Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Þormóð ramma
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Hreggviður Jónsson (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Vegna úrskurðar yðar varðandi þingsköp og tilvitnun í 51. gr. stjórnarskrárinnar, þá er það rétt að þeir hafa sömu réttindi og þingmenn. En þá liggur það ljóst fyrir eftir þennan úrskurð að hæstv. ráðherrar hafa einnig leyfi til að leggja fram fyrirspurnir til sjálfs sín og svara þeim.