Málefni aldraðra
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Frsm. 1. minni hl. heilbr.- og trn. (Anna Ólafsdóttir Björnsson) :
    Virðulegi forseti. Lagabreyting sú, sem lögð er til með þessu frv., leggur auknar skyldur á Framkvæmdasjóð aldraðra án þess að fé sé veitt til sjóðsins sem dugar til að hann geti sinnt þeim skyldum. Sjóðurinn hefur árum saman verið skertur við afgreiðslu lánsfjárlaga og af þeim sökum hefur hann ekki getað annað því sem honum er ætlað. Nú, þegar ákveðið er að skerða ekki framlög til sjóðsins heldur auka þau, er bætt á hann verkefnum sem eru það viðamikil að ekki sér fyrir endann á því hvernig það dæmi lítur út þegar það verður gert upp. Þó má telja fullvíst að fé til nýframkvæmda muni skerðast, jafnvel verulega, með þeirri skipan mála sem felst í þessu frv. Því getur 1. minni hl. ekki stutt frv. nema framlög til sjóðsins verði aukin verulega til að mæta þeim nýju verkefnum sem sjóðnum er ætlað að sinna og mun sitja hjá við afgreiðslu þess.