Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 12. þm. Reykv. fyrir það sem hún sagði og þær áherslur sem hún flutti. Ég held að ég hafi verið sammála þeim öllum. Hún nefndi t.d. það að skýrslan væri kannski dálítið Háskóla-Íslands-leg og það er alveg rétt, hún er það. Ég gerði vissar athugasemdir við þetta á ýmsum stigum málsins, að þarna hefði þurft að taka bæði inn þau sjónarmið sem uppi eru í Rannsóknastofnun uppeldismála og í kringum hana, Kennaraháskóla Íslands og sömuleiðis Búvísindadeildina á Hvanneyri. Það má segja að með almennum hætti sé sums staðar komið inn á þessi mál en það hefði mátt gera það mikið skýrar.
Ég vil aðeins taka undir það að að sjálfsögðu hefði mátt gera því máli sem komið er inn á á bls. 21, um verkaskiptingu skólanna á háskólastigi, betur skil. Það hefði kannski mátt koma betur inn á það og skýra það betur. Ástæðan til þess að það var ekki gert var satt að segja sú að við erum að vinna að heildarskipulagi fyrir háskólana og reyna að fá þá til að sætta sig við tiltekna verkaskiptingu, þannig að málið er á viðkvæmu stigi. Það má svo sem tala um það sem kjarkleysi eða eitthvað annað að við skyldum ekki vilja taka af skarið í þessu plaggi af því að við erum að reyna að semja okkur í gegnum þetta gagnvart Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Kennaraháskóla Íslands, Búvísindadeildinni á Hvanneyri og öðrum slíkum aðilum sem eru með einhvers konar nám á háskólastigi. En auðvitað verður þetta að skýrast mikið betur. Ef á að takast, m.a. að nýta fjármunina betur heldur en gert er, þá verður að kveða betur á um verkaskiptingu á milli þessara skóla heldur en nú er gert. Auðvitað verður líka að tryggja það að þessir skólar eins og Háskólinn á Akureyri og Kennaraháskólinn geti stundað rannsóknir, að þeir séu alvöruháskólar að því leytinu til að þeir hafi rannsóknasvigrúm sem hafa að vísu verið skapaðar aðstæður til. En auðvitað þarf það að vera þannig ef vel á að vera, ef um á að vera að ræða alvöruháskólastofnun, þá þarf hún auðvitað að vera með rannsóknastarfsemi og hæft rannsóknafólk á sínum vegum og það er fyrir því áratuga- ef ekki aldareynsla í starfsemi háskóla að eftir því sem rannsóknir þeirra eru öflugri eftir því ná svona stofnanir meiri myndugleika í hinu almenna skóla-, rannsókna- og vísindaumhverfi sem þeir búa við.
Ég get einnig sagt margt um hagvaxtarhyggjuna sem hv. þm. nefndi og er einn meginlasleiki þessa svokallaða nútímaþjóðfélags og getur náttúrlega ekki endað nema með ósköpum, ef menn eru í henni mjög einhliða. Og vissulega er það svo að víða er í þessu skjali lögð mikil áhersla á hagvöxtinn en málið liggur nú einfaldlega þannig að það er margt sem kallar á í þessu þjóðfélagi okkar. Við erum með óskir um margvíslega hluti, m.a. á sviði félags- og menningarmála. Til þess þurfum við auknar tekjur í þjóðarbúinu frá því sem er nú og það er vandséð að nær náist öðruvísi en með auknum hagvexti. En hagvöxtur
þarf náttúrlega ekki alltaf að vera fólginn í því að menn bæti eingöngu við það sem fyrir er heldur getur hann líka verið fólginn í því að við förum betur með það sem við eigum. Og það er mjög fróðlegt að sjá þá alvarlegu staðreynd sem kemur fram í þessari skýrslu að það er svo að segja algjör stöðnun í framleiðni íslenskra atvinnuvega núna um langt árabil. Algjör stöðnun. Ein leiðin til þess að auka framleiðni þeirra er auðvitað aukin áhersla á rannsóknir, þróun og vísindastarfsemi af ýmsu tagi til þess að menn fái sem mest út úr því sem þeir hafa handa á milli.
Hv. 12. þm. Reykv. vék að því hér áðan að það væru fáir í salnum þegar verið væri að ræða þetta mikilvæga mál. Það hefur nú orðið mitt hlutskipti í lífinu að sinna dálítið því sem er kallað ,,mjúk mál`` í Stjórnarráði Íslands, í félmrn., heilbrrn., tryggingarn. og menntmrn. Það hefur nú bara farið svo. Ég hef verið með þessi mál mjög lengi og ég get ekki neitað því að iðulega hefur Alþingi valdið mér pínulitlum vonbrigðum í þessum efnum. En síst sæti nú á mér að fara að gagnrýna þá sem eru viðstaddir. Þvert á móti vil ég þakka þeim fyrir að leggja eyra að þessari umræðu af því að það er auðvitað nauðsynlegt að vita að þessi mikilvægi þáttur þjóðlífsins eigi stuðning sem mætti auðvitað oft vera meiri.
Varðandi þau mál sem við erum reyndar að fjalla um almennt, þá má segja að lykillinn að svörunum við þeim spurningum sem eru bornar hérna fram undir öðrum dagskrárliðum úr þessum ræðustól, lykillinn að þeim svörum er í rannsóknum, lykillinn að þeim svörum er í vísindastarfsemi, hvort sem þar er um að ræða grunnrannsóknir eða hagnýtar rannsóknir. Ég nefni dæmi: Ég veit ekki betur en hér á eftir sé á dagskránni þáltill. um að stytta vinnutíma. Ég er alveg sannfærður um það að eitt af brýnustu framfaraverkefnum Íslands er að stytta vinnutímann. Auðvitað á að tryggja það að menn hafi vinnu en menn séu ekki að vinna að meðaltali 50 -- 60 tíma á viku eins og verið hefur um áratuga skeið. Til þess að það sé hægt þarf að breyta vinnuskipulagi og vinnuhefðum íslensku þjóðarinnar í grundvallaratriðum og um leið að tryggja að verðmætin eftir styttri vinnutíma séu ekki minni en þau sem nú fást, a.m.k. ekki minni, helst þyrftu þau að vera aðeins meiri. Leiðin til þess að svara þessum spurningum: Hvernig á að tryggja þetta með skaplegum hætti? Leiðin til þess, hver er hún? Hún er rannsóknir. Hún er að vita um það hvernig á að bæta og breyta vinnuskipulagi hér á landi.
Í þessu sambandi geta menn auðvitað rætt um sjávarútveginn og fiskinn sem ævinlega er talað um þegar talað er um hina miklu vinnu hér á landi og menn séu að bjarga miklum verðmætum og þar fram eftir götunum og allt er það rétt. Hins vegar höfum við niðurstöður af því, sem voru gerðar með tiltölulega óvísindalegum hætti, það var rannsóknarverkefni sem verkalýðshreyfingin beitti sér fyrir vorið 1978. Það var eitthvert merkilegasta rannsóknarverkefni sem hér hefur verið í gangi mjög lengi. Hún lét banna yfirtíð í landinu. Niðurstaðan varð sú að þrátt fyrir það að enginn vann yfirtíð í frystihúsunum þá var framlegðin, framleiðsluverðmætið svipað og áður hafði verið með tíu tíma vinnu.
Ef menn átta sig á því hvað hagnýtar rannsóknir eru í raun og veru lykill að svörum við mörgum hversdagslegum vandamálum, þá held ég að menn færu kannski að kveikja og átta sig á því að hér er ekki um að ræða verkefni sem er hér á dagskrá sem kemur engum við nema kannski einhverjum menntmrh. og einhverjum svona sem hafa hrærst í þessum málum að öðru leyti af einhverjum sérkennilegum ástæðum á undanförnum árum, heldur er þetta mál sem kemur við hverjum einasta þingmanni.
Vegna þess að það er í raun og veru alveg ljóst að það er ekki hægt að bæta lífskjörin svo að um muni til langframa nema með því að menn taki sig á að því er varðar rannsóknir, vísindi og þróunarstarfsemi. Það er ekki hægt öðruvísi.
Slembilukkuaðferðirnar sem hafa verið hafðar uppi hér í atvinnumálum á undanförnum áratugum gilda ekki lengur. Það var alveg hægt að halda því fram hér á árunum 1944 -- 1946 að það væri lausn á vanda manna og vanda byggðarlaga að fá togara. Og það var hægt að halda því líka fram á árunum 1956 -- 1958 og 1971 -- 1974: Togari, lausn, frelsi. Og það var hægt að segja það líka á þessum árum og síðar að það gæti verið lausn á atvinnuvanda tiltekinna byggðarlaga að fá eina stóra verksmiðju. Það gæti verið lausn út af fyrir sig, en staðreyndin er hins vegar sú að þessar ákvarðanir og þessi viðhorf byggjast öll í rauninni á þessum almenna, skammsýna hugsunarhætti veiðimannaþjóðfélagsins og verðbólguþjóðfélagsins líka vel að merkja. Og sá hugsunarháttur er andstæður öllu því, því miður, sem heitir rannsóknir, vísindi og þróun, öllu því. Þess vegna er það auðvitað mikilvægt atriði að við losum um hlutina þannig að menn fari að skynja þetta sem víðtækt og langt ferli, eitthvað sem tekur tíma en getur samt skilað árangri.
Ég nefndi veiðimannahugsunarháttinn og ég nefndi líka verðbólguhugsunarháttinn. Ég held satt að segja að einn versti óvinur vísindalegrar hugsunar, liggur mér við að segja, hér í þessu landi undanfarna áratugi hafi verið verðbólgan, þegar menn voru alltaf á harðahlaupum að bjarga sér og sínum frá degi til dags. Þetta er hugsun sem síaðist alls staðar inn á öllum sviðum, í prívatlífi einstaklinganna, í atvinnulífinu, í efnahagsmálunum í heild, bönkunum, fyrirtækjunum, alls staðar. Ég er þeirrar skoðunar að ef okkur tækist að halda hérna uppi tiltölulega miklum stöðugleika í efnahagsmálum, m.a. lítilli verðbólgu, þá getum við frekar gert okkur vonir um það að við fáum þjóðina alla til að skilja mikilvægi langtímaverkefna eins og vísinda - , rannsókna - og þróunarstarfs.
Þetta læt ég nægja af minni hálfu að sinni, virðulegi forseti. Ég þakka fyrir það framlag sem hér kom fram frá hv. 12. þm. Reykv. Og þeim þingmönnum öllum sem hér hafa verið viðstaddir og hlustað á þessa umræðu þakka ég einnig fyrir að gefa sér tíma til þess.