Málefni aldraðra
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Frsm. meiri hl. heilbr.- og trn. (Guðmundur G. Þórarinsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hl. heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra. Frv. þetta hefur þegar hlotið afgreiðslu í Ed.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og meiri hl. hennar leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt eins og það kom frá Ed. Tveir minni hlutar eru í málinu sem leggja fram sín nefndarálit.
    Að meirihlutaáliti standa Guðmundur G. Þórarinsson, Helga Hannesdóttir, Geir Gunnarsson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.