Stöðlun
Föstudaginn 15. febrúar 1991


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um stöðlun. Frv. um þetta efni var lagt fram til kynningar á 112. löggjafarþingi en kom þá ekki til umræðu. Það frv. var samið af nefnd sem ég skipaði í ágúst 1989. Til undirbúnings nefndarstörfunum var aflað gagna um tilhögun staðlamála í Evrópulöndum. Þáverandi framkvæmdastjóri evrópsku staðlastofnunarinnar CEN, Evangelos Vardakas, lagði fram að ósk nefndarinnar tillögur um löggjöf um staðla á Íslandi. Einnig var safnað athugasemdum við tillögur hans frá fjölmörgum aðilum.
    Frv. sem kynnt var á 112. löggjafarþingi var svo sumarið 1990 sent til kynningar hjá öllum helstu hagsmunaaðilum. Frv. sem nú kemur á ný til kasta Alþingis, og ég flyt hér og birt er á þskj. 549, er samið með tilliti til fjölmargra þeirra athugasemda sem bárust. Tilgangurinn með flutningi frv. er að styrkja lagagrundvöll reglna um staðla á Íslandi og festa starfsemi Staðlaráðs Íslands í sessi. Staðlaráðið starfar nú á grundvelli starfsreglna sem stjórn Iðntæknistofnunar setti með heimild í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun Íslands, þar sem segir að stofnunin gegni hlutverki sínu m.a. með stöðlun. Lagalegur grundvöllur starfseminnar er hins vegar ófullnægjandi miðað við þá auknu áherslu og það mikilvægi sem stöðlun er gefið og henni tengd starfsemi, þar á meðal hér á landi, í Evrópusamstarfinu.
    Samkvæmt reglum Alþjóðastaðlasambandsins, ISO, og Alþjóðaraftækninefndarinnar, IEC, er eitt megineinkenni staðla og stöðlunar að staðlarnir eru samdir í samvinnu helstu hagsmunaaðila og í þeim endurspeglast, eða á að endurspeglast, góður framkvæmdamáti að bestu manna yfirsýn. Af þessu leiðir að enginn einstaklingur eða stofnun getur samið staðal án samráðs við hagsmunaaðila. Þetta nána samráð greinir staðla frá öðrum reglum og vöruforskriftum af opinberri hálfu.
     Annað atriði sem greinir staðla frá öðrum fyrirmælum er að staðlar eru frávíkjanlegir, þ.e. notkun þeirra er yfirleitt ekki skyldubundin heldur hafa framleiðendur og aðrir sem nota þá kosið að hlíta þeim af fúsum og frjálsum vilja.
     Vegna þessara eiginleika staðla ákvað framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins að þeir skyldu gegna veigamiklu hlutverki í áformum þess að gera aðildarríki bandalagsins að einum markaði fyrir árslok 1992. Lögbundin samræming á tilskipunum Evrópubandalagsríkja á tæknisviðinu er hins vegar takmörkuð við grunnkröfur um öryggi og heilsu manna og dýra og verndun umhverfisins. Síðan var þeim stofnunum sem lengi hafa unnið að stöðlun í iðnaði fengið það hlutverk að semja tæknilegar forskriftir í einstökum atriðum. Þessar forskriftir eru síðan gefnar út sem samræmdir staðlar í aðildarlöndum bandalagsins. Framleiðendum er í sjálfsvald selt hvort þeir nota staðlana en svo er litið á að sá sem fylgir stöðlunum hafi fullnægt grunnkröfunum í tilskipunum Evrópubandalagsins. Þeir sem ekki fylgja stöðlunum þurfa hins vegar

að geta sýnt fram á það sérstaklega að þeir hafi fullnægt þessum grundvallarkröfum.
     Evrópubandalagið hefur gert rammasamning við evrópsku staðlasamböndin, CEN, á almennu sviði og CENELEC, á raftæknisviði, um að stýra gerð þeirra staðla sem gert er ráð fyrir í tilskipunum EB. Í rammasamningunum er það gert að skilyrði að samþykktir staðlar á vettvangi staðlasambandanna (Evrópustaðlar) verði gerðir að landsstöðlum í hverju aðildarlandi CEN og CENELEC innan missiris frá samþykkt þeirra og þeir landsstaðlar numdir úr
gildi sem fara í bága við Evrópustaðlana skilgreinda á þennan hátt. EFTA - ríkin komu í kjölfarið og gerðu samsvarandi samning við staðlasamböndin tvö, CEN og CENELEC. Í yfirstandandi samningaviðræðum milli EFTA og Evrópubandalagsins um Evrópskt efnahagssvæði er gert ráð fyrir að vísað verði til samræmdu staðlanna í stjórnvaldsfyrirmælum á tæknisviðum og, sem er ákaflega mikilvægt, við opinber innkaup.
     Staðlaráð Íslands gerðist aðili að staðlasamböndunum CEN og CENELEC um miðbik ársins 1988.
    Með þeirri nýju stefnu sem ég hef hér lýst breytist hlutverk þeirra sem semja staðla í smærri Evrópuríkjum, t.d. hér á landi. Áður voru nánast einvörðungu samdir staðlar sem iðnaðurinn í viðkomandi ríki taldi sig þurfa á að halda á þeim hraða sem aðstæður leyfðu hverju sinni. Engar kvaðir lágu á stjórnvöldum að vísa til staðlanna. Á þrjátíu ára tímabili höfðu þannig alls verið staðfestir um fimmtíu staðlar á Íslandi en síðan Staðlaráð gerðist aðili að CEN og CENELEC 1988 hafa um 500 staðlar verið staðfestir.
     Í ljósi þess mikilvæga hlutverks sem stöðlum er ætlað í framtíðinni innan Evrópu og innan hins sameiginlega væntanlega evrópska markaðar og hins Evrópska efnahagssvæðis er einstökum ríkjum nauðsynlegt að fylgjast vel með samningu þeirra og taka fullan þátt í þeirri vinnu á þeim sviðum sem varða beina hagsmuni þeirra eins og t.d. í útflutningsgreinum okkar og innlendum samkeppnisgreinum.
    Virðulegi forseti. Ég tel ekki ástæðu til að rekja í þessari framsöguræðu nákvæmlega ákvæði allra níu greina frv. eða bráðabirgðaákvæðanna tveggja, en ég vil hins vegar fara hér nokkrum orðum um fimm meginþætti þessa frv.
    Í fyrsta lagi er lagt til að Staðlaráðið starfi sem sjálfstæð einkastofnun sem verði opinber vettvangur hagsmunaaðila um stöðlun og starfi á grundvelli ákvæða þessa frv. ef að lögum verður og stofnskrár sem ráðið setur og iðnrh. staðfestir. Í frv. er byggt á þeirri meginhugsun að það séu einkaaðilarnir, fyrirtækin og samtök þeirra, sem beri aðalábyrgðina á staðlavinnunni, enda eiga þeir við hana að búa. Nú starfar Staðlaráðið, eins og ég hef þegar nefnt, sem sérstök deild í Iðntæknistofnun. Verði þetta frv. að lögum hverfur sú deild og þær sex stöður sem henni tilheyra verða lagðar niður. Hér er því í reynd um að ræða einkavæðingu á ríkisstarfsemi og fækkun ríkisstarfsmanna. Í frv. er gert ráð fyrir að starfsmönnum núverandi Staðlaráðs verði boðið starf hjá hinni nýju

einkastofnun, Staðlaráði Íslands.
    Í öðru lagi er hér lagt til með tilliti til allra aðstæðna að Staðlaráðið verið miðstöð stöðlunarstarfs hér á landi og komi fram fyrir Íslands hönd í alþjóðlegu samstarfi staðlaráða. Það stefnumið er í samræmi við stefnu EFTA - ríkjanna um það að einn aðili skuli staðfesta staðla og koma fram fyrir hönd hvers ríkis í stöðlunarmálum. Þó er gert ráð fyrir að Staðlaráðið geti falið einstökum stofnunum eða aðilum framkvæmd einstakra þátta í staðlaframkvæmdinni, þar á meðal þátttöku í alþjóðlegri staðlastarfsemi.
    Í þriðja lagi er í frv. gert ráð fyrir skýrum reglum um birtingu staðla ásamt rétti til athugasemda við þá og að tryggt verði víðtækt samráð um efni þeirra. Með þessu er ætlunin að leggja grunn að því að við samningu reglugerða og annarra stjórnvaldsfyrirmæla verði í ríkara mæli en nú er stuðst við staðlana.
    Í fjórða lagi er í 6. gr. frv. fjallað um fjármál þessarar starfsemi. Gert er ráð fyrir að aðilarnir að Staðlaráði greiði bæði stofnframlög og árgjöld. Þá er gert ráð fyrir að Staðlaráð hafi töluverðar tekjur af sölu staðla og ýmiss konar þjónustustarfsemi í tengslum við stöðlun, rétt eins og verið hefur.
    Í fimmta lagi er gert ráð fyrir að ríkissjóður leggi Staðlaráði til nokkurt fé á fjárlögum. Aukin verkefni Staðlaráðs og staðlaráðanna í Evrópu yfirleitt valda því að framlög ríkisins til þessa málaflokks hafa aukist í flestum Evrópuríkjum. Reiknað er með því að svo verði einnig hérlendis. Aukningin er einkum vegna þess að með aðildinni að CEN og CENELEC hafa Íslendingar játast undir þá skyldu að gera staðla sambandanna að sínum. Aðildin er liður í aðlögun að samræmdum Evrópumarkaði og það verður því að teljast eðlilegt að ríkisvaldið, sem væntanlega tekur þær ákvarðanir, tryggi grunnfjármögnun vinnu vegna þessarar skyldu. Hér er ekki verið að leggja til útgjaldalið fyrir ríkissjóð því á undanförnum árum hefur Staðlaráð, auk hlutar þess í fjárveitingu Iðntæknistofnunar, fengið sérstaka fjárveitingu til þess að sinna einmitt þessum verkefnum, Evrópustöðlunum. Þá er gert ráð fyrir að Staðlaráð verði undanþegið sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélaga, enda verður um að ræða sjálfseignarstofnun sem starfar án hagnaðarmarkmiðs.
    Í sjötta lagi er í frv. lagt til að lögin öðlist gildi hinn 1. sept. á þessu ári og fyrir 1. maí nk. verði boðað til stofnfundar hins nýja Staðlaráðs þar sem lögð verði fram til samþykktar drög að stofnskrá og sex menn af sjö kjörnir til setu í stjórn ráðsins fram til fyrsta reglulegs aðalfundar þess. Með hliðsjón af því að gert er ráð fyrir að ríkissjóður veiti áfram umtalsverðu fé til starfsemi ráðsins þykir eðlilegt að leggja til að iðnrh. skipi sjöunda manninn í stjórn ráðsins og að í stofnskrá verði kveðið á um að hann sé jafnframt formaður stjórnarinnar.
    Virðulegi forseti. Ég mun ekki að sinni hafa fleiri orð um þetta frv. en legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. iðnn.