Brottnám líffæra og krufningar
Miðvikudaginn 20. febrúar 1991


     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 684 frá heilbr.- og trn. um frv. til laga um brottnám líffæra og krufningar. Nefndin hefur fjallað um frv. og fengið Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra til fundar um efni þess.
    Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum málsins í Nd.
    Undir nál. rita Valgerður Sverrisdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Stefán Guðmundsson, Guðmundur H. Garðarsson og Karl Steinar Guðnason.