Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Þormóð ramma
Fimmtudaginn 14. febrúar 1991


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Það er ávallt nokkuð skemmtilegt þegar hv. þm. Páll Pétursson kemur hér með tilþrifum í ræðustólinn og reiðir ekki alltaf sannleikann í mörgum pokum. (Gripið fram í.) Að hv. þm. Páll Pétursson reiddi ekki sannleikann í mörgum pokum? Já, já, það var fjmrh. sem sagði það. Við höfum tamið okkur alveg sérstakan stíl, ég og hv. þm. Páll Pétursson, í þessum umræðum eins og hv. þm. Pálmi Jónsson heyrði á ræðu hv. þm. Páls Péturssonar og ætla ég nú þó ekki að fara að kalla hv. þm. Pál Pétursson ,,gangster`` eins og hann kallaði hér áðan fjmrh. í ræðustól og var ekkert víttur fyrir það af virðulegum forseta. Finnst mér þetta sýna mikið umburðarlyndi og frjálsræði í þingsköpum. ( Gripið fram í: Það vissu þetta allir.) Já, ekki bætir hann nú um betur. Má segja að þó að þeir hafi nú ekki alltaf verið vinir, hv. þm. Páll Pétursson og Guðmundur G. Þórarinsson, eins og alkunnugt er í Framsfl. fyrr og síðar, er þó greinilegt að hv. þm. Páll Pétursson hefur tamið sér það orðfæri sem hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson hefur talið réttast að viðhafa um mótframbjóðanda sinn í Framsfl. í Reykjavík, Finn Ingólfsson, og vinnubrögð hans. Ég hélt að þeir framsóknarmenn hefðu þetta orðfæri kannski bara til heimabrúks --- og hefur umræðan í þeim flokki greinilega versnað mjög frá því að ég var þar á bæ --- en kæmu ekki með það hér inn í þingsalina.
    En það er alveg rétt hjá hv. þm. Pálma Jónssyni að ég fór hér í fyrradag ekki í langa ræðu til að fjalla um einstök efnisatriði í ræðum hans eða hv. þm. Páls Péturssonar. Ég taldi það ekki þjóna neinum sérstökum tilgangi. Ég get tekið sem dæmi: Hv. þm. Páll Pétursson fullyrti það hér í sinni ræðu að bæjarstjórnin hefði mótmælt vinnubrögðum mínum við sölu á Þormóði ramma. Þetta sagði hv. þm. Páll Pétursson. Ég held að bæjarstjórnin hafi aldrei mótmælt því. Mér er ekki kunnugt um það að hún hafi samþykkt eina einustu mótmælaorðsendingu út af þessu máli. Væri fróðlegt ef hv. þm. Páll Pétursson eða Pálmi Jónsson gætu reitt þá mótmælayfirlýsingu fram. En engu að síður stóð hv. þm. Páll Pétursson hér í ræðustólnum og sagði að bæjarstjórnin hefði mótmælt vinnubrögðum mínum við sölu á Þormóði ramma. Ég hef verið í náinni samvinnu við bæjarstjórnina á Siglufirði og ég veit ekki til þess að hún hafi gert neina slíka samþykkt. Væri fróðlegt að hún væri lesin upp hér af þeim þingmönnum sem hafa fullyrt að bæjarstjórnin hafi mótmælt vinnubrögðunum við söluna á Þormóði ramma.
    Hv. þm. Páll Pétursson lagði líka aðallega út af því í sinni ræðu, það var svona ,,Leitmotiv``, ef ég má nota það orðalag, í hans fyrri ræðu hér, að þetta Þormóðs ramma mál væri afrakstur af fundi sem ég og hæstv. utanrrh. hefðum haldið á Siglufirði eins og frægt hefði verið. Ég get upplýst það hér að ég og hæstv. utanrrh. höfum aldrei haldið fund á Siglufirði saman, hvað þá heldur að slíkur fundur hafi verið frægur. ( PP: Kannski hvergi haldið fundi saman?) Jú,

jú, hv. þm., við höfum haldið fundi saman á nokkrum stöðum en aldrei á Siglufirði. Að byggja þannig allan málflutninginn upp á því að þetta mál væri sprottið upp úr einhverjum fundi sem ég og hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson, núv. hæstv. utanrrh., áttum að hafa haldið á Siglufirði er svona álíka út í hött og margt annað í þessum málflutningi. En ég taldi það ekki þjóna neinum sérstökum tilgangi að fara yfir ræðurnar með þessum hætti og tel það heldur ekki þjóna neinum sérstökum tilgangi í þessari umræðu.
    Ég tel það heldur ekki þjóna neinum sérstökum tilgangi að fara að leggja út af því að hv. þm. Páll Pétursson fór mikinn hér í ræðustól áðan með því að verðleggja Þormóð ramma á þeim grundvelli að kvótinn væri seldur á frjálsum markaði. Með því að segja að það eigi að leggja til grundvallar verð sem fengið er þegar kvótinn er seldur á frjálsum markaði, þá er hv. þm. að segja að það hafi átt að opna það að selja allan kvótann burt. Og svo heldur hann áfram að verðleggja með því að bæta við verði á togurum og verði á tækjum og byggingum. En það vita auðvitað allir að þegar búið er að selja kvótann frá Þormóði ramma burt, þá eru togararnir, tækin og frystihúsin nánast einskis virði. Þannig að ég ætla ekkert að elta ólar við reikningsdæmi af þessu tagi.
    Ég ætla heldur ekki að elta neitt sérstaklega ólar við það sem hann sagði um hv. þm. Jón Sæmund Sigurjónsson þó að mér fyndist það ekkert sérstaklega smekklegt að standa hér og hæðast að hv. þm. Jóni Sæmundi Sigurjónssyni. Hvers vegna ekki? Vegna þess að hv. þm. Páll Pétursson mat hv. þm. Jón Sæmund Sigurjónsson svo mikils að hann lagði eindregið að honum að vera með sér á beiðninni um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Svo mikils virði fannst hv. þm. Páli Péturssyni að hafa hv. þm. Jón Sæmund Sigurjónsson með sér í för að hann lagði mikið á sig til þess að fá hv. þm. til að vera með sér á skýrslubeiðninni. En þegar það svo gerist að hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson hefur manndóm til þess að lýsa því yfir að hann taki meira mark á þeirri ráðgjöf sem Ólafur Nilsson hefur látið í té heldur en skýrslu Ríkisendurskoðunar og gagnrýnir skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem hann bað sjálfur um, með þeim hætti að hún væri ekki í neinum tengslum við raunveruleikann, þá er allt í einu komið hér upp í ræðustólinn af hv. þm. Páli Péturssyni og jafnvel af hv. þm. Pálma Jónssyni og farið að gera grín að þessum félaga þeirra úr Norðurl. v., hv. þm. Jóni Sæmundi Sigurjónssyni, af því að nú passar það ekki lengur í áróðurskramið að telja hann heiðursmann.
    Það getur vel verið að mönnum finnist ýmislegt um það sem ég hef sagt í þessu máli. En ég hef tekið eftir því að ýmsir af þeim, m.a. hv. þm. Geir Haarde og hv. þm. Þorsteinn Pálsson, sem hafa haft nokkuð stór orð um minn málflutning í þessu máli, hafa algerlega skotið sér fram hjá þeirri staðreynd að einn af þeim fjórum þingmönnum sem bað um skýrslu Ríkisendurskoðunar hefur lýst því yfir opinberlega, orðrétt, með leyfi forseta: ,,Það veldur því nokkrum vonbrigðum að Ríkisendurskoðun velur könnun sinni forsendur sem koma Þormóði ramma lítið við.`` Sá þingmaður sem bað um skýrsluna hefur dæmt skýrsluna á þann veg að forsendurnar sem Ríkisendurskoðun gefur sér í skýrslunni komi fyrirtækinu lítið við.
    Ég verð satt að segja að láta það koma fram hér að þegar þingmenn eru að tala um samskipti þingsins við Ríkisendurskoðun, þá er það auðvitað alveg rétt að menn geta sagt ýmislegt um mat fjmrh. En hitt finnst mér öllu alvarlegra að einn af þeim þingmönnum sem báðu um skýrsluna hefur kveðið upp þann dóm yfir skýrslunni að forsendurnar sem Ríkisendurskoðun gaf sér komi Þormóði ramma lítið við. Og það sem meira er, að þessi samþingsmaður hv. þm. Páls Péturssonar og hv. þm. Pálma Jónssonar, Jón Sæmundur Sigurjónsson, hefur lýst því yfir opinberlega að þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar liggur fyrir og þegar skýrsla Ólafs Nilssonar liggur fyrir, þá kjósi hann að taka meira mark á skýrslu Ólafs Nilssonar. Og þetta er einn af þingmönnunum sem báðu um skýrslu Ríkisendurskoðunar. Hann ætti þess vegna að vera nokkuð marktækur dómari í þessu máli því að hann er upphafsmaður þess.
    Hv. þm. Páll Pétursson og hv. þm. Pálmi Jónsson mátu þennan þingmann svo mikils að þeir vildu hafa hann með sér í þessu máli. En þegar hann dregur sjálfstæða, heiðarlega ályktun sem passar ekki í áróðurskramið hjá þessum þingmönnum, þá koma þeir hér upp og gera grín að honum. Þetta tel ég ekki vera traustvekjandi og reyndar ekki mjög þingleg vinnubrögð. Ef þingmenn eru að biðja félaga sína í þinginu um að óska sameiginlega eftir skýrslu frá Ríkisendurskoðun og það kemur í ljós að í þessum fjögurra manna hópi eru mjög skiptar skoðanir um þessa skýrslu --- einn af skýrslubeiðendum kýs að taka ekki mark á skýrslunni, þrír hins vegar gera það --- þá fyndist mér efnislega nær að skoða það með hvaða hætti þingið eigi þá að ræða um málið áfram og þeir fjórmenningarnir innbyrðis sem báðu um skýrsluna því að enginn af þeim er öðrum rétthærri í því máli. Þeir eru allir jafnréttháir í því máli. En það hefur bara komið í ljós að það er grundvallarágreiningur á milli þeirra um skýrsluna.
    Þess vegna finnst mér út frá þeim almennu sjónarmiðum sem hér hafa komið fram í umræðunni fæstir hafa talað um þetta kjarnaatriði í málinu, að hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson hefur satt að segja tekið dýpra í árinni og dæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar harðar en fjmrh. hefur gert. Það er staðreynd málsins. Einn af skýrslubeiðendum, hv. þm. Jón Sæmundur Sigurjónsson, hefur dæmt skýrsluna harðar en ég hef gert. Því að gagnstætt því sem sagt hefur verið í þessum umræðum, þá hef ég ekki dregið fram niðurstöðu sem er áfellisdómur yfir Ríkisendurskoðun. Það er bara alls ekki rétt að ég hafi gert það. Ég hef eingöngu sagt það í þessum umræðum að það sé ljóst að aðrir sérfræðingar, viðurkenndir sérfræðingar á þessu sviði, hafi komist að annarri niðurstöðu.
    Ég er þess vegna alveg sammála því sem hv. þm. Geir Haarde sagði hér í sinni ræðu, og var kjarninn í hans ræðu, að aðalatriði í þessu máli væri það að

menn gætu haft mismunandi mat á virði hlutabréfanna og virði fyrirtækisins Þormóðs ramma. Það er alveg rétt, hv. þm. Það er kjarni málsins. Það er það sem ég hef sagt allan tímann. Það er það sem ég sagði í minni ræðu. Vandinn er hins vegar sá að í fyrri skýrslu sinni tók Ríkisendurskoðun ekki þann pól í hæðina heldur þvert á móti lagði málin þannig fram að það væri bara ein niðurstaða sem gæti verið gild. Það væru ekki mismunandi forsendur sem kæmu til greina. Og eins og ég sagði í minni ræðu og hef sagt annars staðar: Ef Ríkisendurskoðun hefði lagt málin þannig fyrir að segja: Það koma ýmsar forsendur til greina í þessu máli, rakið þær, gefið síðan ýmsa valkosti byggða á þessum forsendum þar sem einn valkosturinn væri 300 millj. og kannski enn meira, en aðrir valkostir sýndir líka í skýrslunni byggðir á öðrum forsendum sem koma vissulega til álita,
þá hefði ég ekki gert neina athugasemd við það, enga. Enda kemur fram í seinni skýrslu Ríkisendurskoðunar það sjónarmið að við mat af þessu tagi þurfi menn að gefa sér mismunandi forsendur og það geti verið umdeilanlegt hverjar þær forsendur eigi að vera. Þetta er kjarni málsins. Í fyrri skýrslunni voru ekki reifaðar neinar mismunandi forsendur og engin umfjöllun um það að þetta væri mat þar sem mismunandi kostir kæmu til greina. Þess vegna er efnislega enginn ágreiningur milli mín og hv. þm. Geirs Haarde í þessu máli hvað þetta snertir, enginn.
    Í þessum umræðum hefur einnig komið fram hjá hv. þm. Þorsteini Pálssyni og Geir Haarde að fjmrh. hafi átt að láta hinn almenna markað ráða verðinu á fyrirtækinu. Hv. þm. Þorsteinn Pálsson segir að það hafi átt að bjóða fyrirtækið út á almennum markaði og dregur síðan þá ályktun að of lágt verð hafi fengist fyrir fyrirtækið. Þetta er auðvitað sjónarmið út af fyrir sig. En því hefur aldrei verið leynt í þessu máli að fjmrh. tók þá pólitísku ákvörðun að binda söluna við Siglfirðinga. Ég hef aldrei leynt því að þar með væri verið að lækka hugsanlegt verð á fyrirtækinu en rök mín voru þau að fjmrh. hlyti að þurfa að hugsa um atvinnuhagsmuni Siglfirðinga og framtíð byggðarlagsins, eins og hér hefur komið fram í öðrum ræðum. Ef það er skoðun hv. þm. Þorsteins Pálssonar að það hafi átt að selja veiðiheimildirnar burtu frá Siglufirði og hver sem var hefði átt að geta boðið í fyrirtækið, eins og hann sagði hér í sinni ræðu, þá er það auðvitað sjónarmið út af fyrir sig. ( ÞP: Útúrsnúningur.) Nei, það er enginn útúrsnúningur vegna þess að hv. þm. sagði þetta alveg skýrt og greinilega. Það átti að bjóða fyrirtækið út á almennum markaði. (Gripið fram í.) Ég ætla ekkert að tala hér við þingmenn úr ræðustól og hv. þm. Þorsteinn Pálsson er alveg fullfær um að túlka sitt sjónarmið. Og eins og ég hef sagt, þetta er alveg gilt sjónarmið. Það er hægt að færa full rök fyrir þessu sjónarmiði. En eins og fram hefur komið í viðræðum við bæjarstjórnina á Siglufirði á sínum tíma þá óttuðust þeir einmitt að það kæmi að því að í stól fjmrh. gæti komið maður sem hefði slíkt almennt markaðssjónarmið að leiðarljósi og mundi bjóða hlutabréfin út á almennum markaði og leita þannig að kaupanda sem gæti flutt fyrirtækið, kvótann og skipin burt vegna þess að hann liti bara á verðmætamatið út frá þröngum hagsmunum ríkissjóðs.
    Virðulegi forseti. Það kom einnig fram hjá hv. þm. Árna Gunnarssyni, forseta Nd., að hann hafi í ræðu í fyrra gagnrýnt Ríkisendurskoðun. Ég man mjög vel eftir þeirri ræðu. Það var að mörgu leyti mjög alvarleg gagnrýni sem kom fram í þeirri ræðu. Gagnrýnin fól það í sér að vegna þess að vararíkisendurskoðandi hefði tekið þátt í undirbúningi fjárlaga með fjvn. væri verið að draga úr sjálfstæði Ríkisendurskoðunar við að meta fjárlögin síðar meir. Hv. þm. Árni Gunnarsson sagði að menn sæju nú að sú gagnrýni hans hefði verið á rökum reist. Ég ætla ekki að fjalla nánar um þennan kafla í ræðu hv. þm. Árna Gunnarssonar, enda er hann ekki hér í salnum. En ég vek hins vegar athygli þeirra sem hafa talað hér af mikilli hneykslan um að ekki megi gagnrýna Ríkisendurskoðun og talið það afsagnarsök hjá núv. fjmrh. að hann hafi leyft sér að gagnrýna Ríkisendurskoðun, að þegar yfirmaður Ríkisendurskoðunar úr hópi forseta þingsins kýs að gagnrýna Ríkisendurskoðun hér í fyrra með þeim hætti sem hann nú endurvekur, þá þótti hv. þm. það sjálfsagt mál eða a.m.k. ekki þörf á því að gera við að athugasemd. En það er auðvitað mjög athyglisvert að sá af forsetum þingsins sem hefur yfirumsjón með Ríkisendurskoðun skuli nú í þessum umræðum rifja upp gagnrýni sína á Ríkisendurskoðun.
    Ég vil líka nefna í þessu sambandi að vararíkisendurskoðandi Sigurður Þórðarson var ráðgjafi viðskrh. við söluna á Útvegsbankanum, þegar hlutabréf ríkissjóðs í Útvegsbankanum voru seld Iðnaðarbanka, Alþýðubanka og Verslunarbanka. Hann var ekki aðili að því mati sem vararíkisendurskoðandi. En hann tók fullan þátt í því með hæstv. viðskrh. að meta á hvað ætti að selja hlut ríkisins í Útvegsbankanum síðustu dagana sem sú sala stóð yfir, ekki formlega fyrir hönd Ríkisendurskoðunar heldur sem sérstakur ráðgjafi. Það gerir það auðvitað að verkum að það verður erfiðara fyrir Ríkisendurskoðun að framkvæma síðan óháð og sjálfstætt mat á því hvort Útvegsbankinn hafi verið seldur of lágu eða of háu verði. Hafa þó farið fram harðar deilur um það í þjóðfélaginu hvort Útvegsbankinn hafi verið seldur á of háu eða of lágu verði. Ég vil minna á það að hv. þm. Páll Pétursson, ef ég man rétt, hefur gagnrýnt núv. viðskrh. harkalega fyrir það að hafa selt hlut ríkisins í Útvegsbankanum á of lágu verði. Og ég vil minna á það að nýráðinn bankastjóri í Landsbankanum, Halldór Guðbjarnason, gagnrýndi í Tímanum, í sjónvarpi og í útvarpi viðskrh. mjög harkalega fyrir það að hafa selt hlut ríkisins í Útvegsbankanum á of lágu verði.
    Viðskrh. mundi væntanlega svara því til að einn af hans ráðgjöfum í þeirri sölu hafi verið vararíkisendurskoðandi Sigurður Þórðarson. Er þá hv. þm. Páll Pétursson að segja að vararíkisendurskoðandi Sigurður Þórðarson hafi veitt viðskrh. vitlausa ráðleggingu með því að mæla með því að Útvegsbankinn yrði seldur á því verði sem hann var seldur á? Það mætti ætla svo. Eða er Halldór Guðbjarnason, nýráðinn bankastjóri

Landsbankans, sem mjög ítarlega gagnrýndi söluna á Útvegsbankanum, að ráðast á vararíkisendurskoðanda sem var einn af ráðgjöfum viðskrh. við söluna?
    Ég held að þessir ágætu þingmenn ættu þess vegna, áður en þeir hafa uppi fleiri stóryrði í minn garð, að átta sig á því að það hefur verið margvísleg gagnrýni uppi um mál af þessu tagi. Hv. þm. Árni Gunnarsson, forseti Nd., hefur gagnrýnt afskipti Ríkisendurskoðunar af fjárlagagerðinni. Hv. þm. Páll Pétursson hefur gagnrýnt, ef ég man rétt, sölu viðskrh. á Útvegsbankanum sem vararíkisendurskoðandi átti verulegan hlut í og þannig koll af kolli. Þessar sögulegu staðreyndir held ég að sé nauðsynlegt að menn hafi í huga þegar þeir eru að leggja upp í þessum umræðum eins og það sé eitthvað alveg nýtt að um þessi mál sé fjallað.
    Hver var ástæðan fyrir því að ég kaus að fjalla sérstaklega um skýrslu Ríkisendurskoðunar? Hún var sú að tveir af skýrslubeiðendum, hv. þm. Páll Pétursson og Pálmi Jónsson, drógu af skýrslunni pólitískar ályktanir. Þeir drógu af skýrslunni þá pólitísku ályktun að þeir hefðu haft rétt fyrir sér. Í hverju? Í fullyrðingum sínum um það að fyrirtækið hefði verið selt á of lágu verði. Þó að hv. þm. Pálmi Jónsson segi nú að hann hafi ekki talið að fyrirtækið hafi verið selt á of lágu verði þá kom það greinilega fram hjá hv. þm. Páli Péturssyni í fjölmiðlum og annars staðar að hann teldi að fyrirtækið hefði verið selt á of lágu verði. ( Gripið fram í: Allt saman misskilningur hjá hæstv. ráðherra.) Ja, það er nú alla vega ekki misskilningur að hv. þm. Páll Pétursson hafi talið að fyrirtækið væri selt á of lágu verði.
    Virðulegi forseti. Hv. þm. Pálmi Jónsson fullyrti að Sigurði B. Stefánssyni endurskoðanda hefðu verið gefnar rangar upplýsingar. Í sjálfu sér ætla ég ekkert að fara að deila um skoðanir Sigurðar B. Stefánssonar fram og aftur í þessu máli. Ég vakti eingöngu athygli á þeirri staðreynd að þegar Ríkisendurskoðun spurðist fyrir um það hver það hefði verið sem á verðbréfamarkaði hefði metið verðgildi hlutafjár í Þormóði ramma, þá var Ríkisendurskoðun, áður en hún skilaði seinni skýrslunni, svarað bréflega að það væri Sigurður B. Stefánsson og hann væri reiðubúinn að ræða við Ríkisendurskoðun og gera henni grein fyrir áliti sínu. Ég harmaði það að Ríkisendurskoðun skyldi ekki hafa kallað þennan virta forsvarsmann á hlutabréfamarkaði til sín. Ef hún hefði gert það hefði mátt sannreyna hvort það var rétt sem hv. þm. Pálmi Jónsson var að fullyrða, að honum hefðu verið látnar í té rangar upplýsingar. Ríkisendurskoðun átti kost á því að ræða við Sigurð B. Stefánsson, en hafnaði því boði.
    Nú er það hins vegar upplýst í þessum umræðum að áður en Ríkisendurskoðun skilaði fyrri skýrslunni ræddi hún við annan endurskoðanda með nokkuð líku nafni, Sigurð Stefánsson, sem sumir rugla saman við Sigurð B. Stefánsson. Er það í fyrsta sinn sem það kemur fram opinberlega. En hitt er svo athyglisvert að þeir sem hafa viljað ráðast á mig í þessari umræðu hafa nær flestir viljað vitna í ummæli Sigurðar Stefánssonar, þess hins sama, í Morgunblaðinu um skýrslu Ríkisendurskoðnar. En nú kemur í ljós að í þeim ummælum var Sigurður Stefánsson endurskoðandi í rauninni að láta í ljós skoðun á sínu eigin verki án þess að það kæmi fram í hans ummælum að hann hefði verið ráðgjafi Ríkisendurskoðunar og væri þess vegna kannski ekki hæfur til þess að kveða upp óháðan dóm um hennar skýrslu. Þess vegna hefur hans nafn annars vegar verið notað til þess að dæma skýrslu Ríkisendurskoðunar og hins vegar til þess að segja að hann hafi átt hlut í að semja hana. En það er alveg rétt, hann er virtur maður, Sigurður Stefánsson endurskoðandi. Þeir eru það báðir nafnarnir, Sigurður B. Stefánsson og Sigurður Stefánsson, það er vissulega rétt. Þeir eru mjög virtir báðir tveir og eiga langan starfsaldur að baki.
    Það sýnir kannski best það sem ég sagði í minni ræðu að í þessu máli verður að reiða fram þann flókna veruleika sem í því felst. Það er hægt að komast að ólíkum niðurstöðum um það hvert matið eigi að vera eftir því hverjar forsendurnar eru og við hvað menn miða. Það er kjarninn í minni ræðu hér. Slík mynd var ekki dregin upp af hálfu Ríkisendurskoðunar þegar hún fjallaði um málið af hálfu Alþingis. Ef hún hefði gert það, eins og ég sagði í minni fyrri ræðu, gert grein fyrir hinum ýmsu forsendum, reiknað dæmin út frá ólíkum forsendum sem til greina koma, leitt fram niðurstöður mismunandi sérfræðinga og útskýrt hvers vegna tekið er mark á þessum en ekki hinum, þá hefði ekki verið nokkur ástæða til þess að gera athugasemdir við þau vinnubrögð.
    Virðulegi forseti. Einstaka þingmenn hafa í þessum umræðum endursagt ummæli mín um Ríkisendurskoðun á þann hátt að þeir hafa fært það mjög í stílinn, talað um árás, fordæmingu og ýmislegt af því tagi. Ekkert slíkt fólst í minni ræðu eins og sést vel ef hún er lesin lið fyrir lið, málsgrein fyrir málsgrein. ( GHH: Hvað með viðtölin á undan?) Viðtölin á undan eru líka slitin úr samhengi, virðulegur þm. Geir Haarde, vegna þess að sá fréttamaður sem spurði mig spurningarinnar um pöntun á skýrslum, sem er væntanlega það sem þingmaðurinn er að vitna til, ekki rétt? ( GHH: Jú, jú.) spurði spurningarinnar: Er þá hægt að panta skýrslur? Ég sagði í mínu svari alveg skýrt að ég mundi ekki nota það orð. ( GHH: Þú varst þó búinn að því áður.) Nei, það er rangt. Ég var ekki búinn að því áður. Það er nefnilega rangt hjá hv. þm. Ég sagði það við fréttamanninn að ég mundi ekki nota þau orð. Hins vegar væri það staðreynd að Ríkisendurskoðun hefði fjallað um Þormóð ramma vegna Atvinnutryggingarsjóðs og síðan vegna beiðni um skýrslu frá fjórum þingmönnum þannig að það er stílfærsla fréttaviðtalsins sem býr til þá merkingu. Að sjálfsögðu hef ég aldrei sagt það að menn gætu pantað niðurstöður frá Ríkisendurskoðun í einu eða öðru efni, það hef ég aldrei sagt. Ég hef hins vegar leitt það fram hér lið fyrir lið að í flóknu máli af þessu tagi eru margvíslegar forsendur sem koma inn í matið og menn verða að hafa faglega einurð til þess að reiða málin fram með þeim hætti. En, hv. þm. Geir Haarde, það stendur hvergi í fyrri skýrslu Ríkisendurskoðunar að hér sé um mat að ræða þar sem menn geti gefið sér margar ólíkar forsendur. Matið geti verið mismunandi eftir því hverjar forsendurnar eru. Það stendur hvergi í skýrslunni. Þvert á móti er hún öll skrifuð út frá því að þær einu forsendur séu réttar sem eru gefnar í skýrslunni.
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta mál í þessari umræðu. Það hefur nokkuð verið vikið að forsetum og þeir gagnrýndir fyrir að velja þann hátt á sem hér var valinn. Ég tel þá gagnrýni ómaklega. Mér finnst eðlilegt að þegar þingmenn bera ráðherra þungum sökum utan þings eigi ráðherra kost á því að flytja þá umræðu inn í þingsalinn frekar en halda umræðunni áfram utan þings. Mér finnst það eðlilegri og þinglegri vinnubrögð að taka á málinu með þeim hætti. Síðan má auðvitað um það deila hvort það hefði átt að vera með nafni á dagskrá eða utan dagskrár. En það hlýtur að vera fullkomlega þinglegt að ráðherra óski eftir því að fá tækifæri til þess að fjalla um málflutning þingmanna utan þings og fjalla um þær skýrslur stofnunar Alþingis sem málflutningur þingmannanna byggist á. Ég veit satt að segja ekki hvar ráðherrann ætti að fjalla um það ef ekki í þingsölum. Eða eru þeir sömu þingmenn og gagnrýna meðferðina hér á málinu út frá þingsköpum að segja það virkilega að ef ráðherra er gagnrýndur í skýrslu í einni af stofnunum Alþingis og síðan af þingmönnum utan þings á grundvelli þeirrar skýrslu eigi hann engan rétt á því að taka upp málið á Alþingi sjálfur? ( Gripið fram í: Á dagskrá.) Það er aukaatriði í málinu hvort það er nefnt í dagskrá eða ekki. Ég tek það fram að það var ekki ósk mín að fá það utan dagskrár. En það hafa ýmsir talað í þessum umræðum eins og ráðherrann eigi engan rétt á því. ( ÞP: Hver var þá ósk ráðherrans?) (Gripið fram í.) Að taka málið utan dagskrár? Ég held að forseti hafi aldrei sagt að það hafi verið ósk ráðherrans að taka málið utan dagskrár, nei, það er ekki rétt. Ósk ráðherrans kemur fram í bréfi sem hefur verið birt í skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem hann skrifaði forsetum þingsins um að fá að gera grein fyrir málinu á Alþingi. Ráðherrann tilgreindi ekki með hvaða hætti það ætti að vera og lét ekki í ljós neina skoðun á því með hvaða hætti það ætti að vera. (Gripið fram í.) Nei, ég lét ekki í ljós neina skoðun á því. Ég fól það í vald forsetanna að ákveða með hvaða hætti það ætti að vera. En hitt finnst mér vera aðalatriði sem þingmenn verða auðvitað að gera upp við sig þegar
Alþingi er komið með sjálfstæðar stofnanir sem starfa að skýrslugjöf um verk ráðherra með hvaða hætti þingið ætlast til þess að ráðherra geti tekið þau mál upp í þingsölum, eða er virkilega ætlun manna að hafa þingsköpin þannig að ráðherra geti ekki gert það? Það finnst mér vera rangt og ekki þjóna því að skýra málin né efla virðingu Alþingis. Ég ítreka hins vegar þá skoðun sem ég flutti í fyrra að miðað við þær breytingar sem orðið hafa á störfum Alþingis með tilkomu Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis þá kann að vera eðlilegt að menn breyti lögum og

þingsköpum á þann veg að um slíkar skýrslur sé hægt að fjalla, t.d. á formlegum fundum nefnda þingsins, opnum fundum þar sem þeir þingmenn sem kjósa að fjalla um málið geti einnig mætt, þar sem höfundar skýrslnanna og faglegir gagnrýnendur utan Alþingis geti einnig verið kallaðir fyrir, líkt og gert er í meðferð frv. í þinginu. Þetta er aðferð sem beitt er á þingi Bandaríkjanna með góðum árangri. Ég tel nauðsynlegt að menn breyti þingsköpum í ljósi þessarar reynslu og skapi þannig vettvang til þess að umræða um skýrslur geti farið fram á þann hátt að höfundar skýrslnanna, sérfræðingar annars staðar að úr þjóðfélaginu og þeir þingmenn sem kjósa geti fjallað um málið í heyranda hljóði svo að fjölmiðlar geti haft aðgang að þessari umræðu. Það tel ég nauðsynlegt. En það er ekki góð staða, hvorki fyrir ráðherra né þingmenn, að þurfa að ræða um slíkar skýrslur án þess að höfundar þeirra, forsvarsmenn þeirra stofnana sem starfa undir Alþingi, hafi rétt á að taka til máls og fjalla um oft flókin atriði. Við verðum að breyta þingsköpum á þann hátt að það sé hægt.