Skúli Alexandersson :
Herra forseti. Það mál sem er nr. 2 á dagskrá og var næstum því búið að taka á dagskrá var lagt fram á dálítið sérstakan máta. Hæstv. sjútvrh. leggur það fram sem ráðherrafrv., ekki sem stjfrv. En með yfirlýsingu sem hæstv. ráðherra lét frá sér fara í fjölmiðlum lýsti hann því yfir að þetta væri gert með stuðningi formanns Alþb., Ólafs Ragnars Grímssonar. Ég vil, áður en þessi umræða fer fram, óska eftir svörum við því hvort sá stuðningur var stuðningur við frv. eða hvort sá stuðningur var um það hvernig málið yrði lagt hér fyrir hv. deild.