Löggjöf og eftirlit með vopnasölu
Mánudaginn 18. febrúar 1991


     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. flm. þáltill., Guðmundi G. Þórarinssyni, 10. þm. Reykv., fyrir ítarlega greinargerð sem hann lét fylgja. Í tillögunni er gripið á máli sem er mjög þýðingarmikið í þeim hverfula heimi sem við búum í, en því miður er hann svo hverfull að það sem er rétt í dag er rangt á morgun, þeir sem standa með okkur í dag eru andstæðingar okkar á morgun og andstæðingarnir í dag eru okkar samherjar eftir örskamma stund. Þess vegna held ég að það geti orðið dálítið erfitt að koma svona lögum á sem hægt verður að fylgja af nokkurri sanngirni. Ég er þó ekki á móti því að þessi þáltill. verði samþykkt, síður en svo. En ég velti aðeins vöngum yfir því: Hvernig ætlum við að framkvæma refsingu ef sáttmáli verður brotinn og hver á að framkvæma þá refsingu?
    Einnig mundi ég líta svo á að í a-liðnum, þar sem segir: ,,gerður verði alþjóðasáttmáli á vegum Sameinuðu þjóðanna um skipan vopnasölu í heiminum,`` ætti að standa: gerður verði alþjóðasáttmáli á vegum Sameinuðu þjóðanna um takmörkun vopnaframleiðslu og skipan vopnasölu, mætti gjarnan fylgja. En höfuðatriðið er auðvitað takmörkun vopnaframleiðslu, ekki hvernig við ætlum að skipa því að selja öll þau vopn sem við framleiðum. Vandamál okkar í dag er fyrst og fremst að vera með allt of mikið af vopnum, það er hamslaus vopnaframleiðsla. Og um leið og sú framleiðsla fær að blómstra, þá er auðvitað vitað mál að það þarf að prófa þessi vopn. Þess vegna er númer eitt, tvö og þrjú að í svona alþjóðlegum sáttmála séu ákvæði um takmörkun vopnaframleiðslunnar og síðan um fyrirkomulag á þeirri vopnasölu sem þá mundi verða um að ræða, það er það sem kemur á eftir. En númer eitt er að takmarka vopnaframleiðsluna og helst náttúrlega að skera hana niður í ekki neitt.