Ráðstafanir vegna aflabrests í loðnuveiðum
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Karvel Pálmason :
    Virðulegi forseti. Það eru aðeins örfá orð. Það er meira aðdráttaraflið sem hæstv. sjútvrh. hefur hér í dag. Nú er hann kominn með Kvennalistann líka inn í dæmið, hálfgerða stuðningsaðila við málið. Og enn má fagna með hæstv. ráðherra hvernig hann fjölgar í liðinu sem ætlar að standa að þessu.
    Það er auðvitað slæmt að hv. þm. Eiður Guðnason skuli ekki vera hér til staðar en ég tel rétt að víkja aðeins örfáum orðum að því sem hann sagði og það talaði líka hæstv. sjútvrh. um. Þeir segja að þeir sem segja að þessi leið sé ómöguleg verði að koma með aðrar tillögur. Þetta er auðvitað gamli tónninn alltaf hreint, alltaf það sama. Hvorki hæstv. ráðherra né hv. þm. Eiður Guðnason hafa þá hlustað á mitt mál áðan. Ég gerði að vísu enga beina tillögu en ég spurði þingdeild og hæstv. ráðherra um það hvort það væri ekki skynsamlegra, eða hugsanlegt, að menn tækju þetta úr sameiginlegum sjóði landsmanna heldur en að taka brauðið frá þeim sem verst eru settir í þessu tilviki, auka vanda fleiri en eru í honum núna. Mér sýnist nefnilega að hæstv. ráðherra og þeir sem að hessu standa hafi talið þetta einu leiðina sem kæmi til greina. Og mér finnst þeirra skammsýni miklu meiri en okkar hinna, að setja þetta fram svona og tala um það svona. Auðvitað getur ríkisstjórn ef hún vill fundið aðra leið en þessa ef hún vill fara hana sjálf eða telur hana betri. En það er augljóst að hæstv. sjútvrh. hefur talið þessa leið hina einu færu. Það er auðvitað hans skoðun og þeirra sem það telja og ekkert við því að segja. En ég tel að það sé rangt að halda því alltaf fram að við sem höfum verið að andæfa gegn því kerfi sem hér hefur verið við lýði frá því 1984 og innleitt allt tapið í sjávarútveginum, láta það versna alla tíð síðan, aldrei verið verra heldur en á árinu 1990. Þetta kerfi hefur innleitt allt tapið sem hæstv. ráðherra var að víkja hér að áðan þegar hann var að spyrja hvort menn vildu hafa sama hátt á og Norðmenn hefðu með sínar fiskveiðar. Síðan hefur allt verið í bullandi tapi undir þessari stjórn, þrátt fyrir eða vegna þessa. Við erum ekkert lausir við tap á fyrirtækjum í fiskvinnslu þó að þessi kvóti hafi verið innleiddur og hafi verið í gildi í þennan tíma.
    Menn segja hér: Þetta er aðeins tímabundið til átta mánaða. Geta menn fullyrt um það? Er mönnum það alveg ljóst og geta menn lýst því hér yfir að það verði bara þessi 8 þús. tonn, þetta verði bara til átta mánaða? Hvað á að taka við eftir átta mánuði, að kosningum loknum? Hvað á þá að taka við? Það er alveg ljóst að þetta dugar ekki. (Gripið fram í.) Ég heyri að einn hv. þm. er kominn í salinn svo að það er kannski rétt að taka aðra törn á málinu.
    Ég spurðist fyrir um það hér í dag hvernig væri með hæstv. ráðherra Borgfl. eða hv. þm. hans hér í deildinni, hver viðhorf þeirra væru til þessa máls því að varðandi ríkisstjórnina er bara talað um þrjá flokka, þrjá flokka úr ríkisstjórninni sem hafa um þetta fjallað. Það hefur aldrei verið getið um Borgfl. ( Sjútvrh.: Jú, jú.) Ekki svo að ég hafi heyrt, hæstv. ráðherra.

( Gripið fram í: Er ekki í nefndinni.) Ég hef ekki heyrt viðhorf þeirra borgaraflokksmanna og það er sjálfsagt að fá þau fram. En ég spyr: Geta menn sagt hér að þetta verði bara í átta mánuði þó að menn lýsi því fyrir fram yfir að þetta dugi ekki og mikið sé skilið eftir?
    Ég neita því að menn séu að tala um þetta sem einu færu leiðina. Það séu bara þrír kostir, að gera ekki neitt, það er 9. gr. og það er þetta. Það eru auðvitað til fleiri leiðir, hæstv. ráðherra. Af hverju ekki að taka þetta af okkur, t.d. í skatti? Því ekki það? Er það ekki ein leiðin, að leggja á sameiginlegan skatt vegna þessa, alveg eins á okkur eins og hina sem búa við þröngan kost í fiskveiðum? Er það hugsanlegt? Ég spyr. Af hverju eigum við að sleppa við að taka á okkur hluta af þessum skelli? Og það mætti spyrja um fleira en þetta. Ég er ekki sammála því sem hv. þm. Eiður Guðnason sagði og hæstv. ráðherra, að þetta sé bara eina leiðin og hana eigi að fara, ella verði hæstv. ráðherra að beita 9. gr. Ég tek undir með hv. þm. Skúla Alexanderssyni, það er engin skylda hans að gera það. Hann hefur heimildina. Hann getur komið með hvaða tillögu sem er sem hann telur réttlætanlega til að bregðast við þessum vanda. Mér finnst að menn einangri þetta um of þegar þeir tala með þessum hætti.
    Ég skal ekki, herra forseti, hafa þessi orð fleiri nema frekara tilefni gefist til.