Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum. Eins og öllum er kunnugt um kom í ljós í leiðangri Hafrannsóknastofnunar sem farinn var á sl. hausti að loðnustofninn, hinn veiðanlegi stofn samkvæmt hefðbundnum mælingum, væri aðeins um 360 þús. lestir.
Í framhaldi af þessum niðurstöðum voru loðnuveiðar stöðvaðar í byrjun desember. Það var gert með þeim hætti að um það var þokkalegt samkomulag við veiðiskipin þannig að ekki var gefið út formlegt veiðibann. Síðan var ákveðið að rannsóknaskipið Árni Friðriksson héldi rannsóknum áfram og enn áttu sér stað frekari mælingar á loðnustofninum sem skiluðu engum nýjum niðurstöðum eða nýjum upplýsingum sem gætu orðið til þess að taka aðra ákvörðun. Í framhaldi af því voru haldnir fundir með ýmsum hagsmunaaðilum fyrir jól og milli jóla og nýárs og ákveðið í framhaldi af því að hefja ekki veiðar fyrr en frekari mælingar hefðu farið fram. Þá var jafnframt ákveðið upp úr því að taka upp samstarf við útvegsmenn og sjómenn um loðnuleitina. Í framhaldi af þessu var ákveðið að bæði rannsóknaskipin færu til loðnumælinga í byrjun janúar ásamt fimm veiðiskipum. Út úr þeim mælingum komu mjög svipaðar niðurstöður en loðnan hélt sig þá einkum á tveimur svæðum úti fyrir Austurlandi. Enn var ákveðið að halda rannsóknum áfram og sem betur fer kom í ljós að loðnustofninn mældist lítið eitt stærri eða 525 þús. lestir og aðalgangan hafði þá komið, eins og stundum hefur gerst áður, upp að suðausturströnd landsins.
Í framhaldi af þessu var ákveðið að heimila veiðar á 175 þús. lestum en í gegnum tíðina hefur aðallega verið við það miðað að um 400 þús. lestir gætu gengið til hrygningar. Í ljósi þess að hér var um mjög mikilvæga ákvörðun að ræða, hvernig sem á hana er litið, og þeirrar staðreyndar að ekki getur verið um að ræða algjöra nákvæmni í mælingum sem þessum þótti rétt að heimila lítið eitt meiri veiði en áður hafði verið gert en jafnframt ákveðið að halda áfram rannsóknum á loðnustofninum.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur verið við athuganir á loðnunni og mælingar. Í þeim leiðangri sem lauk hjá því rannsóknaskipi nú í gærkvöldi kom í ljós að endurtekin mæling var mjög sambærileg þeirri sem áður hafði verið gerð, þ.e. á því magni sem kom úr göngunni upp að suðausturströnd landsins. Áður hafði rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson, við endurteknar mælingar, mælt um 50 þús. lestir við austanvert landið. Það magn hefur ekki svo vitað sé komið enn upp að ströndinni. Það má því segja að endurteknar mælingar á þessum stofni hafi ekki leitt í ljós nein veruleg frávik og það er ekki ástæða til að vænta þess að þar verði mikil breyting á nema þá að ný ganga komi öllum að óvörum upp að landinu, hvort sem það væri upp að suðausturströnd landsins eða upp að vesturströndinni. Það hefur vissulega gerst áður en yfirleitt hefur þá orðið vart við slíkar göngur við Vestfirði eða austanvert landið á þessum tíma.
Það er að vísu vitað mál að eitthvað af loðnu er við Vestfirði en ekki hefur verið talið að þar væri um verulegt magn að ræða. Hins vegar verður gengið úr skugga um það, annaðhvort með því að Árni Friðriksson fari í rannsóknaleiðangur til að athuga það eða það verði gert í tengslum við rannsóknaleiðangur sem nú er að hefjast á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Líkur eru til þess að það verði eitt fyrsta verkefni í þeim rannsóknaleiðangri að athuga enn frekar um loðnu úti fyrir Vestfjörðum.
Það er jafnframt haft í huga að ef nauðsynlegt er talið fari rannsóknaskipið Árni Friðriksson enn á ný í stuttan rannsóknaleiðangur, einkum til þess að fylgjast með því hvort einhverjar frekari göngur af loðnu komi upp að suðausturströndinni. Því má segja að aldrei fyrr hafi verið lagt í jafnmikinn kostnað við loðnurannsóknir og loðnuleit og á þessu hausti og þessum vetri. Margir hafa dregið mjög í efa þær niðurstöður sem okkar vísindamenn hafa komist að en endurtekin mæling leiðir það í ljós að mínu mati að ekki er hægt að efast um þær alvarlegu niðurstöður sem þeir hafa komist að. Það má því segja að ef þær eru dregnar mjög í efa, eins og sumir gera, þá verði að draga mjög í efa allar fyrri rannsóknir á þessum stofni.
Það er að mínu mati mikilvægt að spara á engan hátt til nú í vetur til að endurtaka mælingar og framlengja rannsóknir, ekki síst til að sannreyna hvort áreiðanleiki slíkra mælinga er ekki fyrir hendi. Ég hef fyrir því nokkra sannfæringu að þessar mælingar séu áreiðanlegar og beri að taka alvarlega enda höfum við ekkert annað betra til að byggja á. Loðnan er aðalundirstaðan í fæðu þorsksins og annarra botnfisktegunda, einkum þó þorsksins og við hljótum því að leggja mikið upp úr því að ganga ekki of langt í þessum efnum.
Það er hins vegar svo að með tilliti til þeirra viðskiptahagsmuna og hagsmuna einstakra byggðarlaga sem hér eru í húfi þótti rétt að leyfa veiðar á þessu magni og tel ég að þar sé ekki stefnt í neina verulega hættu og það sé svo mikilvægt að viðhalda þeim mörkuðum sem við höfum m.a. aflað okkur í Japan að við hljótum að reyna að sinna þeim með sem bestu móti enda þar mikil verðmæti í húfi fyrir þá sem atvinnu hafa af þessum veiðum og vinnslu og ekki síst fyrir þjóðarbúið í heild.
Allan þann tíma sem þessi alvarlega staða hefur verið uppi hefur verið fjallað um það með hvaða hætti skyldi við bregðast. Það var ekki óeðlilegt að eitt það fyrsta sem um væri fjallað í þessu sambandi væri til hvaða verkefna þau 44 eða 45 skip, sem þessar veiðar hafa stundað, skyldu halda. Það er staðreynd sem ekki verður á móti mælt að þessi skip stunduðu ýmsar aðrar veiðar, sérstaklega botnfiskveiðar, á loðnuleysisárunum. En þegar loðnuveiði skánaði á nýjan leik þótti rétt að skerða veiðiheimildir þessara skipa að því er botnfisk varðar mjög verulega og urðu þær tiltölulega mjög litlar. Hins vegar eru dæmi þess að einstaka skip hafi veitt allt upp undir 3000 tonn af botnfiski á einu ári þegar loðna var ekki veidd.
Samkvæmt 9. gr. laga um stjórn fiskveiða er ráðherra veitt heimild til að bregðast við ástandi sem þessu og á því er enginn vafi að skilyrði til að uppfylla þetta lagaákvæði eru fyrir hendi. Hér er að sjálfsögðu ekki einungis um heimild til ráðherra að ræða þannig að hann geti farið með hana eftir því sem honum best þykir henta hverju sinni heldur leggur þessi heimild á hann skyldur til að bregðast við í tilvikum sem þessum. Þannig eru margar heimildir í lögum og má e.t.v. segja að um það megi deila hvort rétt sé að leggja slíkar skyldur á ráðherra í alvarlegu máli eins og þessu eða hvort rétt þykir að leggja það fyrir Alþingi hverju sinni. Á það ætla ég ekki að leggja mat en tel hins vegar að í tilviki sem þessu, þegar veiðiheimildir íslenska flotans eru tiltölulega litlar og rekstrargrundvöllur margra skipa heldur bágur, sé það svo alvarlegt mál að skerða veiðiheimildir skipanna enn frekar að það þurfi að leita allra annarra leiða áður en slíkt er gert.
Þá vaknar að sjálfsögðu sú fyrsta spurning, hvort eitthvað skuli gera fyrir þessi skip eða ekki. Það kunna margir að vera þeirrar skoðunar að svo eigi ekki að gera. Þau verði að bera þetta mikla tekjutap eins og ekkert hafi í skorist og ráðherra að komast að þeirri niðurstöðu að það beri á engan hátt að bregðast við. Ég tel að slík niðurstaða sé á engan hátt rökrétt né sanngjörn miðað við það sem segir í lagagreininni. Ég hef því kosið að fara þá leið og leggja það til að allra annarra leiða sé leitað áður en þessari 9. gr. er beitt og gef mér þá forsendu að henni verði að beita ef aðrar tiltækar leiðir finnast ekki.
Það er svo í þessu máli eins og mörgum öðrum að ekki eru margar leiðir færar. Það fyrsta sem kemur í huga er hvort rétt sé að auka veiðiheimildir í einhverjum stofnum. Sérstaklega hefur þorskur þar verið nefndur. Ég hef ekki viljað standa að því á þessu stigi máls vegna óvissu um framvindu mála og tiltölulega litla veiði að undanförnu. En væntanlega munu mælingarnar á næstunni gefa okkur betri upplýsingar um það hvort Grænlandsganga hefur komið á Íslandsmið og þær forsendur sem eru fyrir fyrri ákvörðunum að því er þann stofn varðar reynist bærilega traustar. Það gæti vissulega komið til þess að einhver frekari skerðing yrði á veiðum í þorski. Það væri óeðlilegt að fara að taka nú ákvörðun um aukningu þar í þessu skyni. Hins vegar er það svo með rækjustofninn að hann hefur sem betur fer reynst allsterkur. Það er margt sem mælir með því að þar verði veiðar eitthvað auknar. Því hefur verið lagt til að rækjuveiðin verði aukin um 5 þús. lestir og þær veiðar einkum stundaðar af loðnuskipunum.
Ég tel jafnframt að það sé rækjuiðnaðinum hentugt um þessar mundir að hægt verði að auka rækjuveiðina. Ekki sérstaklega vegna þess að markaðsaðstæður séu svo góðar að því er rækjuna varðar, heldur vegna þess að það er þeim mikilvægt að fá meira magn til vinnslu þannig að afkoma þeirra batni. Loðnuskipin eru afkastamikil rækjuveiðiskip sem hafa reynst rækjuverksmiðjunum traustir og góðir samstarfsaðilar, bæði á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Því
tel ég að aukin veiði þeirra muni koma atvinnulífi í þessum landshlutum til góða en þeir þurfa mjög á því að halda.
Þá er það einnig ljóst að Hagræðingarsjóður hefur til ráðstöfunar á fyrsta átta mánaða tímabili þessa árs, þ.e. því fiskveiðiári sem nú er yfirstandandi, 8 þús. lestir af botnfiski. Það er hlutverk þessa sjóðs að bregðast við aðstæðum, einkum í byggðarlögum sem hafa misst veiðiskip í burtu frá sér og þar sem búið er við verulegt atvinnuleysi. Ég tel hlutverk þessa sjóðs vera mikilvægt fyrir framtíðina en hinu er ekki að leyna að það mun taka nokkurn tíma að komast að niðurstöðu að því er varðar einstök byggðarlög. Jafnframt verður að taka tillit til þess að það er svo alvarlegt mál fyrir mörg byggðarlög víða um land að aflaheimildir verði skertar frá því sem nú er að ekki er óeðlilegt að brestur sem þessi flokkist undir svipuð tilvik og lögin um Hagræðingarsjóð telja.
Það hefur því orðið mín niðurstaða að leggja til að þeim 8 þús. lestum sem þessi sjóður hefði annars fengið til ráðstöfunar verði í þessu tilviki ráðstafað til loðnuflotans. Það mætti vissulega gera með tvennum hætti. Annars vegar með því að Hagræðingarsjóður fengi það hlutverk að bregðast við aðstæðum sem þessum, sem við skulum vona að komi tiltölulega sjaldan, eða að gera það með ákvæði til bráðabirgða eins og hér er lagt til. Og ef slík aðstaða kæmi upp aftur mundi það verða gert með svipuðum hætti, með því að leggja frv. fyrir Alþingi.
Ég hef orðið þess var víða þar sem ég hef komið í sambandi við þetta mál og jafnframt í mörgum byggðarlögum sem eingöngu byggja á
botnfiskafla að þau leggja allt upp úr því að ekki komi til frekari skerðingar á þeirra aflaheimildum. Þannig get ég nefnt dæmi af byggðarlagi eins og Raufarhöfn sem hefur verulegra hagsmuna að gæta að því er varðar loðnuveiðar. Þeir lögðu á það megináherslu að ekki kæmu til frekari skerðingar á aflaheimildum þeirra þar á staðnum, bæði að því er togarann varðar og líka að því er smábátana varðar því að mjög margir af þeim mönnum sem hafa haft atvinnu við loðnubræðslu eru menn sem stunda róðra á trillum á vorin og á sumrin. Því mundi skerðing á þeirra veiðiheimildum í reynd verða tvöfaldur skellur fyrir þá.
Margir sem um þetta mál hafa fjallað hafa gjarnan sagt að það væri að sjálfsögðu ekki nóg að líta til hagsmuna skipanna og áhafna þeirra, heldur yrði jafnframt að huga að hagsmunum verksmiðjanna, byggðarlaganna og þess fólks sem hefur haft atvinnu af þessari vinnslu. Það er vissulega rétt og vil ég í því sambandi benda á greinargerð sem er með þessu frv. en þau mál hafa verið mjög til umfjöllunar.
Það er því miður svo að ekki er auðvelt að útvega verksmiðjunum ný verkefni og því hljóta menn fyrst og fremst að huga að framtíðarstöðu þeirra og nota tækifærið til þess að endurskipuleggja þann rekstur og reyna að fækka þeim þannig að framtíðarhagur verksmiðjanna og skipanna sé svo bjartur að það sé til þess von að þessi atvinnutæki verði til staðar þegar
loðnuveiði hefst af fullum krafti á nýjan leik. Ég ætla ekki að hafa um það mörg orð en vitna til greinargerðar sem fylgir þessu frv.
Að því er sveitarfélögin varðar, þá eiga þau rétt á tekjujöfnunarframlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þótt slík framlög geti á engan hátt komið í stað þeirra tekna sem þau mundu tapa munu þau lagfæra stöðu sveitarfélaganna verulega.
Að því er atvinnumál á einstökum stöðum varðar er það að mínu mati mikilvægt að verksmiðjurnar séu það vel staddar fjárhagslega að þær geti tekið áföllum sem þessum á þann hátt að fólkið sem þar vinnur geti unnið að viðhaldi og margvíslegum endurbótum þegar slíkt kemur fyrir eins og nú. Það er því miður svo að margir þessara aðila hafa staðið í verulegum fjárfestingum á undanförnum árum og eru því illa í stakk búnir fjárhagslega til að halda utan um sitt starfslið, en það verður hins vegar að segjast eins og það er að allir eru að reyna að leysa þau mál svo þeir geti haldið þeim kjarna sem hefur verið uppistaðan í þeirra atvinnustarfsemi. Til þess þurfa þessir aðilar skilning þeirra stofnana sem lána þeim fjármagn en það er jafnframt að mínu mati langmikilvægast að afkoma þessara fyrirtækja sé það góð í framtíðinni að þau geti tekið á sig áföll sem þessi. Það verður best gert með því að endurbæta þessar verksmiðjur miðað við þarfir markaðarins eins og þær eru í dag og fækka þeim þannig að rekstrartími þeirra lengist og þær skili betra árangri.
Að því er varðar atvinnumál í einstökum byggðarlögum er að sjálfsögðu hægt að grípa til margvíslegra ráðstafana. Mörg þessara byggðarlaga leggja á það áherslu að flýta opinberum framkvæmdum og grípa til aðgerða sem bæta ástand á viðkomandi stöðum. Sums staðar er þannig háttað að viðkomandi byggðarlög geta aukið úrvinnslu sjávarafla, en mörg þeirra vildu gjarnan fá meiri sjávarafla til vinnslu. Þeirri hugmynd hefur verið hreyft að rétt væri að skylda loðnuskipin til að landa á þessum stöðum til þess að bæta atvinnuástandið. Ég skil mjög vel slíka hugsun. Hins vegar verður það að teljast óeðlilegt að leggja allt aðrar kröfur á þennan hluta flotans en gengur og gerist með flotann í heild. Það er hins vegar annað mál að við Íslendingar hljótum að stefna að því að vinna sem mest af okkar afla hérlendis og sem betur fer hafa þær skerðingar, sem ákveðnar hafa verið með nýsettum lögum, borið þar nokkurn árangur því útflutningur á ferskum þorski hefur stórlega dregist saman nú í upphafi ársins og meira komið til sölu á innlendum mörkuðum þótt ekkert skuli um það fullyrt hvort þar er um varanlegt ástand að ræða. Auðvitað má auka slíkar skerðingar ef menn vilja beina meira magni að innlendri vinnslu, en að mínu mati er ekki hægt að mismuna flotanum í þeim efnum með því að leggja þessa skyldu á loðnuskipin en allt aðrar skyldur á önnur skip.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins að lokum ítreka það að ég tel að hér sé verið að framfylgja þeim skyldum sem sjútvrh. hefur skv. 9. gr. laganna. Ég tel hins vegar svo alvarlegt að beita þessari 9. gr. vegna þess
hve lítill afli er til ráðstöfunar hjá mörgum byggðarlögum og skipum að menn hljóta að leita allra leiða áður. Því vænti ég þess að hv. alþingismenn hafi svipaðan skilning í þeim efnum og reyni að koma í veg fyrir það að 9. gr. verði beitt. En ef þeir hafa hins vegar þá skoðun að flotinn eigi ekki að fá neinar bætur og standa frammi fyrir þeim alvarlega loðnubresti án þess að nokkrar bætur komi fram, þá er það skoðun út af fyrir sig en henni er ég ekki sammála.
Ég vil svo að lokum þakka hv. sjútvn. fyrir að hafa tekið þetta mál nú þegar til meðferðar. Ég vænti þess að það sé heldur til bóta en hitt því að oft og tíðum er mikilvægt að geta kallað til sín aðila áður en umræður fara fram. Og að mínu mati mætti það frekar vera regla að því er varðar mörg frv. að nefndum gefist kostur á að fjalla um mál áður en þau eru tekin til meðferðar í deildum en hitt. Ég vænti þess að gott samstarf geti náðst um að hraða heldur afgreiðslu á þessu máli. Þótt ég geri mér fyllilega ljóst að skiptar skoðanir kunni að vera á því þá vænti ég þess að við séum sammála um að það sé eðlilegt að dreifa þeim byrðum sem á aðila eru lagðar vegna loðnubrestsins með réttlátum hætti og á þann hátt að það komi sem jafnast út fyrir þá sem mestra hagsmuna hafa hér að gæta.
Það er líka mikið hagsmunamál fyrir botnfiskveiðiflotann að vel sé gengið um loðnustofninn og þess vegna veit ég að það er fullur vilji fyrir því hjá þeim aðilum að sýna þessu skilning og ætti að vera nægilegt að nefna að á fundi sem haldinn var hjá Landssambandi ísl. útvegsmanna var yfirgnæfandi meiri hluti sem vildi að flotinn fengi þessar bætur og mun meira. Eru það aðilar sem koma alls staðar að af landinu og eru að sjálfsögðu fulltrúar allra þeirra manna sem þar hafa hagsmuna að gæta. Svipaða afstöðu hafa sjómannasamtökin tekið í þessu máli og ætti það að vera nægilegur vitnisburður um það hvað mál þetta nýtur mikils skilnings þó að sjálfsögðu vilji enginn missa af því sem hann hefur fyrir.
Ég vil svo að lokum leggja til að þessu máli verði vísað til hv. sjútvn. og 2. umr.