Ákvörðun dauða
Miðvikudaginn 20. febrúar 1991


     Frsm. heilbr.- og trn. (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 685 frá heilbr.- og trn. um frv. til laga um ákvörðun dauða. Nefndin fékk Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra til viðræðna um efni frv. og leggur hún til að frv. verði samþykkt óbreytt.
    Undir nál. rita Valgerður Sverrisdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Stefán Guðmundsson, Guðmundur H. Garðarsson og Karl Steinar Guðnason.