Stjórnarskipunarlög
Föstudaginn 15. febrúar 1991


     Margrét Frímannsdóttir :
    Herra forseti. Sem einn þeirra þingflokksformanna sem áttu þátt í að semja þetta frv., eins og fram kemur í upphafi greinargerðar þess, vil ég segja hér nokkur orð við 1. umr. málsins í deildinni.
    Upphaf þessa máls er að hinn 19. sept. sl. rituðu forsetar Alþingis okkur þingflokksformönnum bréf þar sem fram kemur að þeir hafi ástæðu til að ætla að afnám deildaskiptingar Alþingis hafi mikinn hljómgrunn í öllum þingflokkum og að samstaða geti tekist um breytingu á skipulagi Alþingis á þessu þingi. Síðan segir í bréfinu, með leyfi forseta:
    ,,Það er niðurstaða forseta, eftir talsverðar umræður um þetta mál, að heppilegt sé á þessu stigi að leita til formanna þingflokka með ósk um að þeir reyni að ná samkomulagi sín á milli um frv. sem fæli í sér nauðsynlegar breytingar á stjórnarskrá og þingskapalögum með tilliti til þess að þetta mætti takast nú á síðasta þingi þessa kjörtímabils.``
    Í bréfi forseta var bent á ýmis fleiri atriði en deildaskiptinguna sem við þingflokksformenn vorum beðnir um að kanna hvort samstaða gæti tekist um að breyta. Þau atriði voru m.a. eftirlit þingsins með framkvæmdarvaldinu, þingseta ráðherra, útgáfa bráðabirgðalaga, þingrof, aukafjárveitingar, samkomudagur Alþingis og ýmislegt fleira. Þingflokksformenn skipuðu síðan nefnd sem hóf að vinna að þessu máli þegar þing kom saman undir forustu formanns þingflokks Sjálfstfl., hv. þm. Ólafs G. Einarssonar.
    Við fengum við upphaf starfs okkar ítarlega skrá yfir þau atriði stjórnarskrárinnar sem varða Alþingi á einhvern hátt og til greina kæmi að breyta. Mig minnir að þau atriði hafi verið um það bil 20. Við unnum eftir þeirri meginreglu að kanna hvort samstaða gæti tekist um breytingarnar. Ef svo var ekki var því atriði vikið til hliðar og ekki gert meira með það. Þannig eru auðvitað í þessu frv. alls ekki öll þau atriði sem margir okkar þingflokksformanna hefðu gjarnan viljað sjá þar.
    Meginatriði þessa frv. er afnám deildaskiptingar. Um það var alger samstaða í nefndinni þótt vitaskuld væru menn misjafnlega sannfærðir um ágæti þeirrar breytingar. Nokkrir þingflokksformanna, þar á meðal ég, lögðu áherslu á að fyrir lægju, áður en nefndin afgreiddi málið frá sér, sæmilega ítarleg drög að þingskapalögum þannig að við gætum séð hvernig þessi breyting á skipulagi Alþingis yrði útfærð í smáatriðum. Þessi drög að þingskapalögum fylgdu frv. eins og það var lagt fyrir Nd. og í þeim eru að minni hyggju mörg veigamikil atriði sem ég tel að horfi til bóta. En því er ekki að neita að þar eru einnig atriði sem ég vildi gjarnan sjá hverfa og önnur sem þarf að breyta.
    Ég mun ekki í þessari stuttu ræðu minni fjalla ítarlega um þau rök sem fyrir því liggja að afnema deildaskiptingu Alþingis. Ég vísa í því efni til greinargerðar með frv. og ítarlegrar framsögu hv. þm. Ólafs G. Einarssonar fyrir málinu í Nd. svo og ýmissa ágætra athugasemda sem fram komu í máli annarra ræðumanna við þá umræðu.

    Hugmyndin um afnám deildaskiptingar Alþingis mun vera allgömul. A.m.k. er ljóst að þegar breytingar urðu á stjórnarskrá árið 1934, þegar m.a. frv. til fjárlaga var fært úr deildum þingsins yfir í Sþ., mun sú hugmynd hafa komið fram að Alþingi starfaði í einni málstofu. Af því varð ekki á þeim tíma. Síðan hefur hugmyndinni alltaf annað slagið skotið upp og meira að segja komist í stefnuyfirlýsingar ríkisstjórna. En þó er það sérstaklega á áttunda og nú á níunda áratugnum sem þessar hugmyndir hafa komið fram hvað eftir annað í ályktunar - eða frumvarpsformi hér á Alþingi. Þar hafa margir þingskörungar átt hlut að máli og er hægt að lesa sér til um það sem þeir hafa sagt um þetta mál í Alþingistíðindum.
    Annað afar veigamikið atriði í þessu frv. er að mínum dómi sú breyting að Alþingi mun sitja allt árið. Við hugsum þetta þannig að það verði kannski ekki svo mikil breyting á starfstíma Alþingis, starfsdögum þess muni e.t.v. ekki fjölga þó þetta frv. verði samþykkt umfram þá lengingu starfstíma Alþingis sem felst í þeirri tillögu okkar að Alþingi komi saman fyrr á haustin, þ.e. 1. okt. ár hvert. En meginrökin fyrir þeirri breytingu eru þau að gefa þinginu aðeins rýmri tíma til þess að afgreiða frv. til fjárlaga. Einnig mætti hugsa sér að upp yrði tekin sú regla að annaskipta starfstíma Alþingis, t.d. í haust - , vetrar - og vorannir, og yrði þá betur hægt að skipuleggja störfin og setja strangari tímamörk varðandi framlagningu mála sem áætlað er að ljúka á hverri önn. En aðalatriði er hins vegar að þegar Alþingi hefur lokið venjubundnum störfum að vori sé því frestað fram að upphafi næsta þings. Með þessu móti vinnst að Alþingi er þá alltaf starfshæft, ef svo má segja, og getur komið saman með mjög skömmum fyrirvara ef á þarf að halda og þingmenn verið undir það búnir. Mætti t.d. hugsa sér að ætli þingmaður að taka sér sumarfrí, fara í burtu um lengri eða skemmri tíma, tilkynni hann það skrifstofu Alþingis og verði þá varamaður hans tilbúinn til þingstarfa ef á þarf að halda.
    Því er ekki að leyna að sumir okkar þingflokksformanna hefðu gjarnan viljað gera róttækari breytingar á því ákvæði stjórnarskrárinnar sem fjallar um útgáfu bráðabirgðalaga. Ég hefði t.d. viljað sjá heimild til útgáfu bráðabirgðalaga fellda niður. Ekki væri heimilt að setja bráðabirgðalög nema í algerum undantekningartilvikum, t.d. ef um náttúruhamfarir væri að ræða. Þó væri það háð því skilyrði að forsetar Alþingis teldu óframkvæmanlegt að kalla þing saman. Um þetta náðist því miður ekki samstaða. En líta má á þessa breytingu á setutíma Alþingis sem nokkurs konar málamiðlun þannig að framvegis verði ekkert því til fyrirstöðu að ríkisstjórnir geti kallað Alþingi saman með mjög skömmum fyrirvara til þess að fjalla um brýna og aðkallandi löggjöf, ef ríkisstjórnir á annað borð vilja hafa þann háttinn á. Það verður því áfram það ástand sem verið hefur að heimilt verður að gefa út bráðabirgðalög á þeim tíma þegar Alþingi hefur verið frestað, með samþykki þess sjálfs, svo siðlaust sem það nú er.
    Í frv. eru samt sem áður gerðar nokkrar breytingar á meðferð bráðabirgðalaga á Alþingi. Gert er ráð fyrir því að reynt sé að afgreiða bráðabirgðalög eins fljótt og verða má eftir að Alþingi er komið saman. Fyrir því eru auðvitað þau rök að annars vegar sé reynt að létta af því óvissuástandi sem hlýtur að vera þegar Alþingi tekur við afgreiðslu bráðabirgðalaga og úr því fáist skorið sem fyrst hvort meiri hluti er fyrir þeim eða ekki. Í öðru lagi er því ekki að leyna að eftir því sem lengra líður frá setningu bráðabirgðalaga þeim mun efiðara er að gera á þeim breytingar eða fella þau. Um það höfum við mörg dæmi, sum nýleg. Við höfum hugsað okkur að Alþingi afgreiddi bráðabirgðalög á einum mánuði. Nd. hefur hins vegar lengt þann frest upp í sex vikur og ég get út af fyrir mig sætt mig við það.
    Þá eru í frv. nokkrar breytingar á þingrofsákvæðum stjórnarskrárinnar. Veigamesta atriðið er að þingrof mun framvegis taka gildi á kjördegi. Þegar þingrof er tilkynnt mun Alþingi væntanlega ljúka störfum í framhaldi af því. Þá hefur Alþingi svigrúm til þess að afgreiða þau frv. sem samstaða er um og nauðsynlegt er talið að afgreiða áður en þingstörfum lýkur. Þetta getur þó tæpast orðið langur tími því að kosningar skulu fara fram innan sex vikna frá því að þingrof er tilkynnt og auðvitað þurfa þingmenn og stjórnmálaflokkar sinn tíma þegar kosningar eru boðaðar fyrirvaralaust eða fyrirvaralítið. Það má þó skjóta því hér inn að þegar þingstörfum lýkur við lok eðlilegs kjörtímabils ætti undirbúningstími stjórnmálaflokka og alþingismanna ekki að þurfa að vera langur. Vel gæti ég hugsað mér að þing starfaði þar til vika væri til kjördags. Þeir sem eru á framboðslistum, aðrir en þingmenn, og vinna kosningavinnu verða að stunda sína vinnu til kjördags þrátt fyrir framboð og kosningavinnu. Nægir að nefna kennara, verkafólk og sjómenn og aðra þá sem stunda alla algenga vinnu í þessu þjóðfélagi. Þeir fá ekki frí þó svo þeir bjóði sig fram til setu á Alþingi.
    Ýmsar minni háttar breytingar eru í frv. sem ég sé ekki ástæðu til að fjalla um sérstaklega. Ég vil þó aðeins geta þess að í meðförum Nd. voru gerðar nokkrar breytingar á frv. sem ég tel allar til bóta.
    Í fyrsta lagi voru í Nd. sett inn ákvæði um það að Alþingi skyldi koma saman tíu vikum eftir reglulegar alþingiskosningar. Fyrir var í frv. það ákvæði að Alþingi kæmi saman innan tíu vikna frá því að kosningar hefðu farið fram ef til þeirra var stofnað með þingrofi. Það eru að vísu ekki allir í mínum þingflokki sérstaklega ánægðir með þetta ákvæði. En rökin fyrir þessu fyrirkomulagi eru fyrst og fremst þau að úr því fáist skorið sem allra fyrst hvort ríkisstjórn, sem mynduð hefur verið í kjölfar kosninga, nýtur stuðnings meiri hluta þingsins eða ekki. Það getur með öðrum orðum ekki dregist á sjötta mánuð eins og verið hefur eftir tvennar síðustu kosningar.
    Einnig var í Nd. gerð sú breyting á frv. að sett voru inn skýr ákvæði um það hvernig Alþingi verði kallað saman þegar því hefur verið frestað. Þetta á fyrst og fremst við að sumrinu til. Ef Alþingi verður frestað við eðlileg starfslok að vori til hausts eða út

þingið getur forseti Íslands að tillögu forsrh. engu að síður kallað þingið saman og svo jafnframt, sem ég fagna sérstaklega, að meiri hluti þingmanna getur með áskorun á forseta krafist þess að Alþingi komi saman. Þetta er sjálfsagður lýðræðislegur réttur.
    Þá voru í meðferð Nd. sett inn ákvæði um að kosningar skuli aldrei dragast fram yfir lok kjörtímabils. Það er til bóta og jafnframt er með þessu höggvið á þá deilu sem staðið hefur um ákvörðun kjördags og deildarmönnum er væntanlega í fersku minni. Það er mjög mikilvægt í þessu sambandi að samkvæmt þessu nýja ákvæði í frv., 14. gr., ætti kjördagurinn ekki að færast sífellt fram á árið eins og hætta er á ef menn túlka núgildandi ákvæði eins og hæstv. ríkisstjórn hefur gert nýlega. Ég er ekki hér með að dæma hvort sú túlkun er rétt eða ekki. Verði þetta frv. að lögum verður kjördagur ávallt í sömu vikunni og hann var fjórum árum fyrr. Það er mikilvægt að fá þetta þrætumál afgreitt nú.
    Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjalla frekar um frv. þetta. Vissulega væri hægt að segja margt fleira en ég hygg að það sé ástæðulaust eftir ítarlega og góða umræðu í hv. Nd. og þær breytingar sem þar voru gerðar að lengja þessa umræðu frekar. Ég legg svo til að frv. þessu verði vísað til allshn. eins og gert var í Nd.