Flm. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Á þskj. 542 hef ég leyft mér að flytja frv. til laga um bann við sölu á eignum ríkisins án lagaheimilda. 1. gr. þessa frv. er svohljóðandi:
,,Fjmrh. er óheimilt að selja eftirtaldar eignir ríkissjóðs, ríkisstofnana eða sjóða í ríkiseign nema samkvæmt heimild í almennum lögum eða fjárlögum:
a. fasteignir,
b. hlutabréf eða eignarhluti í félögum,
c. skip eða flugvélar,
d. listaverk, listmuni og söfn sem geyma menningarverðmæti,
e. aðrar eignir sem hafa verulegt verðgildi.``
Greinargerðin er stutt og laggóð og hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Fjmrh. er óheimilt að selja fasteignir ríkissjóðs samkvæmt 40. gr. stjórnarskrárinnar. Því er mjög óeðlilegt að ekki gildi sama regla um hlutabréf, eignarhluta í félögum, skip, flugvélar, listaverk, listmuni, menningarverðmæti eða aðrar eignir sem hafa verulegt verðgildi.``
Þetta frv. er flutt að gefnu tilefni. Þetta er ekki ný hugmynd. Síðast var henni hreyft á síðasta þingi en þetta var einn þáttur í frv. sem hv. fjárveitinganefndarmenn fluttu um meðhöndlun á eignum ríkisins. Því miður varð þessi hluti frv. ekki að lögum. Þar strandaði m.a. á að frv. var miklu víðtækara en þetta og mætti andstöðu, sérstaklega ákvæði um launakjör. Því miður varð þessi þáttur ekki að lögum þá og því hef ég kosið að taka hann út úr frv. þeirra félaga eða hliðstæðan þátt og flytja hér sem sérstakt þingmál.
Eins og menn muna hafa iðulega verið hér til meðferðar lagafrv. um sölu á fasteignum ríkisins, t.d. um kotið Streiti í Breiðdal er búið að flytja þingmál ég held þrisvar sinnum. Við höfum ekki borið gæfu til að afgreiða það frá þinginu, þ.e. það frv. hefur aldrei náð fram að ganga. Ég minnist þess að einu sinni var flutt frv. um húsnæði lögreglustöðvar á Akranesi. Það er mjög óeðlilegt að unnt sé að selja stóreignir sem hlutabréf standa að baki, stórar fasteignir að geðþótta fjmrh. Og fjmrh. er enginn greiði gerður með því að láta leiða sig í freistni, enda var svo komið um daginn að hann vildi ekki hafa þennan kaleik hjá sér og tók undir það að lögum þyrfti að breyta. Nú gefst honum tækifæri til þess að styðja þetta frv. og hans flokksbræðrum.
Ég vonast eftir því að þingheimur geti sameinast um að afgreiða þetta frv. sem lög áður en þingi lýkur í vetur. Ég vil taka það fram að með orðunum ,,verulegt verðgildi`` er átt við meiri háttar verðmæti, ekki bíla eða eignir sem kosta fáeinar milljónir heldur einungis stærri eignir.
Ég ætla ekki að orðlengja þetta meira, herra forseti, en legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. fjh. - og viðskn. deildarinnar.