Farþegaflutningar með ferjum
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Það mál sem hér hefur verið tekið til umræðu er allra góðra gjalda vert. Það er hins vegar svo að hv. fyrirspyrjandi hefur greinilega ekki verið til sjós eða kynnt sér þær reglur sem þar gilda þannig að hann hefði mátt vita það að skipstjórinn ræður í öllum tilfellum, svo sem kom fram í svari hæstv. ráðherra. Sömu reglur gilda einnig um farþegaflutninga með flugvélum og með farþegaflutningabílum. Það hafa oft komið upp slík tilvik á báðum vígstöðvum þó vel hafi farið. En við verðum að athuga það að þeir sem eru við skipsstjórn hér við Ísland eru yfirleitt mjög reyndir menn og hæfir í sínu starfi þannig að ég held að það séu óþarfa áhyggjur af því að illa geti farið. Ég tel að þeir geti metið aðstæður alveg rétt. Á sama tíma voru um 100 önnur skip á veiðum hér í kringum landið og allt fór það farsællega. Það má ekki heldur róta slíkum atburðum of mikið upp, að vera með óþarfa áhyggjur af hlutum sem eru e.t.v. í lagi. Og það er einnig þannig að menn verða að huga betur að þessu að því leyti til að það koma alltaf upp slík tilvik og það er erfitt að setja reglur í þeim tilvikum.