Ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
    Herra forseti. Ég vil þakka þá umræðu sem hér hefur farið fram. Auðvitað er það alveg rétt hjá hv. þm. mörgum sem hér hafa talað að með þessu frv. er ekki allur vandi leystur, enda sé ég enga leið til þess að leysa allan vanda vegna aflabrests í landinu. Ég vildi gjarnan að við ættum til slíkar lausnir en við hljótum samt að reyna að líta til þeirra vandamála og gera það sem hægt er í þeim efnum.
    Það er að sjálfsögðu ekki hægt þegar svona kemur upp að benda á einn ákveðinn ráðherra og spyrja hann út úr um það hvað eigi að gera í þessu og hvað eigi að gera í hinu. Það hlýtur að vera allrar ríkisstjórnarinnar og þingsins að benda á leiðir í þeim efnum. Við höfum leitast við í sjútvrn. að taka eins heildstætt utan um þennan vanda og okkur er nokkur kostur, m.a. með því að kynna okkur sjónarmið fólks í þeim byggðarlögum sem talið er að fari hvað verst út úr þessu. Það er alveg ljóst að skoðanir eru skiptar og þar er engin ein leið einföld.
    Ég tel það hins vegar mjög mikilvægt að taka á vandamálum verksmiðjanna. Það er alveg rétt sem kemur fram í þeirri skýrslu sem m.a. hv. 4. þm. Vesturl. vitnaði hér til, ég er þeirrar skoðunar að það eigi að reyna að fækka verksmiðjunum, ekki vegna þess að það sé áhugi fyrir því að ráðast gegn hagsmunum einstakra byggðarlaga heldur til að skapa framtíðarmöguleika í greininni.
    Ég vil minna á það að frá 1976 hefur verksmiðjum í Noregi verið fækkað um 50 og var nauðsynlegt að takast á við þann mikla skipulagsvanda sem þar var. Ég held að allir geti líka verið sammála um að það að veiða 550 þús. tonn af loðnu með 418 skipum, eins og Norðmenn gera, getur ekki kallast afar hagkvæm fiskveiðistjórnun. Ég vildi biðja þá sem mest gagnrýna fiskveiðistjórnun hér á Íslandi að kynna sér hvernig framkvæmd þessara mála er í ýmsum nágrannalöndum okkar. Það má vel vera að það þyki góð rekstrarspeki að nota öll þau skip við veiðar en það er ekki von til þess að slík búmennska verði einhvern tímann hagkvæm. Auðvitað má hafa þetta allt með öðrum hætti ef engar arðsemiskröfur eru gerðar og allt má reka með tapi og biðja svo um aðstoð frá ríkissjóði.
    Það er ekki það sem við blasir í íslenskum þjóðarbúskap að við getum rekið sjávarútveginn með þeim hætti. Hann verður að skila hagnaði og arði í þjóðarbúið, m.a. til þess að hægt sé að gera ýmislegt af því sem við viljum leysa í okkar samfélagi. Því er stundum haldið fram að vandamál byggðanna séu vandamál sjávarútvegsins. Það er vissulega rétt að þau vandamál sem skapast í sjávarútvegi verða jafnframt vandamál viðkomandi byggða. En það eru ýmis önnur mál sem er við að glíma í okkar samfélagi. Það hefur orðið gífurlegur samdráttur í landbúnaði, svo eitthvað sé nefnt, og það er gjarnan reiknað með því að sjávarútvegsfyrirtækin geti tekið við því ágæta fólki sem þar hafði áður vinnu. Sama má segja um margvíslegan framleiðsluiðnað og svo mætti lengi telja.

    Ég ætla ekki að fara að ræða almennt um þau mál, enda ekki ástæða til þess að því er varðar þetta einstaka mál. Það liggur nokkuð einfalt fyrir og það kom alveg skýrt fram hjá hv. 6. þm. Vesturl. hér áðan, það eru nánast þrír kostir: að gera ekki neitt, að beita 9. gr. eða reyna að finna aðra leið.
    Það er stundum að menn segja: Af tvennu illu vel ég hvorugt. Það hefur ekki þótt mikil speki en hv. 6. þm. Vesturl. hafði ekki þau ummæli heldur sagði: Af þrennu illu vel ég ákveðna lausn. Auðvitað er það hygginna manna siður að komast að slíkri niðurstöðu þótt það kunni að vera stundum erfitt. Ætli það sé ekki eins hjá þeim sem eru í því hverju sinni að standa í forsvari fyrir þessum málum, að þeir þurfi að gera það upp við sig hvaða vondi kostur skuli valinn. Ég get út af fyrir sig alveg tekið undir það sem þingmaðurinn sagði hér að þetta eru þrír kostir og ég er alveg sammála henni að þessi kostur er bestur þótt ekki sé hann sérstaklega góður.
    Ég skal reyna að svara þeim fyrirspurnum sem hér hafa komið fram. Hv. þm. Halldór Blöndal spurði um það hvaða heimildir væru til þess að senda skip til rannsókna með þeim hætti sem hefur verið gert í loðnunni. Því er til að svara að í 15. gr. laga nr. 81/1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, segir: ,,Ráðherra getur að fengnu áliti Hafrannsóknastofnunar veitt heimildir til veiðitilrauna og annarra vísindalegra rannsókna innan fiskveiðilandhelginnar og þurfa þær heimildir ekki að bera bundnar við íslenska aðila eina. En ætíð skulu slíkar tilraunir og rannsóknir fara fram undir eftirliti Hafrannsóknastofnunarinnar.``
    Það er á grundvelli þessarar greinar sem leyfin hafa verið veitt og talin nauðsynleg. Það verður ekki hjá því komist að skip sem send eru til slíkra rannsókna veiði eitthvert magn, en mikilvægt að takmarka þær veiðar þannig að þær verði ekki óhóflega miklar og það var gert í þessu tilviki.
    Ég get vel tekið undir það með hv. þm. Halldóri Blöndal að það er vandi að velja skip til slíkra hluta. Það var allmikið rætt og nánast engin leið þar góð.
Það var rætt um að draga skipin út. Að lokum var ákveðið að velja þau eftir stærð og hæfni til að stunda þessar rannsóknir en almennt er talið að stærstu skipin séu einna best til þess fallin og þau voru einfaldlega valin með þeim hætti. Nú hafa verið valin átta skip með þeim hætti. Ég hef heyrt það á fiskifræðingum hjá Hafrannsóknastofnun að þeim hefur líkað það vel að standa að málum eins og þar hefur gerst og vilja gjarnan gera það á næsta hausti. Ég tek undir það með hv. þm. að ég tel eðlilegt að leita til annarra skipa en þeirra sem hafa stundað þessar rannsóknir á þessum vetri þegar þar að kemur. Mér finnst það eðlileg sjónarmið, enda hafi þau skip til þess áhuga en það verður að taka fram að það voru ekki öll skipin sem hefðu getað farið til þessara rannsókna sem vildu það þannig að það gengu nokkur skip úr sem voru við önnur verkefni. Mér sýnist að við séum í sjálfu sér alveg sammála um þetta atriði. Ef það er dregið í efa að heimildir séu til til þess að standa að

málum með þessum hætti þarf að skera betur úr um það, en það hefur ekki verið talið af lögfræðingum sjútvrn. Ég vil jafnframt geta þess að á sama grundvelli hafa þorskrannsóknir farið fram að nokkru leyti með aðstoð fáeinna togara um nokkurra ára skeið. Þær rannsóknir eru nú að hefjast í marsmánuði.
    Að því er varðar spurningu hans um Fiskveiðasjóð þá er það alveg rétt sem fram kom í hans máli að það er vilji ráðuneytisins að þau skip sem ekki skulda í Fiskveiðasjóð og geta ekki fengið lánalengingu annars staðar, t.d. í sínum lánastofnunum --- það verður að telja eðlilegt að lánastofnanir séu tilbúnar að lengja lán eins og Fiskveiðasjóður --- að Fiskveiðasjóður geti lánað nokkurt fjármagn til slíkra aðila. Það er ekki komin endanleg niðurstaða í því en að málinu er verið að vinna á þeim grundvelli. Ég vænti þess að sú niðurstaða fáist og stjórn Fiskveiðasjóðs hefur haft fullan vilja á því. Það er alveg rétt eins og komið hefur fram að hér er á engan hátt verið að bæta að fullu, langt í frá, þann mikla skaða sem þessi skip hafa orðið fyrir heldur eingöngu verið að létta þeirra byrði þannig að þau hafi einhverja möguleika til að komast fram úr honum. Það er ekki nóg að þau fái þessar auknu veiðiheimildir heldur þurfa þau einnig á lánalengingum að halda.
    Hvað liði almennum skuldbreytingum skipa. Ekki var horfið að því ráði, eftir að Atvinnutryggingarsjóður hafði framlengt lán mjög margra fyrirtækja allt í kringum landið, að fara út í beinar skuldbreytingar á vegum sjóða ríkisins heldur var farin sú leið að ræða það við viðskiptabanka og Fiskveiðasjóð. Ég veit að í mörgum tilvikum, þegar þessir aðilar hafa talið að um rekstrargrundvöll gæti verið að ræða fyrir viðkomandi skip, hafa slíkar skuldbreytingar átt sér stað. Það hafa verið viðbrögð ríkisstjórnar eða sjútvrh. í þeim málum. En auðvitað er það því miður svo í mörgum tilvikum að lánastofnanir hafa ekki séð að rekstrargrundvöllur væri fyrir hendi eða viðkomandi eigendur hafa ekki séð hann og því brugðið á það ráð að selja.
    Það er einnig rétt hjá hv. þm. að starfsfólki Síldarverksmiðja ríkisins hefur verið sagt upp og hafin er vinna við endurskipulagningu á rekstri Síldarverksmiðja ríkisins. Ég hef talið það mjög mikilvægt að breyta rekstrarformi Síldarverksmiðja ríkisins, ég tel það á allan hátt úrelt. Það liggur fyrir tilbúið frv. í ráðuneytinu um breytingar á Síldarverksmiðjum ríkisins. Það hefur ekki náðst um það samstaða hjá stuðningsflokkum þeirrar ríkisstjórnar sem nú starfar. Ég ætla ekki að fara að tilgreina ástæður í þeim efnum, en ég tel þetta form vera algerlega úrelt og því beri að breyta og þessar verksmiðjur starfi á sambærilegum grundvelli og önnur fyrirtæki í landinu. Ég tel því eðlilegast að fyrirtækinu verði breytt í hlutafélag, en hef talið að það væri réttara að félagið ætti allar þær verksmiðjur sem það á í dag því að með því er áhættunni dreift og reksturinn betur samræmdur. Hvort það eigi að fara út í það að skipta þessu fyrirtæki upp í mörg sjálfstæð félög er að sjálfsögðu atriði sem má ræða, en ég hef efasemdir um að það reynist hagkvæmara. Ég held þvert á móti að það sé hagkvæmt og traustara að reka þetta margar verksmiðjur í einu félagi. Við höfum oft orðið vör við það að þótt rekstur bregðist í einum landshluta þá kemur nokkurt magn til vinnslu í öðrum.
    Hvort það megi treysta því að kjarninn af þessu starfsfólki haldi sinni vinnu get ég því miður ekki fullyrt um. Það er ekki í mínu valdi að fullyrða neitt um það. Það fer eftir því hvort tekst að leysa fjárhagsvanda verksmiðjanna en viðræður fara fram við Landsbanka Íslands um það mál nú. En það verður að segjast alveg eins og er að fyrirtækið hefur minna svigrúm til að leysa fjárhagsvandann nú en þegar loðnubresturinn varð fyrir nokkrum árum. Ástæðan er augljós. Hún er sú að fyrirtækið hefur lagt í miklar fjárfestingar og er þar af leiðandi mun skuldugra en það hefur oft verið áður og skuldug fyrirtæki eiga ekki eins létt með að leysa slíkan vanda og þau sem minna skulda.
    Það voru ekki beinar spurningar hjá hv. 4. þm. Vesturl. Skúla Alexanderssyni. Og ég ætla ekki að fara að lengja þennan fund með því að rekja það sem hann sagði eða svara því. Hv. 3. þm. Vestf. Karvel Pálmason spurði hvort þetta væri eina réttlætið, var ekkert annað til? Það er sjálfsagt svo að ýmislegt annað er til og ekki get ég svarað því hvort ekkert annað er til. Þetta voru hins vegar einu úrræðin eins og hér hefur áður verið rakið sem komu upp í þeirri umræðu sem fram fór. En ef hv. þm. getur bent á önnur eru þau að sjálfsögðu vel þegin og það er sjálfsagt að ræða allt sem fram kemur í þeim efnum.
    Hann spurði hvort sjútvrh. væri með hótanir. Það eru engar hótanir uppi í þessu máli eins og hv. 3. þm. Vesturl. Eiður Guðnson tók hér fram og alveg rétt hjá honum. Það verður hins vegar ekki vikist undan þessu máli og fram hjá því verður ekki gengið. Ég get hins vegar svarað hv. þm. Karvel Pálmasyni skýrt um það að ef þetta frv. verður samþykkt er það ekki ætlun núv. sjútvrh. að beita 9. gr. Það hefur komið skýrt fram í mínu máli að ég vil komast hjá því. Og ef þetta frv. verður samþykkt, svona nokkurn veginn í því formi sem það er, þótt það megi að sjálfsögðu ræða breytingar á því, þá er ekki ætlun mín að beita 9. gr. Ég hélt að það hefði komið svo skýrt fram í mínu máli að það þyrfti ekki að árétta, en ég geri það hér með.
    Hv. 6. þm. Vesturl. spurði beint um það hvort til stæði að flýta framkvæmdum. Það er ekki í mínu valdi að svara því. Hins vegar eru uppi óskir um það á nokkrum stöðum á landinu, t.d. á Siglufirði, hvað varðar framkvæmdir við vegagerð, hvað varðar framkvæmdir við hafnargerð og margvíslegar aðrar framkvæmdir. Ég tel sjálfsagt að reyna allt sem hægt er til að verða við því ef það getur bætt atvinnuástand á viðkomandi stað. Hitt er svo annað mál að það hefur færst mjög í vöxt að bjóða út allar slíkar framkvæmdir og það er engin vissa fyrir því þótt þær fari fram að þær gagnist einvörðungu því fólki sem er í byggðarlögunum. Það er t.d. ljóst að verkstæðið á Siglufirði getur tekið að sér margvíslega smíði. Þar er

mjög fullkomið vélaverkstæði sem vill gjarnan taka að sér margvísleg verkefni. Ég vænti þess að það verði hægt að útvega þessu ágæta verkstæði mörg verkefni. Þeir bentu t.d. á það að þeir hefðu viljað smíða hurðir í ný jarðgöng sem er verið að bora ekki langt frá þeim, en þar væri tekið hagstæðasta tilboði og þeir hefðu orðið undir í þeim efnum. Ég býst við því að svona verkstæði gæti vel smíðað ýmis möstur sem menn vilja byggja hér í landinu og ekki ólíklegt að þau geti smíðað efni í háspennulínur sem þarf að leggja um landið. Þetta eru atriði sem við þurfum að athuga mjög gaumgæfilega, en ég bendi hins vegar á að reglur um útboð og að taka hagkvæmasta tilboði standa stundum í vegi fyrir slíkum aðgerðum.
    Hv. 6. þm. Vesturl. spurði um Hagræðingarsjóð. Ég vil benda á að Hagræðingarsjóður mun hafa 12 þús. þorskígildistonn til ráðstöfunar á fiskveiðiárinu sem byrjar 1. sept. á þessu ári. Það eru nokkur byggðarlög sem þar hafa sótt um og eru til athugunar. Ég á ekki von á því að niðurstaða fáist í sum þeirra mála fyrr en í fyrsta lagi á komandi vori eða sumri. Því er alveg ljóst að þetta eru allverulegar veiðiheimildir eða helmingur þeirra sem eiga að ganga til byggðarlaga sem illa eru stödd og kemur ekkert í veg fyrir það að undirbúningur að því er varðar framkvæmd þeirra laga haldi áfram. Það hefur nokkuð verið gagnrýnt hér að reglugerð hafi ekki enn verið gefin út. Það er alveg rétt. Það stafar af því að stjórn sjóðsins var mjög seint skipuð vegna þess hve seint tilnefningar bárust þrátt fyrir mikla eftirgangssemi. Stjórnin hefur verið að fjalla um drög að reglugerð en hún verður sett svo fljótt sem verða má. Það er hins vegar rétt að það hefur nokkuð verið hægt á þeirri vinnu vegna þeirra hugmynda sem hafa verið uppi um það að ráðstafa tímabundið þessu aflamagni til loðnuskipanna.
    Herra forseti. Ég vænti þess að ég hafi að mestu svarað því sem beint var til mín og vænti þess að þetta mál geti fengið skjóta meðferð hér á þinginu. Með því er ég ekki að segja að þingið eigi ekki að taka eðlilegan tíma til að fjalla um málið. Það er einnig gagnrýnt hve mál berast oft seint til síðari deildar, hvort sem það er Nd. eða Ed. Það er að sjálfsögðu líka mikilvægt að hv. Nd. fái góðan tíma til þess að fjalla um þetta mikilvæga mál.