Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf til forseta Nd.:
,,Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., getur ekki sótt þingfundi á næstunni af heilsufarsástæðum, leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna anna 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Kristjánsson, sæti á Alþingi í forföllum hans.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti, með ósk um að fram fari í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Með bréfi þessu fylgir bréf 1. varaþingmanns Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi svohljóðandi:
,,Forseti Nd. Alþingis, hr. Árni Gunnarsson.
Vegna sérstakra anna get ég ekki tekið sæti á Alþingi í forföllum Matthíasar Bjarnasonar nú í febrúarmánuði 1991.
Samkvæmt bréfum þessum og 4. gr. þingskapa ber nú kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréf Ólafs Kristjánssonar, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi. Gert verður hlé á fundinum í fimm mínútur meðan kjörbréfanefnd starfar. --- [Fundarhlé.]