Héraðsskógar
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um Héraðsskóga. Þetta er 236. mál og komið frá Ed. eftir nokkrar breytingar sem þar urðu á frv.
    Það ætti að vera óþarft að rekja fyrir hv. alþm. aðdraganda þessa máls, hann er væntanlega nokkuð vel kunnur. En upphaflega má segja að þáltill. nr. 79/1988, um skógræktarátak á Fljótsdalshéraði, og síðar samþykkt ríkisstjórnar frá 27. maí 1989 marki upphaf þessa máls. Hefur síðan verið unnið að því og undirbúið sleitulaust síðan að hrinda í framkvæmd því skógræktarátaki á Fljótsdalshéraði sem hér um ræðir. Á sl. vetri var hliðstætt frv. lagt fram í hv. Ed. til kynningar og fór þaðan til umsagnar og voru þær umsagnir m.a. hafðar til hliðsjónar þegar málið var tekið fyrir að nýju á þessum vetri og unnið af hv. landbn. Ed.
    Frv. markar lagaramma um það nytjaskógræktarátak á Fljótsdalshéraði sem hafið er og á grundvelli fjárveitinga undanfarinna ára og yfirstandandi árs. Það kveður á um helstu skilmála þessa skógræktarátaks, kostnaðarþátttöku ríkissjóðs og hlutdeild ríkissjóðs í afrakstri, heimilar þá samninga við þátttakendur átaksins, þ.e. fyrst og fremst bændur sem hlut eiga að máli, og kveður með öðrum hætti á um framkvæmd verkefnisins, stjórn þess, reikninga og aðra slíka hluti.
    Á frv. urðu í hv. Ed. eingöngu tvær breytingar og lutu báðar að hlutdeild ríkissjóðs. Annars vegar var hækkuð á nýjan leik í 97% kostnaðarþátttaka ríkisins í skógrækt á jörðum í ábúð og í 75% á eyðijörðum og í annan stað var hlutdeild ríkissjóðs í væntanlegum afrakstri af verkefninu hækkuð úr 15% í 30%. Um þessar breytingar sem og um afgreiðslu málsins tókst fullkomin samstaða í hv. Ed. og skilaði landbn. samhljóða nál. þar sem mælt var með samþykkt frv. með þessum nefndu breytingum.
    Óþarft er að minna hv. þingdeildarmenn á að til þessa verkefnis hefur verið tvö undanfarin ár varið allnokkrum fjármunum, fyrst til undirbúnings og síðan til beinna framkvæmda sem og fjárfestinga til að unnt sé að hefja plöntuframleiðslu og aðra starfsemi. Er sú fjárveiting sem fyrir hendi er á þessu ári allmyndarleg og dugar til að koma verkefninu á góðan skrið.
    Þá er og rétt að nefna að bak við þetta mál er mikill hugur heimamanna sem m.a. hefur komið fram í mikilli þátttöku þeirra í stofnun hlutafélags til framleiðslu á plöntum sem ákveðið var að stofna og til að standa fyrir þeirri starfrækslu. Er mér tjáð að almannaþátttaka í því hlutafélagi sé nú orðin meiri á Fljótsdalshéraði og á Austurlandi en þekkst hefur áður í sambærilegum tilvikum.
    Ég sé ekki ástæðu til í sjálfu sér, herra forseti, að fara ítarlega í einstökum atriðum yfir efni frv. enda ekki ýkja mikil lesning þeim sem það vilja kynna sér nánar, en vænti þess að sú góða samstaða sem tekist hefur um þetta tímamótamál í nytjaskógrækt í landinu, einkum hvað varðar þátttöku bænda í slíkri skógrækt, geti haldist og hv. Nd. afgreiði frv. greiðlega frá

sér. Það er mikið og brýnt hagsmunamál fyrir þetta verkefni og alla sem að því standa að unnt sé nú að lögfesta þann grundvöll sem verkefnið byggir á því það þarf vel að vanda sem lengi á að standa. Hér er verið að hrinda úr vör langstærsta nytjaskógræktarverkefni landsins til þessa og því fyrsta þar sem fleiri tugir bænda og bújarða eru beinir þátttakendur. Í því felast óneitanlega tímamót sem við skulum vona að séu ekki bara frekar einstæð heldur boði þau upphaf fleiri slíkra verkefna og átaka í þeim héruðum landsins sem vel eru til skógræktar fallin. Ég er sannfærður um að bændur og landsmenn annars staðar en á Héraði og Austurlandi munu horfa til þess hvernig til tekst í þessu máli og binda við það vonir að það geti orðið fordæmi og boðberi þess sem koma skal víðar.
    Að lokinni þessari umræðu, herra forseti, legg ég svo til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn. deildarinnar.