Brunavarnir í skólum
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Hér er hreyft mjög brýnum og alvarlegum málum sem snerta fyrst og fremst spurninguna um fjármuni ríkis og sveitarfélaga til varnarstarfs af ýmsu tagi. Bæði að því er varðar skóla og heilbrigðisstofnanir. Ég minnist þess t.d. að þann tíma sem ég sat í stjórnarnefnd og hafði með að gera málefni Landspítalans þá settum við í gang mjög umfangsmiklar brunavarnir í húsum Landspítalans. Það var áætlun sem var í gangi í nokkur ár og kostaði að sjálfsögðu verulega fjármuni eins og við er að búast. Ég geri ráð fyrir að þeirri áætlun sé lokið. En vandinn var sá þar, og það er í raun og veru svipað í skólunum, að menn fást því miður ógjarnan til að taka á þessum málum fyrr en eitthvað hefur gerst sem minnir óþyrmilega á veruleikann.
    Fsp. er í þremur hlutum og það er fyrst spurt: ,,Hvernig er háttað brunavörnum og eldvarnareftirliti í skólum?`` Hæstv. félmrh. hefur svarað því og vitnar hún þar í lögin nr. 74/1982, aðallega í 4. gr. laganna þar sem stendur að sveitarfélögin eigi að halda uppi brunavörnum, þar með talið eldvarnareftirlit, í samræmi við kröfur sem nánar skal kveða á um í reglugerð. Þannig að eftirlitið er þar.
    Síðan er spurt: ,,Fylgjast ráðuneyti félagsmála og menntamála með framkvæmd sveitarfélaga á 4. gr. laganna sem áður var vitnað til?`` Eins og fram kom í máli hæstv. félmrh. hefur Brunamálastofnun ríkisins athugað skóla með tilliti til brunavarna og samið skýrslur um ástand mála víðast hvar. Þær skýrslur eru síðan að því er okkur varðar sendar skólastjórum skólanna, viðkomandi slökkviliðsstjóra og sveitarstjórnunum. Það er sú vinnuregla sem höfð er í menntmrn.
    Í þessum skýrslum er oft krafist mjög mikilla breytinga á skólunum. Það kemur iðulega fyrir að það er krafist mjög mikilla breytinga sem þá kosta að sjálfsögðu verulega fjármuni og þeir fjármunir eiga að koma frá sveitarfélögum að því er varðar grunnskólann en hins vegar frá ríkinu að því er varðar framhaldsskólann. Eins og hv. alþm. vita hefur talsvert á það skort að það fáist nægilegt fjármagn á undanförnum árum til viðhalds opinberra bygginga yfirleitt, þar á meðal til skólabygginga. Það á við um byggingar á vegum ríkisins og byggingar á vegum sveitarfélaganna líka.
    Það er spurt að því hvort brögð séu að því að ákvæðum brunavarnarreglugerðar nr. 269/1978, um viðvörunarkerfi í skólum, sé ekki framfylgt. Að því er varðar þá skóla sem ríkið kostar að öllu leyti eða að verulegu leyti, eins og framhaldsskólana þar sem ríkið borgar 60% af stofnkostnaði, þá hefur verið reynt að framkvæma þessi ákvæði brunavarnarreglugerðar og að láta þau verkefni hafa forgang sem krafist er endurbóta á þegar um er að ræða þá litlu óskiptu fjármuni sem menntmrn. hefur til framkvæmda við skóla, en að meginhluta til er þessum fjármunum varið á tiltekna skóla eins og hv. þm. þekkja. En það er í raun og veru mjög lítið um það að um sé að ræða almenna fjárveitingu t.d. í þessu skyni sem væri þó í

raun og veru eðlilegt svar við þeim vanda sem uppi er.
    Það er talið af ráðuneytinu að það hafi nokkuð áunnist í þessu efni á síðustu árum, en uppsetning brunavarnarkerfa af því tagi sem hér um ræðir kostar yfirleitt á bilinu 3 -- 5 millj. kr. á skóla. Á sl. hálfu ári, þ.e. seint á síðasta ári og framan af þessu, hefur verið komið upp viðvörunarkerfum í fimm heimavistum ríkisskóla og því verki verður haldið áfram. Sömuleiðis er vitað um að sveitarfélögin hafa auðvitað mörg töluvert gert til þess að koma upp viðvörunarkerfum í skólum samkvæmt tilmælum frá Brunamálastofnun ríkisins. Hins vegar er ekki ljóst, eins og fram kom í máli hæstv. félmrh., hvernig nákvæm staða þeirra mála er.
    Að lokum er rétt að geta þess að eftirlit með þessum málum hefur aukist verulega hin síðari missiri og komið hefur í ljós að margar eldri byggingar uppfylla ekki þær kröfur sem lög og reglugerðir mæla nú fyrir um. (Forseti hringir.)
    Ég hef þegar tæmt þann tíma sem ég hef, virðulegur forseti, en vil segja að lokum, áður en ég yfirgef þennan stól, þetta: Í fyrsta lagi er ljóst að það hefur verið gengið talsvert í þessi mál í seinni tíð. Í öðru lagi er ljóst að ástand þessara mála er hvergi nærri nógu gott og sums staðar mjög alvarlegt. Og í þriðja lagi þá er ástæða til þess að þakka fyrir það að fsp. er hér borin fram því að þingmenn hafa auðvitað það hlutverk að vera vakandi auga almenningsálitsins með framkvæmdarvaldinu og sjálfum sér líka. Og í framhaldi af því hef ég falið mínum embættismönnum að skrifa öllum skólastjórum grunnskóla bréf og óska eftir því að í samvinnu við slökkvilið á stöðunum o.s.frv. fari fram reglulegar brunaæfingar. Við teljum að það þurfi í
raun og veru ekki að kosta mikla fjármuni. Víða fara þessar æfingar þegar fram. En þetta er til að tryggja að það verði regla, auk þess sem má auðvitað koma málum þannig fyrir að heimsóknir frá slökkviliði verði reglulegar í skóla, ekki bara til að sinna brunaæfingum heldur líka af öðrum ástæðum.
    Í fjórða lagi vil ég svo segja það, virðulegi forseti, að hér rekumst við á almennan vanda sem snertir svokallaða verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga þar sem menn hafa reynt að bregða reglustiku og búa til það sem kallað er hrein verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. Það er fyrirbrigði sem ég er satt að segja ekkert mjög ánægður með. Ég tel t.d. að það væri langeðlilegast í máli eins og þessu að fjárveitingavaldið, Alþingi og sveitarfélögin efndu til sameiginlegs heildarátaks um það að taka á þessum málum alls staðar. Eins og þetta er núna er málið allt of dreift. Það er hjá Alþingi að hluta og hjá 210 sveitarfélögum að hluta. Það segir sig sjálft að niðurstaðan úr því verður ekki nægilega örugg.