Héraðsskógar
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Jón Kristjánsson :
    Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðu um þetta mál sem hæstv. landbrh. hefur talað hér fyrir um skógræktarátak á Fljótsdalshéraði og lagaramma þar um. Ég fagna því að þetta frv. er komið frá Ed. og þar hefur tekist um það víðtækt samkomulag. Það voru skiptar skoðanir um kostnaðarhlut ríkisins áður en frv. var lagt fram, en í meðförum landbn. Ed. hefur tekist þar samkomulag um sem ég tel ásættanlegt og er ánægður yfir því að það skuli hafa tekist.
    Ég el þá von í brjósti að þetta frv. verði samþykkt fyrir þinglok. Ég held að það sé nauðsynlegt vegna þess að það er áhugi fyrir málinu en bændur sem í þetta fara skortir þann ramma sem lögin setja utan um þetta verkefni. Það er mjög mikið fagnaðarefni ef þetta þing gengur frá þessu máli. Það er afar mikill áhugi fyrir þessu verkefni og þar fara hagsmunir allra saman, þeirra sem hafa áhuga fyrir byggð að hún dafni sem víðast, þeirra sem hafa áhuga fyrir landgræðslu og þeirra sem hafa áhuga fyrir búskap í sveitum. Þetta verkefni sameinar öll þessi áhugamál. Ég vona að þetta frv. fái góða meðferð hér í Nd. og takist um það áframhaldandi góð samstaða.