Alexander Stefánsson :
Virðulegi forseti. Ég get fyllilega tekið undir það frv. sem hér var verið að mæla fyrir. Það stefnir örugglega í rétta átt. En út af ummælum flm. um frv. fjvn. get ég sagt frá því hér að ég geri ráð fyrir því að það frv. verði lagt fram nú í vikunni, endurbætt að því er varðar launamál o.fl. Það væri óskandi að það frv. eða þessi bæði yrðu að lögum á þessu þingi því hér er um mál að ræða sem er löngu orðið tímabært að Alþingi setji vissar skorður og reglur sem varða fjármál og fjárfestingu ríkis.