Rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 18. febrúar 1991


     Frsm. kjörbréfanefndar (Ólafur G. Einarsson) :
    Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Ólafs Kristjánssonar, 2. varamanns Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, en óskað er eftir að hann taki sæti á Alþingi í fjarveru Matthíasar Bjarnasonar þar sem 1. varaþm. Sjálfstfl. í kjördæminu, Einar K. Guðfinnsson, getur vegna sérstakra anna ekki tekið sæti Matthíasar Bjarnasonar. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við kjörbréfið að athuga og leggur til að það verði samþykkt.