Páll Pétursson :
Frú forseti. Þessar umræður hafa leitt ýmislegt í ljós og skýrt málið töluvert. Ég held að það velkist enginn í þessum sal í vafa um það að fjmrh. hefur gert nokkuð sem er óverjandi. Þrátt fyrir það að fjmrh. hljóti að vita það sjálfur að svona nokkuð er ekki hægt að verja, þá vegna skapbresta sinna ber hann enn höfðinu við steininn. Þó er hann heldur að skána því að ég kunni betur við tóninn í ræðu ráðherra númer tvö, þeirri sem hann flutti í fyrradag heldur en í upphafsræðunni. Á mánudaginn, í upphafsræðunni var þessi örvæntingarfulla vörn hans fólgin í því að ráðast með fólsku á Ríkisendurskoðun. Hann flutti ræðu með skrifaðri uppistöðu sem hann lét dreifa hér á borð þingmanna.
Hendurnar voru Esaús en röddin Jakobs. Hendurnar voru náttúrlega Svanfríðar þó að röddin væri ráðherrans.
Hann vitnaði í sérfræðinga, Ólaf Nilsson og Sigurð B. Stefánsson. Sigurður B. Stefánsson veðraðist nú svo upp að hann fór að vitna í Alþýðublaðinu og sagði að Þormóður rammi væri einskis virði, eftir að ráðherrann var búinn að vitna svona í hann og tala svona vel um hann. Sigurður B. Stefánsson er að vísu mikill hugsjónamaður en hann gengur með þá þráhyggju að allur ríkisrekstur sé frá djöflinum og reyndar allt sé nú frekar lítils virði sem er ofan við Elliðaár. Í fyrradag fann svo ráðherrann enn þá einn sérfræðinginn. Það var Jón Sæmundur Sigurjónsson, hv. 5. þm. Norðurl. v. Hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson er glaðsinna og tekur það ábyggilega ekkert nærri sér þó að fjmrh. skopist dálítið að honum fjarstöddum í ræðustól hér á Alþingi. Hv. þm. Jón Sæmundur stendur það alveg af sér þó að hann sé gerður hlægilegur stundarkorn á síðdegisfundi.
Grein Jóns Sæmundar Sigurjónssonar í Morgunblaðinu um daginn sagði mér ekkert annað en það að krataforingjann Kristján Möller á Siglufirði langar til að vera forseti bæjarstjórnar út þetta kjörtímabil. Jón Sæmundur stendur þetta af sér þó að fjmrh. vefji hann að sér með þeim hætti sem hann gerði hér úr ræðustól.
Mér finnst að ráðherrann hefði heldur átt að nefna sína raunverulegu ráðgjafa í þessu máli, þau Óttar Proppé, Svanfríði Jónasdóttur og Jóhann Antonsson. Þau ákváðu að koma þessu fyrirtæki í hendur ákveðinnar fjölskyldu á Siglufirði. Ráðherrann þykist ekkert vita um það að þarna hafi verið um alþýðubandalagsfólk að ræða. Alþýðubandalagsfólk á Siglufirði er yfirleitt undantekningarlítið ágætisfólk. Viðkomandi menn eru fulltrúar þess í bæjarstjórn Siglufjarðar. Ráðherrann segist aldrei hafa séð þetta fólk. Kannski Óttar Proppé hafi aldrei séð það heldur? Hann var bæjarstjóri um tíma á Siglufirði fyrir atbeina Alþb. Kannski Ragnar Arnalds hafi aldrei orðið var við það heldur?
Ragnar Arnalds tók nú reyndar af öll tvímæli því hann réðist í það stórræði að hann ómakaði sig í ræðustól í fyrradag. Það þykir mér merki þess að
hann þekki þetta fólk og hafi til þess artir, úr því að hann gaf sér tíma til þess að taka hér til máls. Það er langt gengið þegar hann sér sig til þess knúinn að skipta sér af málefnum Norðurlandskjördæmis vestra. Hann hefur að vísu svarið þess eið í Þjóðviljanum að hann sé ekki að skrifa leikrit núna, ekki sem hann fær borgað fyrir sem leikrit, enda sé nú öðru að sinna því nú þarf hann að verja sig í kosningabaráttu.
Þetta er náttúrlega nægileg sönnun þess út af fyrir sig að þetta mál er svo rammlega flokkspólitískt að það dugði til þess að vekja Ragnar Arnalds. Hann hefur verið eins og björn í híði allt þetta kjörtímabil en allt í einu vaknar björninn og fer að skipta sér af pólitík. Og hann er meira að segja farinn að senda mér tóninn, ekki einasta í Þjóðviljanum heldur líka er hann búinn að skrifa tvisvar sinnum í blað þeirra alþýðubandalagsmanna á Norðurlandi vestra og guð má vita hvað kemur næst. Hann var ekki alveg búinn að átta sig eftir svefninn því hann fór að jafna sölu Þormóðs ramma við tvo gerninga fjmrh. í fortíðinni í Norðurlandskjördæmi vestra. Í fyrsta lagi jafnaði hann þessu til sölu á gjaldþrotabúi graskögglaverksmiðjunnar í Vallhólmi sem var ekki með nokkru móti sambærilegt. Þar var gersamlega gjaldþrota fyrirtæki og stöðvað fyrir löngu sett í gang aftur með þeim hætti að fjmrh. kom eignarhaldi þess eða Kaupfélag Skagfirðinga skarst í leikinn og kom þessu fyrirtæki góðu heilli á fætur aftur. Að vísu tapaði ríkissjóður þarna verulegum fjármunum en þeir voru tapaðir hvort sem var því að fyrirtækið var gjaldþrota. Svo fór hv. 4. þm. Norðurl. v. að rifja upp söluna á Sigló hf., þ.e. Lagmetisiðju ríkisins á Siglufirði og sagði að hún væri sambærileg. Það vildi svo til að 15. maí 1984 staðfesti forseti Íslands Vigdís Finnbogadóttir lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að selja Lagmetisiðju ríkisins á Siglufirði.
Ég hef ekki orðið var við það að Alþingi hafi samþykkt nein lög um sölu hlutabréfa í Þormóði ramma. Hvernig var svo verðið á hlutabréfum í Sigló fundið? Það var fundið með því að nefnd manna, og ég ætla að rifja upp hverjir það voru sem ákváðu hvað verðið skyldi vera. Það voru Halldór Kristjánsson, skrifstofustjóri í iðnrn., Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður og Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggðastofnunar. Þessa menn fékk þáv. iðnrh. Sverrir Hermannsson til þess að segja til um hvað væri sanngjarnt verð fyrir fyrirtækið. Ég tel að þarna sé um algerlega ósambærilega hluti að ræða. Það má að vísu bæta því við að ríkið fékk aldrei neitt borgað fyrir þessi hlutabréf sem þarna voru seld en það er önnur saga og getur vel verið að mér gefist tækifæri til þess að rifja upp afskipti hæstv. fjmrh. af því fyrirtæki líka því að þau eru sannarlega með þeim hætti að ástæða er til að halda þeim til haga.
Ragnar Arnalds, hv. 4. þm. Norðurl. v., spurði okkur Pálma Jónsson hvort við hefðum viljað selja Siglfirðingum hlutabréfin í Þormóði ramma fyrir helmingi hærra verð. Ég get svarað því fyrir mig að heppilegast hefði ég talið að selja ekki þetta fyrirtæki og halda því í óbreyttu rekstrarformi. Það hafði gefist vel
og engin ástæða til þess að selja þetta fyrirtæki, allra síst af því að það var orðið traust og gott. Því það var búið að lagfæra þess efnahag og skuldastöðu og fyrirtækið var komið algerlega fyrir vind og farið að skila hagnaði, 120 millj. á síðasta ári. Af þeirri ástæðu lá ekkert á og var engin ástæða fyrir ríkið að selja það. Heimamenn undu því allflestir vel að ríkið ætti þetta fyrirtæki. Ef á annað borð átti að selja þetta fyrirtæki, þá var eðlilegra að gefa Siglfirðingum almennt tækifæri til þess að kaupa það og reka, ekki að selja í pukri einni fjölskyldu þetta fjöregg Siglufjarðar.
Ég hefði talið heppilegra að fjmrh. hefði staðið siðlega að þessari sölu. Auglýst fyrirtækið til sölu, hve mikið af hlutabréfum hann vildi selja o.s.frv. Hann gat bundið það skilyrðum eins og hann vildi. Hann gat bundið það þeim skilyrðum að hann tæki ekki við tilboðum nema frá Siglfirðingum. Ég er að vísu þeirrar skoðunar að Siglufirði hefði ekkert gert það til þó eitthvert fjármagn hefði komið utan Siglufjarðar til þess að styrkja fyrirtækið og efnahagslíf í Siglufirði og atvinnulíf. Ég sé ekki að það hefði verið neitt skaðræði ef eitthvert útgerðarfélag eða fiskvinnslufyrirtæki t.d. hefði viljað kaupa hluta í þessu fyrirtæki, enda hefði mátt setja skilyrði um að kvótinn héldist í bænum og fyrirtækið starfaði áfram af fullum þrótti í Siglufirði. Ef átti að binda sig við það að selja einungis Siglfirðingum, þá var það líka hægt en þá átti að gefa öllum Siglfirðingum kost á að kaupa og gera þeim kunnugt um að þetta stæði til.
Mér var það ekki ljóst fyrr en eftir fund með fjmrh. 19. des. að honum væri alvara með að selja þetta fyrirtæki. Ég trúði þessu ekki fyrr. Siglfirðingum var heldur ekki ljóst að hann hygðist selja það með þeim hætti sem raun varð á. Menn bara trúðu þessu ekki upp á hann.
Jafnræðis meðal Siglfirðinga átti í öllu falli að gæta og þá hefði kannski fundist út hvað væri skynsamlegt verð fyrir þetta fyrirtæki. Óðagotið, sem fjmrh. kaus að viðhafa við þessa eignayfirtöku, er náttúrlega sönnun þess að þarna var um óhreint mjöl í pokahorninu að ræða. Þarna var um gjörning að ræða sem ekki þoldi dagsljósið og sem varð að drífa áfram. Gjörning sem varð að gerast í hvelli og ekki var hægt að draga í nokkra daga. Það var ekki hægt að gefa öðrum kost á því að komast að málinu. Það varð að keyra þetta áfram í óðagoti til þess að aðrir en fjölskyldan kæmust ekki inn í þetta mál. Þetta eru ,,gangstera`` vinnubrögð en ekki eðlilegir viðskiptahættir.
Það hefur farið mikill tími í það hér að deila um verðmæti þessa fyrirtækis. Ég kemst ekki hjá því að fara örfáum orðum um það, þingheimi og þjóðinni allri til upplýsingar. Aflakvóti þessa fyrirtækis er 6050 tonn þorskígilda. Nú deila menn um það hvort kvóti sé eign eða ekki en hann er til ráðstöfunar hjá þessu fyrirtæki. Það er hægt að selja hann ef fyrirtækinu býður svo við að horfa, að hluta til eða jafnvel allan, vegna þess að hann er alls ekki samkvæmt samningnum við familíuna bundinn við Siglufjörð. Það segir nefnilega í samningstextanum, með leyfi forseta:
,,Á sama hátt lýsa kaupendur því yfir í 5. gr. að þeir muni viðhalda öflugum rekstri í hinu sameinaða félagi í Siglufirði. Þeir skuldbinda sig til þess að nýta aflakvóta sem fylgir skipum félagsins í þágu útgerðar og vinnslu í Siglufirði. Ákvæði þetta hindrar þó ekki eðlilega nýtingu aflakvóta með hliðstæðum hætti og gert hefur verið hjá félaginu á undanförnum árum né möguleika þess til að breyta samsetningu á skipastól félagsins.``
Ákvæði þetta hindrar þó ekki eðlilega nýtingu aflakvóta með hliðstæðum hætti og verið hefur. --- Þannig er að þetta fyrirtæki hefur í gegnum árin hvað eftir annað selt verulegan kvóta frá Siglufirði. Það er ekkert sem hindrar svilana í að gera slíkt hið sama. Það er nefnilega ekkert hald í þessu ákvæði, sem ráðherrann hefur verið að reyna að gera mál úr hér í ræðustól og á opinberum vettvangi annars staðar, um að það væri eitthvað verið að hugsa um hagsmuni Siglufjarðar. Það var svo sannarlega ekki gert í þessu sambandi. Söluverð 6050 tonna aflakvóta er mér sagt að hafi verið um það leyti sem þessi gjörningur var gerður á frjálsum markaði í kringum 900 millj. Brunabótamat fasteigna og tækja fyrirtækisins var í kringum 700 millj. Tryggingarverð skipafélagsins var 521 millj. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar á bls. 19 stendur:
,,Þá ber þess að geta að félagið á ónýttan skattalegan tapsfrádrátt, sem í árslok 1989 var 611,2 millj. kr. Eftir að þessi frádráttarheimild hefur verið hækkuð skv. verðbreytingarstuðli stóð hún í 728,3 millj. kr. í árslok 1990.``
Það kann nú að vera að Samherja hf. eða Skagstrending t.d. hefði munað í að eiga svolítinn hlut í þessu skattahagræði.
Hvað gjalda svo svilarnir fyrir Þormóð ramma hf.? Og nú ætla ég að biðja þingheim að hlusta. Kaupverð á 58,17% hlutafjár í Þormóði ramma var 87,3 millj., þetta sem þeir skrifuðu á blaðið og kölluðu kaupverð, 87,3 millj. Þeir borguðu við undirskrift 7,5 millj. Þeir skrifuðu upp á víxil með gjalddaga 1. des. 1991 upp á aðrar 7,5 millj. Þarna eru sem sagt 15 millj. sem þeir þurfa að gjalda fyrir þetta gilli á árinu. Á fyrra ári græddi Þormóður rammi 120 millj. og við skulum vona að þeim takist að hagnast í ár líka. Þeir skrifuðu upp á 5 millj. kr. skuldabréf til þriggja ára með sjálfskuldarábyrgð og 4,3% vöxtum. Þarna voru sem sagt komnar í púkkið 20 millj. samtals sem þeir að vísu þurfa að greiða í þremur lotum. Þá er eftir skuldabréf upp á 67 millj. kr. til 12 ára með 4,3% vöxtum. Af þessu skuldabréfi eru tíu afborganir. Sú fyrsta er reyndar ekki fyrr en 1. okt. 1992, þ.e. þetta bréf er afborgunarlaust í nærri tvö ár. Tryggingar þessa bréfs eru tvenns konar. Þær eru ekki persónulegar einkaeignir þeirra svilanna. 27% af þessum 67 millj. er sjálfskuldarábyrgð Jökla hf., dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, samtals 18 millj. Afgangurinn, 49 millj., er með handveðstryggingu í hlutabréfum í félaginu. Inni í eignarmati Þormóðs ramma, og þar bítur nú ráðherrann höfuðið af skömminni, er ekki eignarhluti Þormóðs ramma í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sem mér er sagt að sé
a.m.k. 15 millj. virði. Þetta er nú bara smáaurar sem jafngildir þá því sem þeir þurfa að svara út í peningum þangað til 1992.
Skuldir Þormóðs ramma voru 724 millj. að frádregnum veltufjármunum upp á 170 millj. Skuldir að frádregnum veltufjármunum í árslok 1990 voru sem sagt 554 millj.
Í stuttu máli: Fyrir 7,5 millj. kemst þessi fjölskylda yfir allar eignir Þormóðs ramma með fullum yfirráðum yfir eignum Þormóðs ramma, fasteignum og tækjum að brunabótamati 700 millj., þrjá togara sem tryggðir eru á 521 millj., kvóta upp á 6050 tonn, þorskígildi fyrir 900 millj. og skattalegan tapsfrádrátt sem umreiknaður með verðbreytingarstuðli stóð í árslok 1990 í 728,3 millj. Yfirráð og eignarhald fyrirtækisins fékkst fyrir 7,5 millj. kr. greiðslu. Síðan þurfa þeir að borga víxil upp á 7,5 millj. 1. des. 1991 eftir að hafa ráðskast með fyrirtækið í 11 mánuði og síðan þurfa þeir að borga 5 millj. kr. skuldabréf að þremur árum liðnum á 4,3% vöxtum. Þetta er það sem familían er ábyrg fyrir.
Þeir eignast meiri hluta og full yfirráð í Þormóði ramma fyrir 20 millj. 7,5 millj. í haust og 5 millj. að þremur árum liðnum. Þetta er svona eins og þegar fjölskyldur eru að kaupa sér einbýlishús. Þetta er svipað sem þeir þurfa að leggja að sér. Aðrir eru ábyrgir fyrir restinni. Jöklar hf. fyrir 18 millj. og 67,3 millj. og restin með veði í bréfum félagsins. Þetta eru nú viðskipti í lagi og það er von að hæstv. fjmrh. sé stoltur. Það er rétt að þjóðin geri sér grein fyrir þessu. Fyrir 20 millj., þar af bara 7,5 millj. í útborgun, öðlast familían meirihlutaeign og full yfirráð yfir Þormóði ramma og eignum þess á sjó og landi. Þetta voru nú kjörin.
Þetta var fyrirtæki sem skilaði 120 millj. kr. hagnaði á sl. ári. Og svo dirfist fjmrh. að ráðast á Ríkisendurskoðun fyrir það að gagnrýna þessa sölu. Ríkisendurskoðun hefur sannað sitt mál og stendur náttúrlega alveg teinrétt eftir jafnvel þó að fjmrh. leiði hvert sannleiksvitnið af öðru, nú síðast Jón Sæmund Sigurjónsson, til hjálpar sér í þessari krísu.
Niðurstaða málsins er þessi, frú forseti: Fjmrh. misbeitti valdi sínu til að auðga og efla til áhrifa fjölskyldu á Siglufirði, fulltrúa Alþb. í bæjarstjórn Siglufjarðar. Familían hefur náð meirihlutaeign og fullum yfirráðum á fjöreggi Siglufjarðar fyrir 7,5 millj. kr. og til þessa hefur fjölskyldan notið atbeina fyrrv. bæjarstjóra í Siglufirði, Óttars Proppés, síðar ritstjóra Þjóðviljans. Óttar er gamall Dalvíkingur. Það eru líka hinir tveir alþýðubandalagsmennirnir sem stóðu að ,,kúppinu``, Svanfríður Jónasdóttir, aðstoðarmaður ráðherrans, og Jóhann Antonsson sem er bréfberi. Segi menn svo að alþýðubandalagsmenn í Eyjafjarðarprófastsdæmi hjálpi ekki hver öðrum á neyðarstundum. Þetta framferði ver þingmaður Alþb. í Norðurl. v., Ragnar Arnalds, með mestu velþóknun, eða a.m.k. svona með munnherkjum, því hann er nú ekki alveg siðblindur. En hann metur flokkshagsmuni Alþb. hærra heldur en siðferðið í þessu tilfelli.
Ráðherrann gerði sig sem sagt sekan um misferli
í embættisfærslu. Fjöregg Siglfirðinga er komið í hendur svilanna með siðlausum hætti. Örlög Siglufjarðar eru nú í þeirra höndum. Því miður er ekki útilit fyrir að vel fari. Og hver verður svo framtíð Siglufjarðar undir þessu ,,regímenti``? Ég óttast uppgjöf, vonleysi og fólksflótta. Það er ekkert álitlegt fyrir fólk í Siglufirði að eiga að búa við atvinnuöryggi Runólfs Birgissonar, fyrrv. skrifstofustjóra félagsins, sem var búinn að vera skrifstofustjóri þess við góðan orðstír, ég man ekki hvað, ég held í sjö ár, og rækti sitt embætti gjörsamlega óaðfinnanlega. Rekinn umsvifalaust án allra saka, umsvifalaust bara eftir geðþótta hinna nýju herra.
Það er e.t.v. eitthvert hald í bakábyrgð Jökla og spá mín er sú að eftir þrjú til fjögur ár verði Siglufjörður kominn í eign Jökla hf. og það eru heldur ekki kræsileg örlög fyrir byggðarlagið. Fjmrh. skal hafa skömm fyrir aðför sína að hagsmunum Siglufjarðar og þeir munu ekki gleyma meðhöndlan hans á lífshagsmunum þess byggðarlags.