Ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Karvel Pálmason :
    Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. sjútvrh. sérstaklega til hamingju með hinn nýja og ferska stuðningsmann sem hann hefur aflað sér í dag, og kannski hæstv. ríkisstjórn líka, þar sem í hlut á hv. þm. Halldór Blöndal. Það er ekki afleitt fyrir hæstv. ráðherra að fá stuðning slíkra hv. þm. eins og hér á í hlut og það fellur í sama farveg því að hæstv. sjútvrh. gegndi starfi hæstv. forsrh. fyrir stuttu síðan og féllst þá á kröfu hv. þm. Halldórs Blöndals um breytingu á kosningalögum og kannski er þetta gagnkvæmt núna, að hv. þm. Halldór Blöndal hafi lofað stuðningi við þetta vegna þess að það var farið að hans kröfu í hinu tilvikinu. Það er merkilegt og ástæða til að íhuga það sérstaklega hvernig þessar leiðir liggja saman hjá hæstv. ráðherra og hv. þm. Halldóri Blöndal, hvaða spottar það eru sem í er togað í hverju tilviki. En ekki meira um það.
    Hæstv. ráðherra fór hér vítt og breitt um sviðið vegna þess frv. sem hér er um að ræða og ekki að ástæðulausu því að vissulega er það viðurkennt að hér er vandi á ferðinni. En það er líka spurning hvort það frv. sem hér er um að ræða tekur á þeim vanda eða bara hluta af honum. Og það heyrist mér almennt menn vera nokkuð sammála um að hér er einvörðungu tekið á kannski litlum hluta af því vandamáli sem um er að ræða. En ég held að það sé nauðsynlegt með örfáum orðum að rifja aðeins upp sögu eða aðdraganda þess sem nú er að gerast.
    Ný lög um fiskveiðistjórnun tóku gildi nú um áramót og einnig lög um Hagræðingarsjóðinn. Þetta var samþykkt á Alþingi í maí sl. og ein rökin voru þau að hvor tveggja þessi lög væru með þeim hætti að þau eru ótímasett vegna þess að þau þyrftu að standa nokkuð langan tíma án þess að þeim yrði breytt. Það voru ein meginrökin fyrir því, m.a. hjá hæstv. sjútvrh., að hafa löggjöfina ótímasetta. Nú eru tæplega tveir mánuðir frá því að lögin tóku gildi og þegar er komið frv. um breytingu á löggjöfinni, komið frv. á þessum tíma þrátt fyrir það að engin reglugerð hafi verið sett fyrir þennan sjóð sem hér er um að ræða. Engin reglugerð komin út. Og það er nýbúið að skipa stjórnina í sjóðinn. Kannski segja menn eðlilega vegna þess að lögin tóku ekki gildi fyrr en núna um áramótin. En það eru ekki traustvekjandi vinnubrögð, sem hér er um talað, að nota þá röksemdafærslu við afgreiðslu laga hér á Alþingi, m.a. í þá veru að tímasetja þetta ekki vegna þess að lögin séu það merkileg að það þurfi að láta á þau reyna, en hlaupa svo upp til handa og fóta tæpum tveim mánuðum síðar með breytingu á viðkomandi lögum. (Gripið fram í.) Hvað segir hv. þm., Halldór Blöndal, nýjasti stuðningsmaður hæstv. ráðherra? ( HBl: Þetta er engin stjórnviska, segi ég.) Það er trúlega rétt hjá hv. þm., þetta er engin stjórnviska, en samt styður hann það dyggilega.
    Hér hafa menn auðvitað talað um vandamál á fleiri sviðum heldur en nú steðja að varðandi loðnuna. Hagræðingarsjóðurinn var töframál þeirra sem á sínum

tíma vildu koma honum á og virðist vera það enn. Og þeir fyrstu sem stuðluðu að því að sjóðakerfið svonefnda var lagt niður, eru nú hinir fyrstu sem sækja í sjóðinn, þennan nýstofnaða. Og það sýnir auðvitað hvers konar hráskinnaleikur það er sem menn hafa uppi í stjórnun fiskveiða, stjórnun hagræðingar innan fiskveiðistefnunnar og almennt í stjórnun hér í landinu, þegar svona liggur nánast á borðinu. Hagsmunasamtök í sjávarútvegi, bæði Landssamband ísl. útvegsmanna, Farmanna - og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og aðrir hagsmunaaðilar í þessu máli, voru sammála um að leggja niður alla sjóði. Þeir ættu ekki rétt á sér lengur. Og það var gert. Þangað til í maí í fyrra að þessi nýi sjóður sá dagsins ljós. Og þeir fyrstu sem biðja um úr honum eru þeir sem voru fremstir í flokki með að leggja niður sjóðakerfið.
    Hæstv. sjútvrh. sagði hér áðan að bæði Landssamband ísl. útvegsmanna og sjómannasamtökin mæltu með þessari leið og þvílíkur vitnisburður nægði til þess að það ætti að fara hana. Hvað sögðu þessir aðilar, bæði Landssamband ísl. útvegsmanna og sjómannasamtökin, bæði Farmanna - og fiskimannasambandið og Sjómannasambandið á sínum tíma um fiskveiðistefnuna? Þeir stigu fyrstu skrefin með hæstv. sjútvrh. til að innleiða þá fiskveiðistefnu sem við höfum núna og höfum búið við nánast frá því 1984. Og hver er reynslan af henni þó að þessir aðilar hafi nánast leitt þjóðina ásamt hæstv. ráðherra inn í þessa stefnu? Þeim fjölgar alltaf og það verulega sem eru andstæðir þessari fiskveiðistefnu. Þeir sjá með reynslunni til hvers hún leiðir. Og þetta er enn eitt dæmið um það til hvers sú fiskveiðistefna leiðir sem hæstv. ráðherra og hagsmunasamtökin öll upp til hópa hafa stuðlað að að næði fram að ganga, þannig að í mínum huga eru það engin sérstök meðmæli með þessu frv. þó að Landssamband ísl. útvegsmanna eða aðrir hagsmunaaðilar mæli sérstaklega með því. Það mætti kannski segja þveröfugt ef menn líta í ljós reynslunnar varðandi kvótann. Það mætti kannski segja þveröfugt.
    Það hefur komið hér fram, án þess að ég ætli, virðulegur forseti, að teygja neitt úr umræðum hér eða tefja málið, það er engin ástæða til þess, en mér sýnist á öllu að með nýjum liðsstyrk við hæstv. ráðherra, þá sé nokkuð ljóst að málið er nánast í höfn með þessum nýja liðsstyrk þó að hv. þm., varaformaður þingflokks þeirra sjálfstæðismanna, segði hér eitthvað áðan á þá leið: Ég styð frv., en ég veit nánast ekkert um þingflokkinn minn, hann hefur ekki tekið afstöðu. Og nú bíðum við og sjáum hvað setur, hvort fleiri hv. þm. Sjálfstfl. hafa lagst á sveif með hæstv. ráðherra til þess að tryggja framgöngu þessa máls hér á Alþingi. Sé það svo, er það þá vísbending um eitthvað annað sem koma skal að kosningum loknum? Er það vísbendingin um það sem menn eru þarna að bralla sitt á hvað frá Framsfl. og sjálfstæðismönnum í hinu og þessu málinu? Er það það sem á að koma í framkvæmd eftir kosningar? Menn geta m.a. hugleitt þetta mál í ljósi þessa.
    Nú hefur það komið hér fram að með lögunum

sem samþykkt voru í maí sl. var verulega hert á skrifstofuhaldinu og einræðiskenndinni hjá viðkomandi hæstv. ráðherra, hver sem hann er hverju sinni, verulega hert á því að hann réði lögum og lofum í stjórnun fiskveiða við landið. (Gripið fram í.) Nei, það er eins gott að það heyrist ekki.
    Það er auðvitað augljóst að lögin sem tóku gildi núna um stjórnun fiskveiða herða mjög á þeim aðilum sem hafa stundað þorskveiðar fyrst og fremst. Menn muna kannski hvað hefur verið sagt, sem er rétt um smábátaeigendurna, eins og hv. þm. Margrét Frímannsdóttir minntist hér á áðan. Það eru gjaldþrot hjá trúlega fleiri tugum ef ekki hundruðum fjölskyldna í landinu vegna þeirrar fiskveiðistefnu sem núverandi lög hafa innleitt.
Það var ekki hlaupið upp til handa og fóta þá til að bjarga þeim aðilum í þessu máli sem eru trúlega ekkert færri en þeir sem eiga hlut að máli varðandi loðnuna. Og menn hlupu ekkert upp til handa og fóta þó hrefnuveiðar stöðvuðust og hafa verið stöðvaðar svo árum skiptir. Þar hafa heilu fjölskyldurnar þurft að búa við gjaldþrot vegna þess. Engin ástæða var séð til þess af ráðamönnum að gera eitt eða neitt í þá veru.
    Það er auðvitað augljóst að með þessu frv. eru menn að skerða hjá þeim sem þegar er búið að skerða verulega hjá í þorskveiðum. Það er búið að skerða hjá þeim aðilum sem stundað hafa þorskveiðar undangengin ár svo mikið og enn frekar með núverandi fiskveiðistefnu, sem tók gildi um áramót, að það er ekki gerlegt að leggja meira á þá. Er skynsamlegt að leysa þann vanda sem fyrir höndum er, og ég viðurkenni að er nokkuð mikill en á kannski eftir að versna enn, með því að ganga á fiskveiðiflotann með þorskinn, skerða hann enn frekar til þess að láta loðnuskipin hafa hann? Á þetta þá ekki að vera sameiginlegt frá þjóðarbúinu öllu? Á þetta ekki að vera sameiginlegt skipbrot allra landsmanna og taka á því þannig? Það er stór spurning og kannski augljóst að það verður að gera meira en þetta. Þó veltur það auðvitað á því hvernig úr rætist varðandi aflamagnið, veiðarnar sjálfar. Ég sé ekkert réttlæti í því að ganga þá götu frekar að skerða þorskveiðarnar hjá þeim sem hafa sitt lifibrauð af því og dugar ekki til undir núverandi stjórn.
    Mér fannst hæstv. ráðherra í sjónvarpsviðtali, líklega fyrir tveimur dögum eða svo, nánast vera með hótanir vegna þessa máls. Ég þori ekki að fullyrða hvort ég man það orðrétt en efnislega man ég það: Ef þetta frv. verður ekki samþykkt þá er það 9. greinin. 9. gr., sem hæstv. ráðherra taldi nauðsynlegt að væri inni í löggjöfinni sem var samþykkt í maí. Til hvers þá? Átti að nota hana sem hótun eða átti að beita henni? Svona hljóta menn að spyrja þegar svona er talað.
    Hér sagði einhver áðan: Það er auðvitað nauðsynlegt að dreifa byrðunum réttlátlega. Ég held að það hafi verið hæstv. sjútvrh. sem sagði það. Og ég spyr á móti: Er þetta réttlát dreifing byrða að haga því með þessum hætti? Er þetta réttlætið? Er þetta eina réttlætanlega leiðin sem hæstv. ráðherra sér í því að leysa þennan vanda? Var ekkert annað til í huga

hæstv. ráðherra, nú eða hæstv. ríkisstjórnar, þeirra sem þetta styðja? Þá er auðvitað ástæða til að spyrja --- menn hafa talað um Alþfl., Alþb., Framsókn, ríkisstjórnarflokkana. Hvar er Borgfl.? Hvar er hann í þessu máli? Hvar eru ráðherrar hans? Og hvar eru fulltrúar hans hér í hv. deild í þinginu? Það væri ástæða til að fá vitneskju um það hver þeirra afstaða er í þessu máli. Ekki síst vegna þess að Borgfl. brást í því hlutverki sem honum var ætlað í þeirri lagasetningu. Það mál hefði fallið hér á hv. Alþingi ef fulltrúi Borgfl. hefði skapað sér þá stöðu sem hann átti að gera með því að koma í veg fyrir að lögin sem nú eru í gildi næðu fram að ganga. Þannig að Borgfl. ber að minnsta kosti mikla ábyrgð á því hvernig komið er varðandi stjórnun fiskveiða.
    Hv. þm., nýjasti stuðningsmaður hæstv. sjútvrh., var undrandi á því að þingmenn vildu ræða um sjávarútvegsmál í tengslum við þetta frv. Ég sé ekki annað en að hér sé einn af stóru þáttum sjávarútvegsstefnunnar, sjávarútvegsmálanna, sem þetta frv. fjallar um.
    Ég hef gagnrýnt harðlega, og geri það enn, þá fiskveiðistefnu sem við höfum búið við undanfarin nokkuð mörg ár og ekki hvað síst núna vegna þess að henni er miðstýrt héðan frá Reykjavík, henni er miðstýrt nánast frá einum einstaklingi, sem er sjávarútvegsráðherra hverju sinni. Þetta frv. eykur vald hans til miðstýringar. Það eykur vald hæstv. ráðherra til miðstýringar í þessum efnum. Það er verið að færa honum meira vald, verði þetta samþykkt, en þegar er í hans höndum vegna löggjafarinnar sem nú er í gildi um stjórnun fiskveiða. Ég er því andvígur. Það á ekki að vera nýtt fyrir neinum að heyra slíkt. Ég hygg að það hafi ekki þurft að fara í grafgötur með minn vilja í þessum efnum. Það ætti hver að hafa vitað fyrir. Ég er jafnmikið á móti þessu eins og ég hef verið á móti þeirri fiskveiðistefnu sem hefur verið innleidd hjá okkur, sem er ekki hvað síst með þessu frv. að sýna að er svo meingölluð að menn geta átt á því von, hvenær sem er, að hæstv. ríkisstjórn, hver sem hún er, og hæstv. sjútvrh., hver sem hann er, grípi inn í með þessum hætti. Aukin völd, aukin miðstýring. Og ég er alveg sannfærður um það að þessi stefna á ekki langa lífdaga fyrir sér.
    Ég hygg að menn hafi áttað sig á því að þeir verða að fara inn á nýjar brautir. Það hefur lítið sem ekkert staðist af því sem þessi löggjöf hefur talið að ætti að gera. Hún hefur skapað meiri vanda en hún hefur nokkurn tímann leyst og því verða menn auðvitað að átta sig á.
    Ég skal, virðulegur forseti, ekki hafa þessi orð öllu fleiri. Þetta er 1. umr. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt að það eru auðvitað skynsamleg vinnubrögð, þó málið sé ekki komið til umræðu hér í þinginu að nefndir fái um það að fjalla, innan þeirra marka sem nefndarmenn hljóta að setja sér um að ekki sé verið að hnýta málin með einum eða öðrum hætti í afgreiðslu hér inni í þinginu þó nefndir fái að fjalla um það með þessum hætti.
    Það kann vel að vera að mjög mikil nauðsyn sé á

því að flýta þessu máli. Ég tek þó undir með hv. þm. Skúla Alexanderssyni að það er nánast einkenni á öllum umræðum hér um sjávarútvegsmál að það má helst ekki heyrast, hvorki hér innan veggja þingsins eða fyrir utan, fyrr en búið er að negla og njörva allt niður eins og hæstv. ráðherrar og meiri hluti hér á Alþingi vill hafa hlutina hverju sinni. Og þetta er auðvitað ljóður á því, þetta er ein mikilvægasta atvinnustefnan sem menn þurfa að hlúa að, þurfa að ræða um og þurfa að gera sér grein fyrir hvernig á að leysa þau vandamál sem þar eru uppi hverju sinni.
    Ég tók eftir að hæstv. sjútvrh. sagði áðan: Verði þetta að lögum þarf ekki enn, ekki í þessu tilviki, að breyta 9. gr. Er hæstv. ráðherra að gefa eitthvað í skyn um að það kunni að verða gert, þrátt fyrir að þetta verði samþykkt? Á þetta bara að verða fyrsta skrefið í þessari göngu, þetta frv., og svo 9. gr. næst? Af því að það viðurkenna allir að það er kannski meiri vandi en menn eru að tala um sem þetta frv. kann að leysa. Það hefur verið bent á það að hér er bara verið að tala um hlut skipanna og kannski hugsanlega áhafna þeirra. En hér eru skildar eftir verksmiðjurnar, sveitarfélögin, verkafólkið. Það liggur allt eftir. Þó svo að þetta frv. verði samþykkt þá er þessi vandi fyrir hendi enn. Og ég sé það ekki, hversu velviljaður sem ég vil vera gagnvart hæstv. sjútvrh., eða þeim sem halda á þessu máli í hans umboði, hvort sem það er hv. þm. Halldór Blöndal eða einhverjir aðrir, þá get ég ekki séð að þetta mál . . . ( EgJ: Ekki er hann stjórnarliði.) Stjórnarliði, Halldór Blöndal? Já, það upplýstist í dag, hv. þm. Egill Jónsson. Halldór Blöndal er orðinn stjórnarliði, einhver dyggasti stuðningsmaður hæstv. sjútvrh. í þessu máli. Það er á hreinu.
    En að lokum. Ég sé ekki að þetta frv. leysi þann vanda sem við er að glíma. Ég viðurkenni þann vanda og tel að á honum þurfi að taka en með þessum hætti verður hann ekki leystur. Það er tekið af þeim sem hafa búið við þetta enn meira og fært til hluta af þeim sem eiga í vandanum en stór hópur liggur óbættur hjá garði að því er þetta varðar.