Forseti (Árni Gunnarsson) :
Forseti hafði ekki búist við mikilli umræðu um þetta frv. við 2. umr. en hann telur auðsætt að hér hafi komið fram fyrirspurnir og óskir um upplýsingar frá a.m.k. tveimur ráðherrum, hæstv. heilbr.- og trmrh. og hæstv. fjmrh. Af þeim sökum ætlar forseti að fresta þessari umræðu nú. Hún verður tekin upp á nýjan leik á morgun og þá gerðar ráðstafanir til að hæstv. ráðherrar verði hér viðstaddir. En það skal tekið fram að hæstv. heilbr.- og trmrh. hefur fjarvistarleyfi.