Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Þormóð ramma
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Kristinn Pétursson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Ég ætla að leyfa mér að mótmæla þessum úrskurði. Hæstv. ráðherra hefur leyfi til að taka þátt í umræðum, sagði hæstv. forseti. Hæstv. ráðherra hefur hvergi leyfi samkvæmt þingsköpum eða öðrum þeim reglum, sem ég hef gluggað í, til að hefja hér umræðu utan dagskrár. Það stendur.