Leikskóli
Þriðjudaginn 19. febrúar 1991


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Það eru aðeins orð tveggja hv. þm., annar er raunar hæstv. ráðherra einnig, sem fá mig hingað í stólinn aftur. Í fyrsta lagi vil ég að það komi skýrt fram að í máli mínu áðan og í fyrri viku um félagsþjónustu sveitarfélaga kom ekki fram að ég teldi að sveitarfélög úti á landi hefðu nokkuð minni áhuga eða þörf á að byggja upp leikskóla fyrir börn en önnur sveitarfélög. Hins vegar vakti ég þá athygli á því og ítreka nú að ein af meginástæðunum fyrir því að ég fjallaði svo mikið um fjármögnunarþáttinn sem ég gerði er sú að ég sé ekki á hvern hátt smærri sveitarfélög eiga að geta svarað þeim kröfum sem á þau eru. Það er ekkert fast í hendi í sambandi við Jöfnunarsjóð og það vitum við öll. Ég er sammála hæstv. menntmrh. um að það þarf meira til. Einmitt þess vegna hefði ég viljað sjá á hvern hátt það hefði verið tryggt, að það hefði verið gert meira en að leggja fram þessa ágætu stefnu.
    Það er nú svolítið ómaklegt að halda því fram að þeir sem hafa þessar áhyggjur, þungu og einlægu áhyggjur, séu að sverta það mál sem hér liggur fyrir. Það var raunar ekki af nokkru nema umhyggju fyrir málinu og framgangi þess og þeim markmiðum sem fram koma að ég gat þess að ég teldi að fjármögnunin yrði að fylgja. Og það er engin hártogun í því heldur er þetta raunsætt mat. Mér er að vísu fullkunnugt um að mörg sveitarfélög hafa ágæta burði til að byggja upp dagvistarstofnanir, eins og það er núna kallað, leikskóla, eins og það ætti að vera kallað. En það er alveg ljóst að mörg þeirra hafa ekki nýtt sér að þau geta það. Þar af leiðandi þarf dálítið mikið meira til en góða stefnu til þess að við sjáum fram á betri tíma fyrir börnin.
    Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans í sambandi við hlutverk leikskóla. Við erum þar sammála. Það er fyrst og fremst réttur barna að leikskólar séu til. Það er aftur á móti staðreynd að langur vinnudagur og léleg laun hafa skammtað fólki mjög vondar aðstæður fyrir börn sín og að því leyti til skil ég mjög vel að þessi atriði hafi komið hér fram í ræðu hans. En hér hefur fengist svar við þessari spurningu og fyrir það þakka ég.