Karvel Pálmason :
Virðulegi forseti. Ég held að hv. þm. Guðmundur Ágústsson sé nú vart í sambandi við hæstv. sjútvrh. eins og hann talaði hér áðan. Hv. þm. segir að þeir borgaraflokksmenn hafi rætt þetta frv. og styðji það í ljósi þess að það leysi allan vanda sem við er að etja. ( GuðmÁ: Það voru ekki mín orð.) Ég vildi óska eftir því ef hv. þm. heldur þessu fram að hann fái ljósrit af ræðunni því að ég fullyrði það að þetta voru orð þingmannsins. Í þessu ljósi eru borgaraflokksmenn alveg á öndverðum meiði við hæstv. ráðherra því hann hefur haldið því fram hér í umræðunni í allan dag, og það er rétt að undirstrika það, hv. þm. Guðmundur Ágústsson, að hér hafa staðið yfir umræður í allan dag um sjávarútvegsmál og það hefði hv. þm. átt að vita. Þarna eru borgaraflokksmenn alls ekki sammála hæstv. ráðherra um málið. Hæstv. ráðherra lýsti yfir hér í umræðum í dag að þetta leysti ekki nema hluta af vandanum en þingmenn Borgfl. lýsa því hér yfir að þetta leysi bara allan vandann eins og hann leggur sig. Eitthvað hlýtur að bera á milli þarna. Og það væri auðvitað gott að fá það upplýst, hvort sem það er frá hv. þm. Borgfl. eða hæstv. ráðherrum hans eða sjútvrh., hvort þarna ber ekki eitthvað í milli, hæstv. ráðherra, milli fulltrúa Borgfl. í staðhæfingu um það að þeir gangi út frá því að þetta frv. leysi allan vandann eins og hann leggur sig eða því sem hæstv. ráðherra talaði um í dag að þetta væri bara hluti af lausninni, það leysti ekki allan vandann. Þarna er mikill munur á.