Árni Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Mig langar að gera eina athugasemd við það frv. sem hæstv. dómsmrh. hefur nú gert grein fyrir í sinni framsögu. Mín skoðun er sú að þetta frv. sem slíkt fái ekki staðist gagnvart stjórnarskrá lýðveldisins. Ástæðan fyrir því er sú að í þessu frv. er gert ráð fyrir því að kosningar skuli fara fram laugardaginn 20. apríl, en þá vantar fimm daga upp á að liðin séu fjögur ár frá síðustu kosningum. Verði þing ekki rofið með þeim hætti sem við þekkjum og forseti ákveði kjördag að tillögu forsrh. er með þessum lögum, ef samþykkt yrðu, verið að brjóta stjórnarskrá lýðveldisins, einfaldlega vegna þess að hún kveður á um að kjörtímabilið skuli vera fjögur ár. Með lögum af þessu tagi er ekki hægt að breyta stjórnarskrá íslenska lýðveldisins.
Ég vildi vekja athygli hæstv. dómsmrh. á þessu atriði. Ég hygg að það kunni að hafa farið fram hjá frumvarpssmiðunum. Í 31. gr. stjórnarskrárinnar segir m.a.: ,,Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri hlutbundinni kosningu til 4 ára``, þannig að það kemur skýrt fram í stjórnarskránni að kjörtímabilið skuli vera fjögur ár. Það gefur því auga leið að með lögum breytum við ekki þessu ákvæði stjórnarskrárinnar. Ef þetta frv. fellur ekki um sjálft sig í meðferð þingsins vegna annarra ákvarðana um hvernig staðið skuli að kjördegi þá hygg ég að í nefnd mundi sú niðurstaða verða að frv. stæðist ekki.
Ég hef vakið athygli hæstv. forsrh. á þeim annmörkum sem ég tel vera á þessu frv. og ég man ekki betur en hann væri sammála mér í því að þetta væri svo alvarlegur ágalli á frv. að ekki væri hægt að bera það fram með þessum hætti.
En að öðru leyti væri freistandi að fara út í nokkra efnislega umræðu um kjördaginn 20. apríl. Það er auðvitað nokkuð sérkennilegt að það skuli vera fjórir hv. þm. og einn hæstv. ráðherra í sal Nd. þegar verið er að fjalla um jafnmikilvæg mál og þessi tvö frv. sem hæstv. dómsmrh. hefur nú mælt fyrir, kosningalagafrv. sem snerta hvern einasta þingmann. Ég hefði t.d. viljað að hv. þm. væru hér til þess að átta sig á því að þetta frv. brýtur gegn stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Ég fæ ekki betur séð en að þetta frv., eins og ég sagði áðan, sé að stytta kjörtímabil sem kveðið er á um í stjórnarskrá íslenska lýðveldisins að skuli vera nákvæmlega fjögur ár, að þetta frv. stytti kjörtímabilið um fimm daga. Og ég endurtek það að þingið hefur ekki leyfi til þess að breyta stjórnarskrá lýðveldisins með lögum, ekki með þessum hætti. Það er gert öðruvísi.
Varðandi kjördaginn að öðru leyti er mér mikill ami að kjördeginum 20. apríl, ég get ekki leynt því. Meginástæða er auðvitað sú að með ákvörðun um þennan kjördag er nákvæmlega ekkert tillit tekið til hv. landsbyggðarþingmanna. Ég hefði talið ögn skárra, og auðvitað mundi það ekki brjóta í bága við stjórnarskrána, ef kjördagur væri ákveðinn 27. apríl í staðinn fyrir 20. apríl, en ég tel að þingið
eigi að halda sig við 11. maí og forsrh. eigi að ákveða að kjördagur verði 11. maí en ekki 20. apríl. Fyrir þessu eru veðurfarslegar ástæður, það eru ástæður vegna færðar, það eru ástæður sem ég tel að liggi svo í augum uppi að það þurfi vart að rekja þær. Við höfum reynslu af vetrarkosningum. Stundum hefur það tekist sómasamlega að framfylgja þeim og hafa vetrarkosningar en við megum alltaf búast við því hér á Íslandi að í kringum 20. apríl verðum við vitni að einhverju páskahreti eins og þau gerast stundum á þessum árstíma hvað verst.
Einhvers staðar las ég í dagblaði í dag, hygg ég, að með því að skoða veðurkort undanfarinna ára megi búast við því að það verði tiltölulega milt og þægilegt veður 20. apríl. Ég tek ekki mikið mark á veðrameðaltali á Íslandi. Það hefur ekki alltaf gengið upp og veður gera sjaldnast boð á undan sér. Og þó menn séu miklir spádómsmenn þá er, eins og kerlingin sagði, erfitt að spá og sérstaklega um framtíðina.
Ég vildi láta þessar athugasemdir mínar koma fram. Einkum og sér í lagi hef ég mjög alvarlega athugasemd fram að færa við dagsetninguna í frv., 20. apríl, varðandi stjórnarskrána. Það kann að vera að menn telji t.d. 31. gr. stjórnarskrárinnar ekki binda kjörtímabilið í fjögur ár en ég lít svo á að kjörtímabilið sé fjögur ár og þá lýkur því ekki fyrr en 25. apríl. Við breytum ekki slíkum stjórnarskrárákvæðum, svo að ég endurtaki það nú í þriðja sinn, með einfaldri lagagerð hér á Alþingi.
Ég vil biðja hæstv. dómsmrh. að kanna það hjá glöggum mönnum sem kunna að lesa úr stjórnarskrá lýðveldisins, sem er nú tiltölulega einfalt mál, hvort hér kunni ekki að vera á ferðinni athugasemd sem er þess eðlis að það beri að taka hana gilda og skoða hana.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki fleira um þetta að segja en það væri ósköp freistandi að ræða þessar kosningadagsetningar. Ég held að það fari miklu betur á því að hafa kosningar 11. maí en 20. apríl af margvíslegum ástæðum. Ég bjóst nú satt að segja við því að þetta frv. mundi hrinda af stað mikilli umræðu hér á hinu háa Alþingi um kjördaginn. Ég hélt að þetta yrði ein helsta umræðan í þessari viku. En það er kannski oft gott að láta mæla fyrir umdeildum frv. þegar fátt er um þingmenn í þingsal.