Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Þormóð ramma
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Hreggviður Jónsson :
    Hæstv. forseti. Hér hefur verið til umræðu mál sem skiptir miklu. Ekki vegna þess um hvað það fjallar efnislega heldur hvernig það er borið upp í þingi og með hvaða hætti. Það er óvenjulegt og einsdæmi í þingsögunni að ráðherra skuli fá leyfi til að koma hér upp utan dagskrár eins og venjulegur þingmaður, og þó er hann ekki þingmaður eins og allir vita, hann er bara varaþingmaður. Það verður að segjast eins og er að sú túlkun á þingsköpum að ráðherra skuli geta hafið utandagskrárumræðu er alveg fráleit. Það er fráleit niðurstaða. Næst á maður von á að hæstv. fjmrh. komi með fyrirspurn til sjálfs sín og svari
henni svo sjálfur. Það verður næst. Þó það standi að ráðherra skuli hafa öll þau réttindi sem þingmenn hafa, þá er það ekki hugsað þannig að þeir skuli hafa þau sömu réttindi þegar þeir eru ráðherrar.
    Umræða utan dagskrár er ætluð fyrir þingmenn til að ræða við ráðherra. Ráðherra hefur önnur ráð. Hann getur óskað eftir því að flytja skýrslu til þingsins um málið og það er það sem hæstv. fjmrh. hefði getað gert. Þetta eru vítaverð vinnubrögð, bæði af hendi ráðherra og hæstv. forseta, að leyfa umræðuna með þessum hætti. Þar að auki verður að telja það óviðurkvæmilegt að hæstv. ráðherra ráðist á starfsmenn þingsins með þeim hætti sem hann hefur gert, með þeim ómerkilega málflutningi sem við höfum orðið vitni að og órökstuddum. Það er merkilegt að fjmrh. eins lands skuli komast upp með það að ráðast á ríkisendurskoðun með þeim hætti sem hér er gert án þess að verða að segja af sér því að það er náttúrlega ekki nema um tvær leiðir í þessu máli að ræða. Það er annaðhvort að ríkisendurskoðandi segi af sér eða fjmrh. Þingið hlýtur að verða að taka afstöðu um það hér og nú með atkvæðagreiðslu hvort það styður ríkisendurskoðanda eða fjmrh. Og þá verður fjmrh. að segja af sér því ég er viss um að vinnubrögð ríkisendurskoðanda standast að öllu leyti. Það er alveg ljóst hvernig þessi fjölmiðlaleikur fjmrh. hefur farið fram. Hann er auðvitað bara að reyna að klóra yfir skítinn. Hann er að reyna að koma þessu máli yfir á ríkisendurskoðanda.
    Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á þáltill. sem hv. 5. þm. Vesturl. og ég fluttum á síðasta þingi og náði ekki afgreiðslu um vinnubrögð endurskoðenda. Við sýndum fram á það í greinargerð með því þingskjali að vinnubrögð endurskoðenda geta verið afskaplega mismunandi og niðurstöður verið með ýmsum hætti. Það er alls ekki trygging fyrir því, þó hinir virtustu endurskoðendur skrifi um málið, að það komi endilega sama niðurstaða og annar, jafnvirtur endurskoðandi heldur fram á meðan ekki er til löggjöf sem bindur þetta með betri hætti en er í dag.
    En ég vil undirstrika það hér að framganga fjmrh. í þessu máli er ekki til sóma fyrir Alþingi Íslendinga. Þingmenn hljóta að taka afstöðu til þess hvernig eigi að bregðast við slíkri umræðu. Það hefur komið fram m.a. í máli hv. 1. þm. Norðurl. v. að hann ber ekki traust til fjmrh. eftir þessa umræðu, eftir þessa málsmeðferð. Þá hlýtur maður að spyrja sem svo: Hefur fjmrh. traust? Hefur hann traust hjá þinginu? Getur fjmrh. starfað áfram? Ég segi nei. Hann getur það ekki. Við hljótum að gera þá kröfu til þingsins að það hleypi ekki fjmrh. eða neinum öðrum ráðherrum í umræður utan dagskrár með þessum hætti vegna þess að þeir eiga ekki rétt á því. Hæstv. fjmrh. átti að biðja um að fá að flytja skýrslu.
    Salan á þessu fyrirtæki er náttúrlega önnur saga. Það að halda því fram, eins og hæstv. fjmrh. hefur gert, að salan á þessu fyrirtæki sé markaðssala er ómark, ekkert mark. Hún er ekkert nein markaðssala. Hún er bara gjöf úr gjafavörubúð fjmrh. til einhverra manna. Þessi sala hefði verið marktæk ef fyrirtækið hefði verið boðið til sölu á almennum markaði. Þá hefði reynt á það hvaða mat menn hefðu lagt á verðmæti fyrirtækisins með boðum í það. Það er hið eina raunverulega markaðshugtak sem getur ráðið. Þá hefðum við fengið að vita hvort fjmrh. hefði haft rétt fyrir sér eður ei. Ég hef þá trú að hefði þessi leið verið farin hefðum við fengið að sjá miklu hærri tilboð í þetta fyrirtæki og niðurstaðan hefði orðið sú að það hefði verið selt á miklu hærri fjárhæðir. Þetta eru staðreyndir málsins. Og það bull sem hæstv. fjmrh. hefur verið látinn komast upp með í þessari umræðu er náttúrlega einstætt. Það skýrir að sumu leyti af hverju hann er svo vanhæfur sem fjmrh. í heildina tekið. Hann er ekkert nema munnsöfnuðurinn, yfirlýsingar og ómerkilegheit. Þegar kemur fram vönduð skýrsla frá ríkisendurskoðanda hleypur hann í fjölmiðla til að kafkeyra það embætti með ómerkilegum yfirlýsingum. Þetta er auðvitað alveg óviðunandi. Hæstv. fjmrh. á að hafa vit á því að segja af sér. En það mætti segja mér að hann hefði það ekki.
    Ég vil undirstrika að það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Alþingi Íslendinga að slíkir ráðherrar sitji í embætti. Það hlýtur að vera áhyggjuefni. Og það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir lýðræðið í landinu að slík ríkisstjórn skuli sitja sem styður þvílíkan fjmrh. Það hlýtur að vera meginkrafa að menn beygi sig undir þá eftirlitsaðila sem þeir eiga lögum samkvæmt að fara eftir, sem er Ríkisendurskoðun. Menn geta ekki hlaupið í burtu frá því að Ríkisendurskoðun er eftirlitsaðili jafnt ráðherra sem þings. Sú niðurstaða sem þar kemur hlýtur að vera marktæk og það verður að taka mark á henni. Fjmrh. sem ekki tekur mark á niðurstöðu Ríkisendurskoðunar á að segja af sér. Þetta er varaventill sem er settur upp til þess að vernda þingið og vernda þjóðina fyrir því að ráðherrar geti leikið sér með eignir ríkisins eins og þeim sýnist.
    Þó að fjmrh. hafi ætlað að slá sér upp á þessari sölu í Norðurlandskjördæmi vestra til að sýna hvað hann er góður við Siglfirðinga, þá stenst það ekki nema það sé gert með þeim hætti að það sé opið öllum aðilum að kaupa slíkt fyrirtæki. Það er hin eina rétta leið. Sú sorglega misnotkun hæstv. fjmrh. á þinginu til að ráðast á Ríkisendurskoðun og ekki síður sú sorglega misnotkun á þingsköpum til að fara hér utan dagskrár er vítaverð. Það verður að koma í veg fyrir það ofbeldi sem hér hefur verið framið af hálfu ráðherra og forseta þingsins með þeim hætti að honum skuli leyfast að fara hér í utandagskrárumræðu með þessum hætti. Utandagskrárumræður hafa aldrei verið ætlaðar fyrir ráðherra. Þær eru ætlaðar fyrir þingmenn, það er réttur þeirra til að geta farið í þær, til að geta talað við ráðherrana. Ráðherrarnir geta flutt skýrslu samkvæmt þingsköpum og það eiga þeir að gera. Og næst verður það svo að hæstv. fjmrh. kemur með fyrirspurn á sjálfan sig og svarar henni sjálfur og hvar verður þingið statt þá? Verður þá ekki bara eintal ráðherranna í salnum? Þeir verða bara með fyrirspurnir á sjálfa sig og ég tala nú ekki um það að níu ráðherrar sem eru líka þingmenn gætu óskað eftir skýrslum um mál. Það væri kannski alveg nýjung í þingsköpunum líka. Þá geta þeir á ríkisstjórnarfundum óskað eftir skýrslum um hin og þessi mál og lagt þær fram. En allir sem þykjast vita betur vita að þau ákvæði þingskapanna eru ætluð til þess að þingmenn geti fengið fram upplýsingar í þinginu. Ráðherrar hafa alla möguleika á því sjálfir. Þess vegna hlýtur að verða að taka á þessum hlutum og það er vítavert að forsetar þingsins skulu hafa leyft þessa umræðu.