Stjórnarskipunarlög
Mánudaginn 18. febrúar 1991


     Þorv. Garðar Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu) :
    Herra forseti. Það var lagt til hér áður í umræðunni að þessu máli yrði vísað til hv. allshn. Ég tel að það sé ekki við hæfi að gera það vegna þess að hér er um að ræða frv. til laga um breytingar á stjórnarskránni. Það hefur verið viðtekin venja að vísa slíkum málum til sérnefndar, svokallaðrar stjórnarskrárnefndar. Ég geri það því að tillögu minni að málinu verði vísað til sérnefndar, til stjórnarskrárnefndar, og það fari fram atkvæðagreiðsla um það. Ef haldið verður við aðra tillögu fari fyrst fram atkvæðagreiðsla um það hvort málinu skuli vísað til fastanefndar eða sérnefndar.