Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Það var upplýst í sjútvn. Ed. að þetta frv. hefði verið lagt fram með samþykki formanns Alþb. en engin slík samþykkt hefði legið fyrir frá þingflokki Alþb. Í þingnefndinni kom fram og var staðfest að hér er ekki um stjfrv. að ræða og sá eini fulltrúi Alþb. sem á seturétt á Alþingi en ekki atkvæðisrétt mælti með því að þetta frv. yrði lagt fram.