biðtími er hjá þeim læknum sem starfa á samningi við Tryggingastofnun ríkisins og sinna sömu sérgreinum og þeir sem ekki hafa samning við stofnunina?`` Samkvæmt athugun sem Tryggingastofnun ríkisins hefur gert er biðtími hjá bæklunarskurðlæknum, sem starfa skv. samningi við Tryggingastofnun ríkisins, stuttur, 1 -- 4 vikur, hvort sem um er að ræða bið eftir viðtali og skoðun eða bið eftir smærri bæklunarskurðaðgerðum sem unnt er að framkvæma á stofum læknanna eða sérstökum skurðstofum sem til þess hafa verið útbúnar. Hér ber auðvitað að láta það koma skýrt fram að verið er að tala um þá þjónustu sem bæklunarsérfræðingar framkvæma eða treysta sér til þess að framkvæma á sínum eigin stofum. Þar er ekki um að ræða langan biðlista. En hitt vita menn, og hefur komið fram hér í umræðum á Alþingi áður, að biðlisti er allverulegur hvað bæklunarlækningar varðar á sjúkrahúsunum sjálfum þegar verið er að tala um meiri háttar eða stærri aðgerðir sem aðeins verða framkvæmdar á sjúkrahúsi. Við höfum því miður staðið frammi fyrir þeirri staðreynd nú um tíma og þar koma til aðrar ástæður sem ekki vinnst tími til að rekja ítarlega hér eða nú. Þó er það svo að biðlistarnir, þó þeir séu ekki afsakanlegir og ekki réttlætanlegt eða gott að þurfa að viðurkenna að þeir séu langir, þá eru þeir þó í flestum greinum og flestum tilfellum styttri hér en í nágrannalöndum okkar.