Ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Eiður Guðnason :
    Herra forseti. Ég ætla aðeins að auka nokkrum orðum inn í þessa umræðu. Það má vel rétt vera hjá hv. 3. þm. Vestf. að það frv. sem hér er til umræðu leysi ekki þann vanda sem við er að fást. Það er sjálfsagt alveg rétt hjá honum, það gerir það ekki. En það er a.m.k. tilraun til að koma til móts við þá sem eru í vanda staddir vegna þess hvernig mál hafa á þessum vettvangi þróast. Það er tilraun til að leysa þennan vanda. Hún er umdeild, það hefur komið fram hér. En ég verð hins vegar að segja að mér finnst þessi umræða ekki einkennast af alvöru málsins, vegna þess að það er alvarlegt mál sem hefur gerst. Og það er, eins og hér hefur komið fram í umræðunni, það er ekki bara alvarlegt fyrir sjómennina á loðnuskipunum, það er ekki bara alvarlegt fyrir útgerðir loðnuskipanna. Það er alvarlegt fyrir miklu, miklu fleiri. Og það er auðvitað næsta auðveldur leikur að koma hér í ræðustól og segja: Hæstv. sjútvrh., þetta er alveg ómögulegt. En það þýðir þá ekki jafnframt að vera hissa á því þó þeir sem þannig gagnrýna séu að því spurðir hvað þeir vilji gera. Það þýðir ekki að bera sig upp undan því að um það sé spurt. Mér finnst á það hafa skort að um það hafi komið skýr svör. Og það þarf auðvitað ekkert að fara um það mörgum orðum að á þeim sem segja sem svo: Þessi leið er ófær og ómöguleg, á þeim hvílir sú skylda að benda þá á aðrar og betri leiðir. Ég hef ekki heyrt það frekar en fyrri daginn.
     Þegar frv. um stjórn fiskveiða og Hagræðingarsjóð voru samþykkt á sínum tíma höfðum við þingmenn Alþfl. ýmsar athugasemdir við þau að gera. Sumar af þeim voru teknar til greina að einhverju eða öllu leyti og aðrar ekki. Niðurstaðan varð auðvitað sú málamiðlun sem kannski enginn var raunverulega ánægður með. En engu að síður sú málamiðlun sem náðist í þeirri stöðu. Nú fjöllum við um þetta við breyttar aðstæður. Ég viðurkenni það að ég hafði ekki hugsað mér að nota þyrfti Hagræðingarsjóðinn með þessum hætti og á þessum tíma, þ.e. svona fljótt, og hafði bundið vonir við að hægt væri að nota hann til þess sem átti að vera og er hans höfuðmarkmið, að koma til móts við þau byggðarlög sem í vanda væru stödd.
    Auðvitað er með nokkrum hætti verið að því með því sem verið er að gera núna tímabundið til átta mánaða. Það er verið að bregðast við vandanum. Það kom fram hér áðan að þingflokkur Alþb. vildi ekki standa að þessu máli með þeim hætti sem það liggur nú fyrir. Það er skylt að geta þess og láta það koma fram að málið varð ekki útrætt í þingflokki Alþfl. þegar það var lagt fram. Þar voru uppi skiptar skoðanir en þar var allverulegur stuðningur við málið, að mínu mati, án þess að um það hefðu verið greidd atkvæði. Það voru einstakir þingmenn sem höfðu um það athugasemdir. Það er bara eins og gengur og gerist að því er þessi mál varðar. Þar sýnist mönnum ekki eitt og veldur þar ýmislegt. En það er ekki lausn á málinu að fresta því og bíða eins og ég heyrði lagt til áðan. Mér er þessi lausn ekkert alls kostar að

skapi, langur vegur frá. Ég geri mér grein fyrir því að hún hefur marga annmarka. Ég held hins vegar að í þeirri stöðu sem við nú erum væri það ábyrgðarleysi að gera þetta ekki. Vegna þess að ég held að svo megi líta á að ef þetta frv. og þær ráðstafanir sem hér er gert ráð fyrir að gerðar verði ná ekki fram að ganga á Alþingi sé ég ekki, og ég tek það ekki sem neinar hótanir, að sjútvrh. eigi neinn annan kost en að beita þeim ákvæðum 9. gr. sem heimila skerðingu á alla. Þeir lögspekingar kunna að vera til sem halda því fram með rökum að ekki aðeins sé þetta óhjákvæmilegt heldur beri ráðherranum skylda til þess. Fyrir því er örugglega hægt að færa lagarök. Af því tvennu sem þá við blasir vel ég þann kost sem hér liggur fyrir, ekki með glöðu geði frekar en maður gerir ýmislegt í stjórnaraðstöðu og stjórnarsamstarfi fleira en gott þykir, en þó er þetta skárri kostur en að skerða veiðiheimildir flotans í heild. Það er ekki þar með sagt að þetta sé góður kostur.
    En ég ætla ekki, herra forseti, að hafa um þetta fleiri orð að sinni. Mér finnst málflutningur gagnrýnenda málsins vera svolítið alvörulaus, svolítið úr tengslum við veruleikann. Og mér finnst hann ekki bera það með sér að þeir geti bent á raunhæf úrræði gagnvart þeim vanda sem hér er við að etja.