Stjórnarskipunarlög
Föstudaginn 15. febrúar 1991


     Þorv. Garðar Kristjánsson :
    Herra forseti. Þær umræður sem hér hafa farið fram hafa verið góðar og sérlega málefnalegar eins og hæfir því máli sem hér er til umræðu. Ég lýsti mjög ákveðnum skoðunum í minni fyrri ræðu og ég veiti því athygli að í máli manna hér hefur ekkert komið fram til að mótmæla einstökum þáttum málsins sem ég gerði grein fyrir. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að þakka þeim ræðumönnum sem hafa farið viðurkenningarorðum um þá ræðu sem ég flutti áður í þessu máli.
    Það var þó aðeins eitt atriði sem gerð var athugasemd við. Það var af hæstv. menntmrh. og jafnframt hv. 4. þm. Suðurl. Það viðkom þeim ummælum mínum að forsetar Alþingis og formenn þingflokka hefðu ekki haft neitt sérstakt umboð til þess að hafa frumkvæði í þessu máli og vinna í því og leggja það fram. Ég tók reyndar fram að þeir hefðu sömu heimild og aðrir þingmenn til að bera fram hvaða mál sem þá lystir. Það var gerð sú athugasemd að þetta væri ekki neitt sérstakt og það væru mýmörg dæmi þess að gerðar hefðu verið breytingar á stjórnarskránni, eins og hæstv. menntmrh. komst að orði, með samkomulagi á milli flokkanna án formlegs umboðs. Við þetta er fyrst að athuga að það geta nú ekki verið mýmörg dæmi af því að við höfum ekki mýmörg dæmi þess að stjórnarskránni sé breytt. ( Menntmrh.: Enda sagði ég ekki mýmörg heldur mörg.) Þá hefur mér orðið á, mér fannst hæstv. ráðherra segja þetta. En það skiptir engu máli hvort hæstv. ráðherra sagði mörg eða mýmörg, enda ætla ég ekki að gera það að neinu máli.
    En það sem er málið í þessu er að ekki má rugla saman stjórnarskrárbreytingum sem eru um grundvallarstjórnskipun landsins og öðrum breytingum sem varða framkvæmd í einstökum atriðum. Ég gerði grein fyrir þessu í minni frumræðu. Stjórnarskrárbreytingar sem hafa verið gerðar eftir lýðveldisstofnunina, 1959, 1967 og 1984, eru engin um grundvallarbreytingu í stjórnskipuninni, engin. Þær stjórnarskrárnefndir sem voru starfandi og sátu á þessum tíma voru ekki beinir aðilar að þessum stjórnarskrárbreytingum, heldur eins og hæstv. menntmrh. sagði, það var um að ræða samkomulag milli þingflokkanna og það mál unnið á öðrum vettvangi en í stjórnarskrárnefndunum.
    En það sem ég lagði áherslu á í minni ræðu var að það stjórnarskrárfrv., sem hér er um að ræða, er allt annars eðlis heldur en stjórnarskrárbreytingarnar 1959, 1967 og 1984 vegna þess að þetta mál varðar grundvallarbreytingu á stjórnskipun landsins. Og stjórnarskrárnefndirnar voru tilkomnar og þær voru skipaðar til þess að vinna að endurskoðun stjórnarskrárinnar með grundvallarbreytingar í huga.
    Ég fór nokkrum orðum í minni fyrri ræðu um það hvers vegna ekkert hefði komið fram frá stjórnarskrárnefndunum um þessar grundvallarbreytingar og ég ætla ekki að endurtaka það núna. Það er viðamikið mál. En nú kemur þetta frv. sem felur í sér grundvallarbreytingu og málatilbúnaðurinn er allt annar heldur en gert hefur verið ráð fyrir að væri um slík

þýðingarmikil mál.
    Ég vil taka það fram að það er ekki út í loftið sem ég talaði um að stjórnarskrárnefndirnar hefðu haft umboð til þess að vinna að endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ég er hérna með í höndunum t.d. þingsályktun sem samþykkt var 1978 og hún hefst með þessum orðum: ,,Alþingi ályktar að umboð núverandi stjórnarskrárnefndar falli niður nú þegar en skipuð verði ný nefnd sjö manna . . . `` o.s.frv. Þannig hefur verið gætt formsins í þessu efni. Og það sem ég vildi segja er að það hefur ekki verið gert með því frv. sem hér er lagt fram og þess vegna orðaði ég það svo að hvorki forsetar eða formenn þingflokka hefðu haft neitt sérstakt umboð til þess að vinna í þessu máli. Ég vænti þess að þetta sé næg skýring.
    Það er margt sem væri ástæða til að ræða hér um frekar en ég gerði í minni frumræðu. Það voru orð í tíma töluð þegar hv. síðasti ræðumaður, 3. þm. Norðurl. v., sagði að deildaskipting Alþingis hefði komið í veg fyrir mörg slys sem hefðu orðið við lagagerð ef ekki hefði verið um tvær deildir að ræða. Þeir sem standa að þessu frv. gera lítið úr þessu í greinargerð með frv. En það er mikill misskilningur. Ég leyfi mér t.d. að gefa þær upplýsingar hér að á þinginu 1983 -- 1984 fór 18,9% af málum á milli deilda, nær 1 / 5 af málum fór á milli deilda. Svo segja menn að þetta sé einhver hégómi og hafi enga þýðingu. Á næsta þingi á eftir fóru 22,5% á milli deilda og á næsta þar á eftir, 1985 -- 1986, 22,5%. Svona má halda áfram. Á þinginu 1988 -- 1989 fór þetta hæst, fór upp í 27,7%. Og svo segja menn að þetta sé ákaflega þýðingarlítið, þessi skipan sem við höfum. Það megi bara kasta þessu á glæ eins og ónýtu fati.
    Ég skal ekki núna fara að nefna einstök atriði sem eru í raun og veru til stuðnings þess sem ég hef áður sagt í þessu máli. En ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram hjá ræðumönnum, að það er mikil ástæða til þess að þessi deild kryfji þetta mál vel til mergjar. Og ef okkur er alvara að gera það þá megum við ekki fyrir fram ganga út frá því að það eigi að afgreiða þetta mál úr deildinni á þeim fáu dögum sem nú eru eftir til þinglausna. Ég er ansi hræddur um að málið fái ekki þá meðferð sem nauðsynleg er ef við erum í einhverjum hraða og óðagoti með þetta mál.
    Er það nú óeðlilegt --- og spyr ég nú af mesta lítillæti --- er það óeðlilegt þó að deildin komist að þeirri niðurstöðu að það sé ekki tímabært að flaustra þessu af núna á þessum fáu dögum sem eftir eru, því að það megi ætíð breyta þessari skipun Alþingis sem við búum núna við? Við höfum búið við hana á annað hundrað ár. Er það nokkurt höfuðatriði, ef menn vilja endilega breyta þessu, og komast að þeirri niðurstöðu, hvort sú breyting fer fram einu ári fyrr eða síðar?
    Herra forseti. Ég segi þetta til þess að leggja áherslu á það, sem voru lokaorð í minni fyrri ræðu, að ég vænti þess að þessi hv. deild, efri deild Alþingis, stæði vörð um sóma, sæmd og stöðu Alþingis.